Má til að skrifa smá á afmæli afa Sigga. Mér er alltaf hugsað til ykkar á afmælisdögum fjölskyldumeðlima. Það er skrítin tilhugsun að þeir, sem við ölumst upp með, skulu allt í einu vera farnir. Við ættum oftar að hugsa til þess hvað við eigum gott að eiga okkar fjölskyldu og njóta þess að hafa samband við hana. Hérna úti sér maður best hvað margir eru einmanna og eiga litlar fjölskyldur. Við erum sannarlega rík, þó ekki sé það í peningum mælt.
Er einstaklega hamingjusöm með að hafa fengið athugasemdir frá frænkum undanfarið, sem sjaldan og aldrei hafa sést hér áður. Hún Fríða litla frænka mín er komin í hópinn, sem nennir að pikka smá kveðju til frænku í útlöndum. Takk kærlega fyrir kveðjuna,- og við höfum mikinn áhuga á að komast upp í sveit. Það fer eftir færð og veðri. Okkur Maddý langar mest að vera í Garði á áramótunum, en það fellur nú ekki vel í kramið hjá okkar dætrum :) Er að skrifa jólakortin, og var svo á fundi í vinnunni. Margrét í eftirliti með burstun á tönnunum. Allt í besta eins og við var að búast. Búið að veita henni opinbert leyfi að fara á föstudaginn, sko til! Engin jólaböll hér frekar en fyrri daginn. Hvorki í leikskólum, í grunnskólunum eða í menntaskólunum. Nei, hér er alvara lífsins sko mikilvægari en böll. En nú erum við að koma í fjörið!
Verður Lilla búin að þvo rauða dregilinn og sykurkerið áður en ég kem?
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
10 comments:
Því miður mun hún systir mín þurfa að upplifa óhreinan þvott og drasl og rusl í Íslandsferð sinni, og það verður heima hjá mér!!!Er ég ekki annars að fara að fá vinnukonu yfir jólin?Ég hef engan tíma til að þrífa heima hjá mér þessa dagana, er alltaf búin að vera eftir erilsama vinnudaga, og ekki hjálpar það til að búa í svartholinu íslenska- skammdeginu...it´s sucking my will to live..hehe! Hlakka til að fá ykkur, þrifin og kattarhárin bíða...ykkar Arnhildur christmaspornodoggy
Hva..er Arnhildur að hafa áhyggjur af tiltekt áður en þið komið? Veit hún ekki að það er tilgangslaust að taka til, þú gerir það hvort sem er aftur he he. Hér er enn allt á öðrum endanum í smíðavinnu og málningarstússi enda verið að gera allt fínt áður en þið komið, bara eftir að kaupa nýjan uppþvottabursta.. nei nei, ekki byrjuð að undirbúa jólin, hvað þá kaupa gjafir, en þetta stendur allt til bóta eftir helgi. Kv affí
Ertu búin að raða tannkremstúbunum í rétta röð í skúffu Affí? Og kaupa Camenbertost fyrir Áddu og Klaus spyr ég nú bara Affí?? Þú manst að þeim finnst lyktin af honum svo góð - ættir að bæta því á listann með uppþvottaburstanum hehe...
já Arnhildur þetta helv... skammdegi má fara andsk... til!! En reynum að komast í gengum þetta í stuði með guði you christmaspornodog!
Líst vel á að þið drífið ykkur í kaffi til Fríðu í sveitina um jólin, mikið væri ég til í hlátursstund þar með ykkur frænkunum mínum...
p.s. þetta var nú kannski ekki mjög aðventuleg athugasemd hjá mér...
Vona að fleiri en ég og Þorgerður séum komnar í jólastuð..og til að lífga uppá skammdegið þá koma hér nokkrir flottir DVD jólatillar..titlar..ruglast alltaf..
Guess who´s cumming for X-mas?
Santa doesn´t just cumm down the chimney!
Seymore Butts Merry Fucking X-mas!!
Og ef þetta kemur ykkur ekki í jólastuðið með guði þá er ykkur ekki viðbjargandi.-takk fyrir -Arnhildur-*the Holy Pornodogg*
He he he, ég er líka alveg að rifna úr jólastuði, er að skrifa jólakort á fullu, búin með ca 45, "bara" 30 eftir....... KÖ hér heima með mér, hann gubbaði í nótt og er með í maganum, en er hundfúll að hafa engan til að leika við!!!
Heheheheheh aldeilis jólaleg komment... þið frænkur (pornodogg og nursedogg) komið okkur alveg í stuð og þar af leiðandi í jólastuð :þ
flottir tilllar... sorry titlar á jólamyndum besta frænka
kv
Kristín
Þú hefur gott minni Þorgerður! Osturinn er góður, en lyktin--- :)
Affí á örugglega bara eina tannkremstúbbu eins og hún er alltaf sparsöm ! En ég get tékkað á því hvernig lítur út í hnífaparaskúfunni hennar. Er líka á fullu að útbúa jólakort, og skrifa og líma. Var að fatta að ég er ekki enn farin að spila jóladiskana mína, - ellimerki, eða? Verið áfram svona skemmtilegar. Ykkar Ádda /mamma /gleðibankinn.
Jólaandinn yfirsvífandi. Gott mál. Ég á endalausu kafi, próf og yfirferð sitja á hakanum því það er allt vitlaust = lesist meirihlutinn í borginni - í fjáráætlunargerðinni. Þar eru vinnubrögð sem .....
Annars er pakkinn kominn systir sæl og við vorum með Óskar og Emmu + börn í sviðaveislu í gær. Mikið horft og spekulerað, en líka mikið borðað, meira að segja nokkur augu.
Síðast prófið á morgun og líka 2 stórir fundir. Síðan jólafjör hjá mér á Umhverfissviði. Og svo æfing í ráðhúsinu með kórnum mínum, opin æfing þar sem fólk getur komið inn í kórinn og æft með okkur. Þið þarna úti, nú er að mæta og taka þátt. Bið svo að heilsa í bili.
Diddi
hahaha...
þið eruð öll yndisleg!!!
Post a Comment