Thursday, September 25, 2008

Einar í kotinu.

Klaus fór í gær fyrir kaffi til Bochum, og gisti þar. Kemur aftur í vköld. Margrét notaði tækifærið og svaf í mínu bóli :) Ég svo á fætur klukkan hálf sjö til að fara í sturtu og borða. Var farin af stað til Gifhorn til læknis fyrir 8. Allt lítur vel út með örið eftir aðgerðina í vetur. Bólgan alveg gengin til baka. Reyndi að skilja hvað þetta hangandi segl væri--engin orð í orðabókinni mínn um það. En þetta er sem sagt "Hängende Scheidenwand" Það hangir einhver Vagina-veggur, sem þrýstir á blöðruna, og er á leið niður. Ýtir sem sé öllu draslinu niður á við. Samt var aðgerðin í Berlin ekki til einskis, en hann hefði þurft að taka meira, sniff, sniff. Það er alveg klárt að þetta verður að skera í burtu. En liggur ekki mikið á, nema hvað þetta er til óþæginda. Fékk tilvísun til læknis í BS Salzgitter, sem á að vera sá besti á þessu svæði. Eftir að vita hvað hann segir. En líklega fer ég ekki í þetta um jólin. Ekki gott að fara í flugvél rétt á eftir. Helst að bíða í 3 vikur. Og þá gæti ég nú alveg eins beðið fram að páskum. Ömurlegt þegar maður er einhvers staðar í burtu og Klaus heimsækir mig í hálkunni. Vesen, vesen. Þið vitið ekki hvað þið eigið gott að vera bara á Akureryi eða í Reykjabvík með alla hluti. Ekki að þeytast um allar trissur eins og hér.
Er að fara til tannlæknis. Var með verki alveg frá því hún setti nýtt í á mánudaginn. Er að verða talsvert leið á þessu.
Fór í gær í skólann fyrir 10 og lagaði til í skápnum mínum. Svo tók ég eina hjólaskorpu eftir kaffið. Eins gott að halda sér í formi :)
Veðrið var ljómandi í gær, en í morgun er svo þoka og kaldur vindur.
En hvað um það. Maður bara klæðir sig vel. Takk fyrir skrifin. Alltaf jafn gaman að heyra frá ykkur. Bestu kveðjur frá uppskurðar Áslaugu :) :) :)

3 comments:

Anonymous said...

Æi elsku Mutter mín! Já ég t.d. veit mjög vel hvað það er gott að eiga góða fjölskyldu nálægt-og fyrir sunnan. Diddi, Þórdís og Affí hafa nú öll hjálpað mér mikið, og ekki er verra að hafa ömmulöngu rétt hjá sér sem er alltaf tilbúin að redda manni!
Það getur verið ósköp gott að hafa alla ættingjasúpuna í kringum sig, og þegar þið komið um jólin verðurðu umvafin ástríkum ættingjum sem kaffæra þig næstum af alúðleika og kærleik, og þú getur verið fyrir sunnan líka eins og þú vilt-ég fæ bara Margréti lánaða á meðan..híhí!
En elsku mamma, hugsaðu bara til jólanna með bros á vör...neðri vör..undirhöku..þín eldri dóttir og rugludallur Arnhildur

Kristín E. said...

HæHæ.... bara aðeins að kvitta fyrir innliti :o) svolítið þreytt eftir mikla vinnutörn undanfarið, vann í 18 tíma síðasta miðvikudag, svo í 23 tíma á laugardag og aftur í 18 tíma í gær :S fyrir utan 8 tíma dagvinnu nema daginn eftir svona vakt :S
Blogga þegar um hægist... á að vinna í 22 tíma á mánudag og svo kemur smá hlé
kv
Kristín... sem bíður spennt eftir að fá útborgað!!!

Anonymous said...

Nú er ég aftur komin í samband.Hann Gummi minn(sonur Guðnýjar Erlu)bjargaði okkur.ER laus úr gifsinu en að drepast í hendinni,það hlýtur að lagast.Má ekki vinna næstu þrjár vikur!! Aumingja Einar því ég er svo geðvond.Það er svo lítið sem ég get gert sem er slæmt fyrir hálf ofvirka kellingu.Kveðja til allra.Magga móða.