Jóladagur runninn upp, og úti þeytist vindurinn með nokkur snjókorn yfir rauðri jörðinni. Það hefði ekki verið talið eðlilegt hér á mínum yngri árum að skaparinn gæfi okkur ekki alhvíta jörð á jólum. En nú erum það við mennirnir, sem erum að verða búin að eyðileggja jörðina okkar góðu. Það er víst ekki furða þó að við höfum fengið smjörþefinn af kreppu undanfarið, og vonandi lærum við eitthvað af breyttum aðstæðum.
Ferðin okkar gekk vel þrátt fyrir mikla ókyrrð í loftinu fyrstu tvo tímana. Við Klaus vorum rétt búin að fá okkur að drekka þegar vélin fór að hendast til. Það var lítil ánægja af fluginu við þær aðstæður, en við héldum þetta út og lentum alsæl á landinu góða. Himneskt veður, snjókoma, jólaljós og gleði í hjarta. Það var haldið beint til Sigurðar Ágúst og heilsað upp á gullmolana hans. Arnaldur árs gamall, og þvílík rúsína. Ástþór að verða mikill herramaður. Eftir guðdómlega súkkulaðitertu og spjall var haldið í ljósadýrðinni til Sigynar og strákanna. Margrét fór til Þórdísar. Seint um kvöldið sótti Þórdís mig og við bjuggum til konfekt með Möllu, Þorgerði, Helgu Margréti og Hildi Valdísi. Daginn eftir var lítið gert, en við hittum þó Kristínu og Sigga smá stund með tvíburana. Það eru margir, sem við þyrftum að heimsækja þegar við komum suður eftir áramótin. M.a. Joseph og Drífa. Við vorum samferða honum í vélinni, og líklega eru komin 12 ár frá því við höfum hitt hann. En hann er ekki nokkuð breyttur, og hress að vanda.
Elli mágur sótti okkur og son sinn, hann Valdemar, sem var að klára þriðju önnina í rafmagnsverkfræði. Áttum góða ferð norður í litlum snjó, og ágætu veðri. Hér biðu Arnhildur og Kristín eftir okkur hjá afa og ömmu, og það urðu miklir fagnaðarfundir að vanda.
Svo var verið að undirbúa jólin. Versla síðustu gjafirnar, þvo og pússa. Arnhildur fékk frí milli jóla og nýárs. Vigfús vann næturvakt nóttina fyrir aðfangadag, og er í fríi til 29. Lilla hóaði í okkur í fínt kvöldsnarl. Hreindýrakæfa, laufabrauð, harðfiskur og gæsalifrakæfa (frá Sigyn), og ekki var lagt af það kvöldið. Við komum 14 saman hjá Affí og Ella í fína húsinu þeirra í mat í gærkvöldi. Skálað fyrir kokknum fyrir frábæran mat. Affí fékk möndluna! Ég svo með mitt lið til Arnhildar og þar voru teknar upp gjafir langt fram á kvöldið. Það fór eitthvað fram úr áætluninni hvað fjöldann varðaði. En þetta var nú líka mikið af mjúkum og þörfum gjöfum, og ekki drasl svona í kreppunni. Já, þetta með kreppuna! Ekki var mikið krepputal í viðskiftavinum Arnhildar á Þorlák, og líklega best að segja ekki um veltuna þar í opinberu bloggi :)
Við komum svo við í Norðurgötu undir miðnætti, og heilsuðum upp á gamla gengið. Hitt gengið var farið með þreyttar dæturnar, og þolinmóðu hollensku ömmuna, sem örugglega skilur ekki vel þetta jólahald okkar Íslendinga :) Allir sælir með sitt. Ég fór reyndar í jólaköttinn, en til hans hefur þó ekki sést :) Og líklega hafa flestir legið lengi í bælinu í morgun. Svona eins og við gömlu hjónin gerðum, en við vorum ekki komin á fætur fyrr en undir hádgi.
Í kvöld er mamma með hangiðkjöt í matinn, og mitt lið og Affíar mætir. Í þetta sinn koma ekki neinir aðrir. Við erum svo mörg að ekki komast allir að í einu, og við verðum bara að skifta okkur á milli. Maddý ætlar t.d. ekki að vera með sína víðfrægu nýársveislu í þetta skiftið.
Ég vona að þið, sem lesið þetta, hafið átt góð og gleðileg jól. Sendi ykkur mínar bestu kveðjur, og vona að þið kvittið á bloggið sama hvar á landi og í hvaða landi þið eruð.
Takk fyrir kort og kveðjur, takk fyrir allt.
GLEÐILEG JÓL.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Gleðileg jól frænka sem og aðrir. Ég fór að hugsa málið, og ég þarf ekki að hitta jólaköttinn, ég var í nýrri brók, hehehehe.
Innilegar jólakveðjur til ykkar allra í Litluhlíðinni. Get ímyndað mér að það sé gaman og fjör hjá ykkur. Mikið væri nú gaman að sjá ykkur hér í sveitinni. Örnólfur myndi með gleði hella uppá kaffi! Þið athugið málið.
Kærar kveðjur í húsið.
Fríða litla frænka.
Búin að blogga og setja fullt af myndum!! Láttu mömmu og pabba vita
Gleðileg jól :o) er hér í vinnunni að reyna að finna eitthvað skemmtilegt að gera, systur mínar og foreldrar og börnin mín og kallinn minn og mágar mínir saman í dag í þvílíku stuði í Fjallalindinni, ég var bara með í anda :S að vinna fyrir jólavisa hehehe
Bið að heilsa öllum á norðurlandinu
Engin afmæliskveðja ??? - nú klikkaðirðu alveg frænka - hehe...
Eina fólkið sem alltaf man eftir að hringja/koma eru mamma þín, Lilla, Diddi og Þórdís, en það er meira en má segja um mínar bestu vinkonur!!
Sjáumst vonandi um áramótin!
Post a Comment