Alltaf allt á sama degi. Í gær átti Frau Kühle afmæli. Ég fór labbandi til hennar. 25 mín labb í kyrru, köldu veðri. Bara yndislegt. Var búin að baka heimilisfriðinn, og koma honum á einn kennarann, sem mætti til hennar í kaffinu. En ég fór miklu seinna. Kom loks í verk að skrifa Unu út af Margréti, og vona nú að boltinn fari að rúlla. Veit Annett að Margrét kemur -vonandi--í VMA? Ætli hún lesi nokkurn tíman bloggið mitt? Margrét var með báða nemendur sína í gær og þar til viðbótar vinkonu Kiru, hana Josefine. Sem var hjá mér í gæslu í gamla skólanum. Mamma hennar er "englakona", og heldur námskeið og sitt lítið af hverju.Hún er ein af þessum, sem álítur að ég sé hinn besti starfskraftur í gæslunni. Alltaf gott ef einhver heldur það :)
Hitti mömmu Kiru og sagði henni frá dvöl Margrétar í janúar. Þau eru mjög ánægð með Margréti og vilja endilega fá hana aftur þegar hún kemur. Kira sé voða spennt fyrir tímunum hjá henni. Já, það er gott að einhver sé klár.
Daniela Lischke sótti mig svo til Frau Kühle og við fórum á fund í foreldrafélaginu í þorp hér nálægt. Við erum 7 í stjórninni. Mjög hresst lið, og drukkið freyðivín og fullt af nammi á boðstólum. Var ekki komin heim fyrr en 11 í gærkvöldi. Fundir eru haldnir til skiftis hjá liðinu og ég er staks farin að kvíða fyrir þegar þau koma til mín í okkar óspennandi íbúð. Með 24 ára gömlu mublunum, og blettunum á stólunum, hálf ónýtu sófunum, og grútskítugu stólunum frá Estrid. Við vorum í gær í algjöru draumahúsi. Það er risa stórt. Maður kemur inn í opið hol. Viðarbjálakar í loftinu, og múraður arinn. Beint á móti er borðstofan og til begga hliða eru sófakrókar. Stórir gluggar og æðisleg gömlul húsgögn. Stórt eldhús---er maður nokkuð öfundsjúkur? Æ. Af og til væri ég alveg sátt við að eignast smá pening, en auðvitað myndi ég hvort sem er ekki eyða honum í mig og húsgögn svo þetta eru bara draumórar :) :) :)
Það er og verður hallærislegt um að litast hjá mér, gamalt og sjabbí og áherslan verður að liggja á lífinu, sem fer fram innan veggjanna.
Allavega gaman að hitta fólk, og geta hlegið að hinu og þessu. Frétta smá slúður úr skólanum og svo framvegis. 12. og 13. verð ég svo að vinna við jólatréssöluna frá klukkan 17 á fö., og 8-17 á laugardaginn. Það er eins gott að ég á ekki eftir að kaupa jólagjafir og baka þessi jólin :)
Jæaj. Við erum að föndra á fullu í skólanum. Þarf að ná í pappír, fara með 15 auglýsingar í búðir hér út af jólatréssölunni og best að fara að koma sér að verki.
Vona að Arnhildur og Fúsi hafi skemmt sér vel við að mála. Og að hún Kristín mín sé að verða frísk. Það er nú gaman að Fúsi skuli hlakka svona mikið til að fá grimmu tengdó að hann sé farinn að mála til að taka vel á móti mér. Allt spik og span!!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Kæra frænka. Ekki vera svona neikvæð og leiðinleg í garð íbúðar þinnar, það er ekki hollt fyrir þig að vera svona neikvæð!!! Jólaandinn er betri, hó hó hó
Post a Comment