Sunday, December 7, 2008

Er komin heim í huganum.

Nenni ekki að gera neitt og set mig niður við tölvuna. Afslappelsi og kaffibolli á aðventunni :) Maður er í smá biðstöðu áður en farið verður að pakka niður í töskurnar, hlakka til!, - og þrífa húsið. Og svo getur maður aldeilis tekið á honum stóra sínum og fengið að hamast af krafti og fullur af gleði og tilhlökkun í jólastússinu heima! Það verða nú ekki slegin vindhöggin þegar við Margrét, Kristín Dögg og Aldís Dagmar mætum í tiltekt hjá ömmu, og skellum nokkrum piparkökum og öðru góðgæti í ofninn. Ég held að ég hlakki mest til að geta stjanað smá við mömmu og pabba, og gera eitthvað fyrir þau eftir allt, sem þau eru búin að gera í gegn um dagana. Mamma fær að sitja í hægindastól, lesa í bók, eða púsla. Og pabbi má segja mér sögur af dönsku famelíunni, og fræða Margréti um fyrri daga. Til hvers á maður uppkomin börn ef ekki til að láta þau stjana við sig,--ég bara spyr.
(eins gott að dætur mínar viti á hverju þær eiga von, híhíhí)
Áður fyrr máttum við aldrei gera neitt í eldhúsinu, en nú er ég orðin "viðurkennd húsmóðir" :) og það er nú kominn tími til að ég fái að búa til fiskibollurnar og sjóði kjöt í karrý! Oooo ég hlakka svo til að vera VIP, very important person, eða á íslensku- mikilvæg persóna!!!! Og svo skal sko Lilla fá að gera með mér kleinur í bílskúrnum, --ég held nú það.
Bestu kveðjur til Össa. Óskum honum til hamingju með afmælið í gær !
Nikulaus gleymdi okkur ekki. Hann gaf Margréti klút. (Fann hann víst í Vero Moda, híhí.) Bók, "Just like Heaven" og BH og loks súkkulaðijólasvein. Klaus fékk fínt deosprey og núggat. Og ég fékk tyrkneskt hunang, með súkkulaði og hnetum. Algert æði, og ætla að koma með það heim og gef góðu fólki með mér!!! Við renndum svo sem fyrr segir til BS. Byrjuðum á að fara til Ikea og kaupa vínglösin handa Danielu. Svo á jólamarkaðinn, sem var æðislegur eins og alltaf. Þrátt fyrir troðninginn. Svo skildu leiðir og Margrét fór með pabba sínum að kaupa eitthvað handa mér. Hún hefur mjög gaman af því að láta hann kaupa eitthvað. Þau eru í alvöru mjög góð saman. Ég fór að redda síðustu hlutunum. Komin heim um 8, og þá var soðið spaghetti og horft á jólamynd. Notalegt og gott kvöld. Svo var sofið lengi í morgun. Var ekki vöknuð fyrr en undir 9, sem kemur nú ekki oft fyrir.
Margrét er að lesa undir próf. Klaus að lesa "alvöru" dagblað. Keypti sér Die Zeit. Svo er hann að fara í göngutúr, og ég að hugsa um að fara með. Stillt veður og ein 4-5 stig.
Hafið það gott. Eins og Malla segir--ekki vera neikvæð, og farið í jólaskapið :) Það er svo margt að hlakka til.

4 comments:

Anonymous said...

Var að koma að sunnan, allt gekk vel og frábært að hitta ungana, Didda, þórdísi og fj, og svo var farið í kaffi til Guggu mágk, þvi Linda og fj var öll í bænum. Gaman að hittast svona, það gerist ekki oft, AD og VÖ komu líka, og allir strákar Lindu og kærustur, Sæmundur og fj og Kristjana og Reynir. Skrifa meira seinna.
kv affi

Anonymous said...

Sæl kæra frænka.
Vona að núna loksins geti ég komið kveðjunni minni inn hjá þér. Var búin um daginn að skrifa eitthvað alveg óskaplega gáfulegt en það puðraðist bara eitthvað út í loftið!
En semsagt gaman að lesa hér á blogginu þínu. Hef nokkrum sinnum kíkt hér inn. Skil vel hvað þið hlakkið til að koma heim. Gaman væri nú að geta hitt ykkur. Það gæti nú verið gaman fyrir ykkur að skreppa í smá ferð upp í sveit. Þið eru a.m.k. hjartanlega velkomin til okkar ef þið sjáið ykkur fært að koma. Eða að kannski getum við hist á Akureyri.
Vona að þið hafið það sem best og njótið vel tilhlökkunarinnar og ferðarinnar heim.
Bestu kveðjur frá Skútustöðum.
Fríða

Kristín E. said...

HæHæ.... flottar myndir af jólamarkaði. Væri alveg til í smá glögg og kleinur með flórsykri :o)
Hlakka til að hitta ykkur, vonandi næ ég að sjá ykkur smá áður en þið skellið ykkur norður.
kv
Kristín

Anonymous said...

Væri ekki hægt að gera ferð í Mývatnssveitina meðan þú ert hér og heimsækja Fríðu og heimta hjá henni kaffi? Allt of langt síðan ég fór uppeftir síðast. Bara fjórir dagar eftir af kennslu!! Mikið fjör þessa síðustu viku, síðan þarf að yfirfara verkefni oþh, en það er bara gaman. Kv affí