Monday, September 29, 2008

Frábær september.

Aftur og aftur fáum við himneskt veður. Helgin var bara frábær. Vorkenni ykkur heima í rigningunni. Vona að það verði frekar snjór og kalt en rigningarslydda. Affí jú búin að dreyma snjóinn :) Klaus klippti niður hekkið við veröndina. Hann tók það alveg í nefið. Og núna bíður mín rosa hrúga til að binda saman áður en þetta verður sótt í nóvember. Svo var grasið slegið og rakað. Dauð blóm klippt af. Uppgötvaði að brjálaða skrautgraskers plantan mín er búin að vaxa upp í jasmintréð mitt, og það héngu tvö grasker utan á trénu. Frekar fyndið.
Vorum að taka herbergi Margrétar í gegn. Taka niður flugnanetið, og þrífa það. Þvo gluggana, ofninn og rúmið. Sett hreint á rúmin öll, og gluggarnir í baðherberginu voru pússaðir. Þvottur, og þvottur. Sumarsængurnar þvegnar og settar í kistuna. Svona eru haustverkin hér á bæ.
Margrét var slöpp um helgina. Þetta vanalega, sem fer illa með okkur konur. Hún var boðin til Doreen í afmæli, en var ekki lengi. Var ekki sérlega hrifin af nýja herberginu hennar, sem er í bleiku og með veggfóðri með munstri. Væri eitthvað fyrir Maddý! Hún lauk við skýrsluna um Mövenpick, og kláraði heimaverkefnin. Tók annars lífinu með ró.
Ég tók líka til í eldhúsinu, og bakaði tvenns konar muffins. Skrapp á hjóli til Frau Kühle með nokkur stykki og skilaði henni bókum. Fékk te hjá henni, og aftur nokkrar bækur.
Gott að pabbi og mamma eru komin heim og að allt gekk vel. Þau hittu allavega þó nokkuð af fólki. Þó að þau hefðu getað verið enn duglegri.
Margrét hringdi í systur sína í gær. Kristín Dögg í sumarbústað, og allt í besta lagi. Skelfing gott að Maddý sé að lagast eitthvað á sinninu:), skil vel að þú sért fúl að geta ekkert gert.
Jæja. Held að ég fari að strauja og halda áfram að taka til. Og láta mig dreyma um stórt eldhús og arin :) Ekki furða að Svanhildi dreymi líka. Þau þyrftu að fá stærra húsnæði, en þetta er ekki gefið heima í bili. Er ástandið etthvað að skána, eða versnar enn með fleiri krísum í USA? Kannski þeir fari að hugsa útí að þetta kefi sé bara ekki í lagi. En einhvern veginn á ég ekki von á góðu. Og ef Obahma vinnur fell ég í yfirlið. Það væri allt of gott til að vera satt.
En batnandi mönnum er best að lifa :)

1 comment:

Anonymous said...

Mig dreymir bara um að kanínan og hænurnar geti þrifið búrin sín sjálf!! Og hananú(sagði hænan og lagðist á bakið..)
Ég eyddi helginni í að þrífa heima hjá mér-og éta nammi og glápa á sjónvarpið! Þetta var fín helgi!
Kveðjur frá Pornohündchen Arnhildur