Mamma var að tala við mig. Þórdís gat reddað miða á ballið með Ástu. Svo mitt hálf þýska barn fær nú að fara í fyrsta sinn á skólaball. Slíkt og þvílíkt þekkist ekki hér. Spennt að frétta hvernig henni líki það. Vona að Þórdís taki myndir og setja á bloggið, PLASE! Mikið er ég ykkur öllum þakklát fyrir að hugsa vel um hana. Ekki síst Arnhildi minni, og líka Fúsa, sem hugsaði vel um Möggu mágkonu. Það er eitt sem víst er að hún mun hlakka til að koma aftur. Kannski það verði hægt að fá smá sumarvinnu handa henni í sumar ???
Klaus fór í morgun til Oldenburg hjá Bremen. Gistir þar í nótt. Ég fór til tannlæknis klukkan 8 að láta hreinsa tennurnar alveg sérstaklega vel því ég var komin með snert af paradontose, sýkingu í tannholdi. Kostar "bara" um 70 evrur þessi tæpi klukkutími. En ég á nú alvöru pening :):):)
Aftur fréttir frá Íslandi í fréttatímanum klukkan 4. Sagt frá aukningu ferðamanna til landsins og sýnt hvar verið var að kaupa, og baða sig í Bláa lóninu. Sem sagt góð auglýsing í dag.
Gekk rosalega vel í vinnunni í dag. Var með tannstöngla og leir. Setti leirkúlu ofan á tannstöngul, og lét hann standa á borði. Spurði hvað myndi gerast ef ég sleppti honum--hvernig við gætum byggt eitthvað úr þessu, sem ekki hryndi um koll. Krakkarnir bjuggu til ótrúleg verk, og voru alsæl og önnum kafin. Vantaði bara myndavél, en fæ vél skólans á morgun. Það er SVO gaman þegar maður getur komið þeim til að vinna af kappi, og full af ánægju.
Ein mamman hringdi í mig til að staðfesta að strákurinn hennar ætti að vera í hópnum hjá mér. Hún er alveg yfir sig hrifin af mér--kannski ég sé bara ansi góð á þessu sviði--fer bara að bera nefið hátt :) Æ, gott ef einhver segir að maður sé í lagi. Við þurfum öll á kvatningu að halda, ekki satt. Og ættum að hugsa oftar út í það að hrósa öðrum, og ekki bara gagnrýna.
Ég er allavega voða ánægð með ykkur sem fjölskyldu--!!!!
Mér var hundkalt í morgun, og lengi fram eftir. Sauð mér engiferte, og hitaði hænsnasúpu. Svo tók ég herbergi Margrétar í gegn. Allt fínt þar. Ætla svo að fara með sængina mína niður og sitja framan við imbann og gera ekki neitt meir!!! Saknaðarkveðjur ykkar ofurbarnapassari :) !
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Gott að heyra að þú sért farin að skilja að hrós til þín eru alvöru hrós :D
Mér finnst þú allavegana afskaplega dugleg með börnin í gæslunni þinni, svo uppfinningasöm og sniðug í að finna eitthvað skemmtilegt fyrir þau að gera :o)
Og nú styttist í Margréti þína, frábært að hún skyldi komast á íslenskt skólaball.
Ja ég á bara ekki til orð-farin að geta tekið hrósi!- ekki seinna vænna mín kæra systir. Já héðan úr klakalögðu norðurlandi er bara enn ekkert merkilegt að frétta, svo bara kveðjur héðan frá okkur gamla einmanna barnlausa parinu..
-Affí
Þetta var erfiður skilnaður hjá okkur systrunum, sérstaklega því maður veit ekki alveg hvað það er langt í að við hittumst aftur...núna er engin Margrét sem tekur á móti mér brosandi þegar ég kem heim úr vinnunni og knúsar mig. Hennar er strax sárt saknað, sérstaklega af Fúsa sem þarf að vaska upp sjálfur núna!! Dögg hefur haft lítinn tíma til að sakna Margrétar sinnar þar sem hún er farin að æfa fimleika tvisvar í viku, og svo er dansinn tvisvar líka í viku!!
Saknaðarkveðjur Arnhildur núna bara hálfur pornodogggg
Post a Comment