Tíminn flýgur áfram. Við eigum bara eftir 3 nætur og þá hefst ferðalagið. Ótrúlegt. Í gær pakkaði ég í ferðatöskurnar þrjár, og það er enn pláss og ekki nærri öll kílóin samansöfnuð. En það væri líka gott ef töskurnar væru ekki of þungar svona þegar maður ferðast með lest. Veit nú samt af reynslu að alltaf safnast eitthvað saman í lokin og bætist við. Við Margrét vorum svo afslappaðar í gær að við settum mynd í spilarann þegar hún kom úr skólanum og horfðum á eina hugljúfa jólasögu. Á sunnudaginn bakaði ég súkkulaðibitakökur svona til að hafa bakað eitthvað. Þetta eru sannarlega skrítin jól svona án baksturs og hreingerninga. Svo eru bara eftir jól tvisvar með Margréti hérna í skóla. Hver veit hvar hún lendir, og hvernig okkar jól verða eftir það. Kannski ég geti komið miklu fyrr heim og tekið almennilega til hendinni. Pabbi er alveg sprunginn eftir að setja upp jólahúsin öll, og mamma bakar og tekur til hvað sem við segjum. Það er sannarlega tími til kominn að ég fari að geta aðstoðað. Að ég minnist nú ekki á að dekra smá við Arnhildi mína. En nú erum við að koma og hvað sem verður um seinni tíma ætlum við að njóta þessara jóla og taka allt í gegn sem hægt er og baka og vesenast og hlægja mikið :)
Námsmaðurinn kappsami, hún Þórdís systir, talaði lengi við mig um helgina. Ósköp gott að heyra í henni. Nú er hún í siðasta prófinu í dag. Gangi þér vel.
Frostið lætur ekki kræla á sér. Ein 4-6 stig á daginn, og 2-3 á nóttunni. Ágætt að komast til Gifhorn á morgun án þess að óttast hálkuna. Margrét þarf til tannlæknis og við ætlum að skreppa í bæinn. Klaus verður á fundi, og kemur seint heim.
Í gær kom Renate, mamma Doreenar, og sat lengi hjá mér. Við erum öll miður okkar út af fráfalli Ulli, og ætlum að safna undirskriftum á kort og mér skilst peningum til að setja í það. Og gefa Marlies. Hér er siður að fólk gefi pening til aðstandanda, sem svo eru notaðir í erfidrykkju, kransa eða annan kostnað. Mér finnst þetta góð hugmynd, og það ætti að stinga upp á því heima að fólk borgi fyrir kaffi í erfidrykkjunum. það er bara ekki hægt að ætlast til að þess að fólk fari með hunduð þúsunda í kaffidrykkju þegar erfingjar þurfa að borga útför, og allan kostnað, sem fylgir arfi, skiftingu, lögfræðingum og öllu öðru, sem fylgir fyrir utan tilfinningalega tapið, sem er jú verst. Hafi maður hlýjar tilfinningar til þess látna, getur maður nú vel aðstoðað þá, sem eftir lifa. En líklega eru Íslendingar svo stoltir að ekki komi til greina að fá aðstoð. Maður sé nú ekki svo nískur að tíma ekki að gefa kaffi. Mér finnst þetta vera misskilin gestrisni, en það sýnist sitt hverjum.
Ég sagði Renötu að við bara yrðum að hittast oftar. Maður hefði verið minntur á það að tíminn, sem við höfum saman, væri ekki endalaus.. Við gætum bara ákveðið að hittast einu sinni í mánuði því annars verður ekkert úr því. Hún vinnur fulla vinnu, og er svo sífellt í Wolfsburg hjá foreldrum sínum, og svo að pússa og þrífa þess á millli.
Jæja. Best að ég fari að pússa og þrífa. Ekki gaman að skilja allt eftir í drasli þegar annað fólk kemur til að líta eftir íbúðinni. Og líka gott að koma heim í allt tiltekið.
Hélt að ég væri að veikjast í gær. Bjó til slatta af engifertei, og drakk vel heitt. Er bara eins og nýsleginn túskildingur :)
Fann loks uppskrift. Hálfur líter af vatni, og um það bil einn cm af engiferrót, í bitum og flysjuð, er soðið í 30 mín. Ég drekk helming af þessu á móti helming af venjulegu tei. Pabbi ætti að reyna þetta. Gerir kraftaverk!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Þú mátt nú samt ekki vera sprungin eftir tiltektina heima hjá þér þegar þú kemur til mín-ég er sko búin að vera að safna drasli og rusli handa þér að ganga frá heima hjá mér svo þér leiðist nú ekki..híhí!!Hlakka geðveikt til að fá ykkur..og Kristín Dögg er að deyja úr spenningi eftir að fá Margréti sína til sín..!!
og ég líka-en skal samt reyna að einoka hana ekki! :)
Ástarkveðjur the holy pornocrapdog
Arnhildur
Ég verð hjá mömmu og pabba á morgun, þá skal ég skrifa hér inn á bloggið fyrir hann það sem hann setti í bréfið sem ekki komst til skila. Kv affí
Post a Comment