Tuesday, December 30, 2008

Árið að enda.

Ég verð nú að biðjast afsökunar!!! Það bara datt úr mér að óska Þorgerði til hamingju með afmælið þann 26. Elsku frænka--til hamingju og þetta verður bara betra næst :)
Takk fyrir kveðjurnar. Ég skrifa náttúrlega ekki jafn mikið og úti, enda mikið um að vera :)
Við Diddi fórum í syskina ferð í Mývatnssveit í gær. Náðum 10 bæjum, og geri aðrir betur á innan við 12 tímum!!! Veðrið var indælt, smá vindur, en bjart. Við tókum stefnuna á Stöng, og þar fengum við kaffi, kakó, smákökur og brauð. Mikið spjallað og hlegið þó að Didda hafi þótt erfitt að finna umræðuefni :) Í Skútustaði var svo haldið. Jólaljósin í Álftagerði skinu glatt, og það var mikil litadýrð hjá Gígju og Adda. Ekki hefðu Orkuboltarnir verið óhressir með það. Hjá Gerði komum við að læstum dyrum. Hún hafði frétt af okkur !!! Flúði að heiman,-- nei, hún var í Garði, og þar urðu mestu fagnaðarfundir. Áður var rétt litið við hjá Örnólfi svona til að pissa á sínu gamla klósetti :) Fékk í fyrst sinn að drekka kaffi í Skötustofunni, og ekki var meðlætið af lakara taginu. Diddi og Láki þöglir að vanda og ekki hlegið neitt að ráði. Tekin stefnan á Baldursheim. Tóta og Þura hressar og kátar. Við vildum engar veitingar enda vel södd eftir kaffið í Garði. Nóg að spjalla og Diddi fékkst til að leggja orð í belg. Kíktum inn til Agnesar, sem var að fara í vinnu, en ég er þó orðin svo fræg að hafa komið inn í húsið. Skoðuðum nýja húsið hjá Böðvari. Vildi alveg skifta við hann og fá svona risa eldhús og búr. Ekki spillir útsýnið. Sá börnin, og hitti konu hans í fyrsta sinn til að spjalla smá. Diddi öfundar hann af forstofunni, ekki furða! Þá var farið í Gautlönd. Held að ég hafi komið einu sinni á ævinni þangað. Aldrei hitt Möggu konu Sigga, og þekki hann svo sem ekki neitt heldur. Myndar fólk, og yndislegt að koma til þeirra. Hlýja og kátína i kreppunni. Dóttirin að koma frá Barselona þar sem hún lærði spænsku. Siggi með alveg eins rödd og Ásgeir, mikið var gaman að kynnast þeim öllum. Tókum svo hús á Jóka, og eftir te hjá Sigga þáðum við kaffi og kók og konfekt hjá honum. Nóg af smákökum hjá þeim bræðrum báðum. Við vorum ekki illa haldin. Sá öll 3 börnin hans Jóka, og svo kom Ingigerður úr vinnuni. Ekki amalegt að vinna í besta Sparisjóð landsins!!! Böðvar var úti á Húsavík. Hefði verið gaman að hitta hann.
Svo fórum við að trufla Fríðu við fisksoðningu í Prestshúsi. Sauð út úr og þau hjón orðin hungurmorða þegar við loks héldum út í Brekku. Við vorum að sjálfsögðu boðin í fiskinn, en vorum enn södd. Vonumst svo bara eftir að ská Fríðu og Örnólf úti þegar þau fara að heimsækja Nonna í framtíðinni. Ekki lengi farið milli Danmark og Þýskalands. Þau hótuðu svo að koma til Akureyrar, og við eigum sem sé von á þeim á næstunni, sem pabba þykir heldur verra :)
Sá tvær af dætrum Egils og vildi fá að vita hvernig hann hefði farið að því að eignast svona falleg börn! Alveg glampandi laglegar, og Diddi vill fá þær sem tengdadætur, en Leifur í Vogum er líka á þeim buxunum. Svo Diddi verður að vera duglegur að hitta Egil og dæturnar, híhíhí. Hann sendi nú myndir af Diddunum í fossi, berum að ofan, svona til að sæist í "vöðvana" Að sjálfsögðu te og konfekt. Engin kreppa í sveitinni.
Þá var haldið til Gylfa, og Auður gaf okkur rauðvín, hreyndýrakæfu og sultu. Sá öll börnin og fína nýja eldhúsið, sem gæti verið eldgamalt því ég hef ekki komið í Kristjánsmannahúsið í ótal mörg ár. Gylfi sagði að það væri svo langt til Þýskalands. Það hefði farið þangað kona fyrir mörgum árum, og ekki komist til baka fyrr en núna, hahaha. Æ, það er svo ótrúlegt að maður hitti aldrei þetta fólk, sem maður var daglega í sambandi við á yngri árum. Rifjuðum upp gömlu dagana og súkkulaðiköku hans og yndislega háaloftið.
Og svo var endað hjá Gerði, 88 ára gamalli konu, sem enn prjónar og saumar og sér mest ein um sig. Þar fékk ég nú gefna vettlinga, sem eru 5000 króna virði, og verð líklega að hengja þá upp á vegg! Hún Gerður er ótrúleg. Vildi að ég hefði þó ekki væri nema helmingurinn af kraftinum og lífsgleðinni, sem hún hefur. Já, þessir Mývetningar eru stórkostlegir.
Heim í indælu veðri. Diddi talaði í gemsann frá brúnni yfir Skjálfandafljót fram yfir Víkurskarð. Þetta var sem sé allt hið besta mál, og við bróðir og systir sæl með daginn.
Nú er Maddý mætt og mamma skammar mig. Hætti í bili. Hafið það gott.

3 comments:

Anonymous said...

Frábært að þið hafið náð góðum degi í sveitinni ;) Við erum að fara til Bjössa og co í kvöld, og komum aftur að kvöldi 1. jan. Sendi kveðjur á línuna.

Anonymous said...

Greinilega mikið fjör í sveitinni, frábært að þið systkinin skylduð skella ykkur saman :o)
Bið að heilsa öllum, eigið yndisleg áramót :D
kveðja
Kristín

Anonymous said...

Þér er hér með fyrirgefið - haha... þetta var nú bara smá djók af því þú ert alltaf svo einstaklega dugleg að muna eftir öllum afmælum!!
Þetta hefur aldeilis verið gaman hjá ykkur Didda í öllum þessum heimsóknum í sveitinni!
Hlakka til að hitta ykkur, er komin HEIM í Steinahlíðina ;)