Kominn 12.12. og jólasveininn mætti hingað alla þessa löngu leið. Margréti finnst hún ekkert vera of gömul til að setja upp skóinn. Það er líka einn af fáum gömlum og góðum siðum, sem við höfum hér svona langt frá alvöru jólunum heima. En askjan, sem jólasveinarnir hvíla sig í milli jóla fannst ekki í gærkvöldi. Og það var svo kalt uppi á háaloftinu að ég fór ekki í að leita. Vonandi hafa ykkar sveinar komið sér upp á vegg hjá ykkur :) Margrét fékk sykurker við fína teketilinn, sem hún fékk í vor. ( Of brothætt til að vera jólagjöf. Hún græðir á ferðinni, híhí.) Hann fór svo að snjóa í gærkvöldi, og úti er himneskt veður. En alveg í frostmarkinu.
Takk fyrir kveðjurnar. Hresst lið, sem skrifar! Hvernig var það--er Kristín E. að vinna þegar við komum, og er hún vanalega í þessari konfektgerð með Þorgerði og Þórdísi? Við erum nefnilega að plana að setja Klaus í rúmið og gera konfekt þegar við erum búin að fara til Sigurðar Ágúst og hitta gullmolana. O hvað ég vona að ég megi knúsa Arnald þetta hrikalega sæta barn. En kannski hann sé ekki mikið fyrir að láta ókunnugar konur dúllast í sér. Diddi og ég ákváðum í gær að við Klaus gistum hjá honum, og Margrét hjá Ástu. Það eru þó nokkrar líkur á því að Þórdís komi norður milli jóla og nýárs og við sjáumst örugglega líka eftir jólin. Hvað verði með að ná í okkur á völlinn er óklárt, og eins og þið vitið er það alls ekki nauðsynlegt. Við Margrét förum báðar í klippingu og litun á Akureyri. Maður fer bara straks að eyða og spenna!
Frétti af rosalegu hvassviðri í gær, og að Eyþór væri á ferðinni. Einn með belju í bílnum. (dauða!) Vona bara að allt hafi gengið vel hjá honum.
Allir pakkar komnir og mikið er ég fegin því. Mamma að syngja á fullu og drekka kaffi þess á milli. Svo eru tónleikar hjá henni og Lillu, sem ég get farið á milli jóla og nýárs. Verst að geta ekki farið á tónleika hjá Didda. Og Maddý--Emblurnar voru víst æðislegar. Og hjá Þorgerði.
Við erum hér í rólegheitum að þvo og þrífa, versla í matinn, elda og allt þetta vanalega. Margrét í prófi í gær, fer í eitt í dag. Susanne mágkona ætlar að líta inn eftir hádegið með gjafirnar til okkar. Fer svo til BS og tekur síðustu gjöfina frá okkur með. Allt að smella. Nema hvað ég pantaði of fáar myndir til að setja í jólabréfin, og eitthvað þarf að redda því.
Þarf svo að mæta í undirbúning fyrir jólatréssöluna í Leiferde klukkan fimm. Ergilegt að tveir dagar fari í þetta. Og allra verst að þurfa að mæta klukkan 8 í fyrramálið. Þetta fólk er ekki normal.
En nú er bara vika í að ég hitti normala fólkið, og mikið verður það yndislegt :) :) :)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Hei, er ég þá ein af normal fólkinu??? Ég er ekki viss um að þær í vinnunni minni séu sammála því!!! Ég hef tekið þátt í konfektgerð og Kristín líka, líst vel á þetta konfekt plan ;) Kv. Malla
Hér er fallegur jólasnjór og vonandi endist hann fram að jólum. Það er þó ekki sennilegt.
En mig langar til að nota þetta fjölskyldutorg til að segja ykkur frá skemmtilegum atburði í Ráðhúsinu í dag. Þá verður Samkórinn minn með opna æfingu og allir geta komið og sungið með kórnum. Ég hefði mjög gaman af því að sjá sem flesta af ættingjunum og fá ykkur til að taka þátt í þessu með mér. Og ég veit að hún systir mín í Þýskalandi hefði verið fremst í flokki ef hún hefði verið á svæðinu.
Klukkutíma söngskemmtun kl. 15 í dag er eitthvað sem allir hafa gott af. Bestu kveðjur.
Diddi
Aldrei verið talin alveg normal heldur, en takk fyrir þetta :)
Hlakka til að sjá ykkur!
Post a Comment