Monday, September 22, 2008

Frábært veður um helgina.

Í dag er kaldara. Spáð rigningu. En því hefur oft verið spáð án þess að spáin hafi rætst. Miðað við Ísland er líklega vel hlýtt, en okkur er kalt :) Það var hins vegar himneskt veður um helgina. Sól og blíða. Sennilega síðasti dagurinn, sem við höfðum verulegt sumarveður. Klaus lét tala sig til að fara í buxnaleiðangur til Gifhorn á laugardaginn. Keypti þær fyrstu, sem hann prófaði. Voða flottar svartar, í gallabuxna stíl. Margrét var heima að vinna verkefni. Er að hamast við að skrifa skýrslu um vinnuna hjá Mövenpick. Og átti að túlka kvæði og sitt lítið af hverju. Á sunnudaginn tókum við Klaus törn í vinnuherberginu. Loks var skrifborðið þrifið. Glugginn pússaður og gluggatjöldin þvegin. Þurfti að sauma uppábrotið á þeim því ég var bara búin að setja flísilín, sem var straujað á. En það bara tollir ekki. Læt ykkur sem sagt heyra þetta ef þið skylduð líka kaupa gluggatjöl hjá Ikea með svona lausn fyrir lengdina. :)
Svo saumaði ég nýjan klemmupoka. Gerði við saumsprettur. Það var sem sé gert hitt og þetta. Mesta afrekið var að við fórum öll þrjú í 40 mín göngutúr í laugardagsblíðunni.
Merle kom áðan í enskutíma. Ég fór svo á pósthúsið með garnið til mömmu, sem fór ofan í smá pakka til Kristínar Daggar. Það verður því komið innan skamms.
Hvað er Arnhildur að taka um foto-eitthvað og mynd af mér? Er hún að setja grínmyndir af gömlu konunni :) Getum við ekki komist inná þessa síðu? Já, hún var flott á myndunum. Hún er með svo flottan munn. Get víst ekki sagt að hún hafi hann frá mér. Já, áfram í litrík föt og mála varirnar :)
Hvað var svo gert um helgina? Var kaffi hjá liðinu í höfuðborginni? Og eru þau gömlu enn fyrir sunnan? Verð líklega að fá Ástu til að skrifa á bloggið eftir að Þórdís er á kafi í náminu:)
Fór enn til tannlæknis í morgun. Núna er þetta loks að lagast. Þurfti ekki nein verkjalyf um helgina. Fer aftur á fimmtudaginn. Er miklu betri í maganum eftir að ég fékk þessi lyf. Nokkurn veginn hætt að ropa á kvöldin.
Bestu kveðjur frá Vorfeldweg á byrjandi hausti, og fyrsta músin komin í gildru á háaloftinu.

4 comments:

Anonymous said...

Gott að tannstandið er að lagast. Jafn gott að þið takið nú einu sinni ærlega til heima hjá ykkur, veitir örugglega ekki af ( þið bloggvinir.. hefðuð bara átt að sjá allan skítinn hjá henni í sumar he he he JÓK!) Nei þú ert dugnaðar forkur og vissulega talsvert öðruvísi að eiga við tiltekt í hita,raka og pöddum. Förum suður um helgina, get ekki beðið að sjá grísina aftur. Kv affí

Anonymous said...

Ó já, 20 manna kaffiboð með alles hér í gær. Mikið mikið hlegið skal ég segja þér...
Diddi að stjana við e-a dani svo honum var ekki "bjótt".
Höfum kaffiboð fyrir þig þegar þú kemur næst, lofa því!
Var líka með 16 10 ára stelpur hér á föstudagskvöldið í ´80 partýi í tilefni afmælis Helgu Margrétar í sumar. ABBA-lögin spiluð hér fram og til baka og búningarnir hjá stelpunum allgjör snilld. Hildur málaði þær sem vildu og Helga var með túberað hliðartagl! Þarf endilega að koma myndum til þín sem fyrst...

Anonymous said...

Allt gott að frétta hér, nema að EHF var slæmur af asma og Sigyn fór með hann til læknis. Fékk heljarmeðferð og er mun betri. Ég á kafi í Dönunum, Þingvallaferð í kulda og strekkingi og aðeins ringingu allan sunnudaginn, en Gullfoss/Geysir í dag. Matarboð hjá okkur á sunnudag fyrir þá og 3 kennara úr Kvennó + pabba og mömmu, mjög gaman. Aftur i gærkvöldi heima hjá einni, nema auðv. ekki þau gömlu. Annars var helgin stíf, Emma þrítug (hans Óskars), berjamór og réttarferð + kórpartí. Vikan stíf með Danina og tónleikar á föstudag. Og svo skal það verða bústaðurinn í afslöppun. Ekki vitað hvenær þau gömlu fara norður.
B.k.Diddi

Anonymous said...

Ætla bara að vona að þú sért með gildru sem veiðir grey mýslurnar lifandi takk...þín Arnhildur