Föstudagur og klukkan að verða 4. Í morgun fengu þýskir krakkar miðsvetrareinkunnir, og nú er löng helgi framundan. Engin gæsla í dag þar sem skólum lauk klukkan 11. Fór samt á fund 11.15 þó að mér sé ekki skylt að mæta á þá alla. Alltaf gott að fylgjast með.
Stillt veður, og frekar kalt. Búin að þvo og þurka skyrtur, og strauja þær svo. Gott að það sé búið. Var að heyra í Margréti, sem er hin hressasta. Fannst voða gaman á ballinu, og var ekkert óhress þó að hún týndi Ástu af og til . Það komu hressar stelpur og drifu hana í að dansa við sig þó að þær þekktu Margréti ekki. Svo þessum íslensku unglingum er ekki alls varnað!
Ásta þarf mikið að læra um helgina og Þórdís líka. En samt ætlar Þórdís með Margréti til Möllu. Svo ætlar Margrét að hitta Aldísi, og þær Ásta ætla í bíó. Eftir að heyra í Didda og hitta strákana. Og svo langar Margréti mikið að rölta smá í kringluna. Spurning hvort Kristín eða Malla eða Hildur gætu farið með henni þar sem Þórdís þarf að læra. Ekki held ég að Diddarnir væri spenntir fyrir búðarrölti, híhí. Já, þá er þessi dvöl að verða búin.
Arnhildur saknar systur sinnar sárt. Enda allt annað að koma heim þegar einhver tekur á móti manni með brosi og knúsi. Við verðum að reyna að finna út úr komandi sumri og hver veit nema Margrét komi bara aftur til ykkar.Ég þarf sennilega í þennan uppskurð, og geri þá varla mikið með henni. Og svo er spurning hvað Arbnhildur fari að gera þegar hún missir vinnuna í vor, eða byrjun sumars. Hvort hún sé hvort sem er atvinnulaus, og geti etv. komið hingað. Nema hún þurfi að mæta vikulega til að sækja atvinnuleysisbætur. það er margt, sem spá þarf í. En við skulum vera bjartsýn.
Sótti Klaus í gærkvöldi á lestarstöðina. Hann var hress með ferðina og fór m.a.s. í göngutúr í klukkutíma í miðbænum. (að sjálfsögðu ekki inn í neina búð )
Hafið það gott, og njótið helgarinnar.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Hæ frænka og takk fyrir síðast! Kerfið á að virka þannig að maður mætir einu sinni í mánuði og meldir sig líka einu sinni í mánuði á netinu vegna atvinnuleysibótanna en þar sem hálf þjóðin er á bótum núna þarf maður ekki að mæta (amk hér í RVK), bara melda sig á netinu. Spurning hvernig það verður í sumar... Allt gott hér, ég er orðin eins og hvalur :) farin að bíða... bestu kveðjur
Við vorum í bústað um helgina, fórum um 17 á föstudag og komum núna í kvöld. Hef því ekkert séð Margréti. Bústaðarferðin var æði, fengum svo gott veður á laugardeginum að það var engu líkt, kíktum á Gullfoss og Geysi og lágum þess á milli í pottinum. Bjössi og Gunnhildur komu svo á laugardagskvöldi beint í mat með liðið sitt og þau gistu. Þetta var skemmtileg helgi ;)
Post a Comment