Tíminn flýgur áfram. Þið í jólaundirbúningnum og við í heimfararstuði! Vona að þið séuð búin að baka mikið handa okkur :) Takk fyrir bréf Diddi. Vildi vera mætt til að hlusta á kórinn syngja. Nú, svo sé ég að þú sért í jólafagnaði þann 19.des. Ertu þá ekki heima þegar við komum til landsins? Eruð þið Sigyn langt fram á kvöld í skemmtun hjá Kvennaskólanum??? Það væri þá kannski betra að gista hjá Þórdísi eða hvað----? Við stefnum á að fara fyrst af öllu til Sigurðar að sjá gullmolana. Svo er spurning hvað Þórdís upptekna sé að gera. Og hvort við lítum til Þorgerðar og Möllu eftir heimsókn til Bróa??? Þetta fer sem sé eftir því hvað þið Þórdís og Diddi eruð að brasa.----, hvort við verðum sótt, eða tökum rútuna.
Nú eru Affí og Elli að fara suður á risa bílnum. Verst að þau hafa svo lítinn tíma. Geta ekki heimsótt neina ættingja þar sem þau eru að vinna í íbúðinni, og versla og snúast.
Fyrsti pakkinn kom til mömmu í gær. Vona að pakkinn til Didda fari þá að koma líka.
Arnhildur og Kristín Dögg með gubbuna. Vona svo sannarlega að það verði gengið yfir þegar við komum :) Og vona að Malla mín sé orðin þrusuhress.
Fékk mail frá Annett í gær. Hún tilkynnir að hún sé komin með mál Margrétar í VMA, og muni sjá um að hún geti mætt þar í kennslu. Við ræðum það svo nánar þegar við komum. Mikið er ég fegin. Og kærar þakkir til Annett frá okkur !
Fyrsta prófið hjá Þórdísi núna í morgun ef ég skildi það rétt. Ekki missa vitið systir sæl. Það er hægt að lifa við lægri einkunn en 9 :)
Margrét fer ekki að passa. Þau hættu við keiluspilið. Svo við mæðgur horfum örugglega á einhverja ljúfa jólamynd í kvöld. T.d. Sankta Claus í hundraðasta skiftið!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
OHHHHH ég var búin að skrifa svaka ræðu hér í gær um innanlandsflugið og það er bara gufað upp...
ég vildi bara benda á það að það er í góðu lagi að fljúga milli akureyrar og reykjavíkur. ég vann nú þarna sem flugfreyja í mörg ár og get sagt ykkur að það er sko miklu hættulegra að keyra um í umferðinni í Reykjavík en að fljúga hér innanlands. Það er engin ástæða til að óttast. Bara stinga því að flugfreyjunni ef maður er eitthvað smeykur og hún fylgist vel með manni - þarna eru góðar stelpur að vinna.
ég hefði nú ekki verið þarna í allan þennan tíma ef þetta væri hættulegt (var m.a.s. að vinna þar til ég var gengin 24 vikur með hana Birnu mína).
auðvitað getur fólki þótt ókyrrðin óþægileg en hún er ekki hættuleg (það sem er hættulegt það er ísing en það er annað mál) og svo vitna ég í flugstjórann sem sér um flughræðslunámskeiðin: " það er ekki neitt til sem heitir loftgöt" það er bara bull.
verst að ég er hætt hjá Flugfélaginu og get ekki fylgt "litlu" frænku minni sjálf!
jólakveðjur
Arndís
hæhæ fyrsta prófið búið, strembið en ég vona að ég hafi náð því. Ég er búin 16 des og hef allan heimsins tíma til að taka á móti þér og þínum og sinna ykkur keyra og bara vera með ykkur. Minn tími er ykkar.
Sæl frænka mín.
Gaman að lesa fréttirnar þínar. ekki spurning um að þetta verður í góðu lagi tek undir orð Þórdísar
Allt gott af okkur brúntertan í ofninum og jólalykt komin í húsið. Hlökkum til að fá mömmu suður sem ætlar að dvelja hjá okkur um hátíðarnar. Ætlum að reyna að vera í Pálsbæ ef veðurguðirnir lofa. Það eru hreint bestu jól sem við höfum upplifað að vera þar.
Erum á leið í 50 afmæli og Laufey Þóra táningur á leið á jólaball í skólanum!
Kær kveðja og vonumst nú til að sjá ykkur eitthvað um jólin
Geirþrúður
Velkomi í heimsókn hingað auðvitað! Gætir kannski hitt okkur systratríóið á einu bretti...
Enn óljóst hvort við förum norður um áramótin.
Sjáumst!!
Post a Comment