Margrét er að kenna Kiru þýsku. Ég var að laga til í stofunni, ryksuga og þrífa baðið. Svo erum við að fara til Girhorn. Margrét á tíma þar hjá tannlækninum. Verst að spáin stendst ekki alveg. Ansi kalt og ég smá stressuð að hann fari að rigna og frysta. Svo ef þið heyrið ekkert framar frá mér höfum við líklega lent á tré. Hann hangir í tveimur gráðum, og ætti svo sem að gera það áfram, og við leggjumst bara öll á bæn. Annars allt gott að frétta. Margrét fékk voða sætan "verndarengil" frá umsjónarkennaranum, henni Frau Portale. Og blóm frá píanókennaranum. Hefur fengið eitthvað af einkunnum og þær eru hinar bestu, okkur til undrunar :) Affí og mamma að taka til í Litluhlíð. Elli vill ekki að við "fáum að vera með" þegar hann setur skrautið hans Gogga frænda upp. (sem sé Georg Jensen! ) Ég sagði að hann gæti fengið MonChere ef við fengjum að taka þátt í þessu. Hann vill þá fá einn mola fyrir hvert skraut, en þá verðum við að taka flutningabíl! :)
Ástarkveðjur og hugsið hlýlega til okkar.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Góða ferð heim og gleðileg jól!
Bestu kveðjur, Aldís
Búnar að laga til uppi í herbergunum í Litluhlið,og stofunni, samt ekki farið rosa vel í allt, þreif ekki allar bækurnar í stóru bókahillunni,og hjá pabba en á öðrum stöðum. Þú færð að skrúbba sturtuna, og pússa grerin á myndunum, kopar og silfur, og glugga ef þú nennir, he he. Mamma er enn að baka svo eldhúsið bíður. Ég verð víst að fara að byrja á jólagjafakaupum, ekki búin að komast í bæinn hvað þá meira. Voða gaman að vera með m og p í dag, allt of langt síðan ég hef getað stoppað þar. Borðaði smákökurnar hennar mömmu, sem var gott!
kv affí
Loksins laus úr því sem ekki var hægt að losa sig úr, svo sem prófayfirferð og slíkt. Og vonandi eru borgarmálin komin í pásu í bili því nú er boltinn kominn til þeirra sem eru í borgarstjórninni frá óbreyttum nefndarmönnum. Svo það eru jólakortin, tréð og slíkt sem verður farið í núna. Laufabrauðið líklega úr sögunni vegna tímaskorts okkar hjóna, en Sigyn er alveg á milljón í málefnum fyrirtækisins þessa dagana, milli þess sem hún aðstoðar hjá mæðrastyrksnefnd. Vildi alveg vera með Ella í jóladótinu í Litluhlíð. Það þarf sjálfsagt bara að setja inn á prógrammið að fara skreytingaferð norður. Við hlökkum svo til að fá Germaníugeingið á morgun.
BK. Diddi
Post a Comment