Thursday, January 15, 2009

Happy Birthday Sweet Sixteen

Elsku Margrét mín---- innilega til hamingju með daginn!!!!!!! Þá ertu komin á þennan fræga aldur og ekki langt í að þú verðir fullorðin. Ekki er langt síðan ég var að snúast með þig litla. Þú vildir endalaust fara á leikvöllinn og renna þér, eða vera í stóra sandkassanum utan við húsið. Ég las endalaust sögur og við sungum allan daginn. Ófá flugin, sem við fórum í, og djöldum heima í sveitinni hjá stóru systir, og svo ferðirnar til Danmerkur í sumarbústaði, þar sem þú varst alsæl með eld í arni og handavinnu. Að þið Arnhildur skuluð vera góðar og velgerðar manneskjur er það besta sem mér hefur hlotnast. Velgengni ykkar er það mikilvægasta í mínu lífi og ég efa ekki að flestir myndu taka undir þá ósk að allt gangi börnum þeirra í hag.
Enginn silfurhlutur, engin skemmtisigling, engin risa villa kemst nálægt því að vekja jafn mikla gleði og lítið barn, sem bræðir okkur með brosi og faðmlagi.
Takk ástin mín fyrir alla gleði, sem þú hefur veitt mér og fyrir þolinmæðina við gömlu mömmu, sem er alltaf jafn hissa að þú skulir enn nenna að fara með mér á kaffihús og í ferðir þrátt fyrir að þú sért nú orðin sweet sixteen! :)
Eða er það kannski Visa kortið, sem gerir útslagið,-- híhí.
Allavega vona ég að þú eigir góðan afmælisdag. Skilst að meiningin sé að þú farir á kaffihús með ömmu og Lillu og svo sé stefnt á keilu og pizzu. Góða skemmtun.

Takk fyrir kommentin, og líka myndina frá Affí. Ég ætla að panta eftir henni. (myndin, sem stendur í stofunni hjá Affí, tekin í stúdentsveilsu Valdemars)
VILJA einhverjir fá mynd líka?? Ég skal gefa hverjum sem vill eintak. Þetta er svo fín mynd af fjölskyldunni.

Ég hef það aldeilis gott. Ekkert stress að fara snemma á fætur. Klukkan er 8-9 þegar ég kem mér í gang. Maturinn er dósamæs og ristað brauð, híhí. Engin stelpa, sem kemur glorsoltinn úr skólanum.
En þetta verður tómlegt til lengdar og við hlökkum auðvitað til þegar Margrét mætir heim.
Veðrið sýndi aðra hlið á sér straks á þriðjudaginn. Skýjað og dimmt. Í gær var þoka og frekar ömurlegt veður. En klakinn fer að hverfa. Tók eina törnina enn í gær á stéttinni.
Fundur í gærkvöldi hjá stjórninni í foreldrafélaginu. Ein tók mig með, en bað mig að labba út á aðalgötuna, sem ég auðvitað gerði, til að stytta henni ferðina. Það tók mig um korter að labba en hefði tekið hana svona tvær mínútur að aka Vorfeldveginn. Svona týpískt þýskt :)
Það var bara gaman að hitta þessar hressu konur og einn kall. Næsta törn er kaffisala þegar foreldraviðtölin fara fram 9. og 10.feb. Og svo frétti ég að skólastjórinn okkar ætti afmæli sama dag og Ássý, þann 23.2. Hún verður 50 ára. (ég sem hélt að hún væri miklu eldri en ég :))
Mætti með fína trefilinn frá Sirrý og vettlingana frá Gerði og vakti bæði mikla hrifningu.

Jæja. Vona að Klaus komi snemma heim í dag og geti sett nokkrar myndir inn á bloggið af Margréti. Ergilegt að skannarinn sé bilaður. Kannski Klaus ætti bara að reyna að gera við hann. Það tókst vel þegar hann loks reyndi að laga plötuspilarann, sem var bilaður i ein 2-3 ár.

Hvernig er það--fer Diddi akkurat á Þorrablótið þegar þær systur ætla suður--um þar næstu helgi?????

8 comments:

Anonymous said...

Til hamingju með dótturina. Þetta lið vex úr grasi áður en maður veit af. Mjög ósennilegt að við förum nokkuð á þorrablót svo óþarfi er að hafa áhyggjur af því svona fyrirfram. Hér er allt við svipað og venjulega, vinna, fundir og fleira í þeim dúr. Bjó til indælis gúllassúpu í gær - ekkert dósajukk og brennt brauð hér á bæ!!! Nei, njóttu þess að vera án Margrétar á sama hátt og þú nýtur þess þegar hún er hjá ykkur. Hafið það sem best. Diddi

Anonymous said...

Ég treysti á að hún Margrét líti inn á síðuna í dag og sendi henni okkar bestu afmæliskveðjur! Mér þykir alveg rosalega stutt síðan við heimsóttum ykkur til Meinersen rétt eftir að Margrét hafði orðið tíu ára!!!!! Já svona líður þetta og það þarf enginn kvíði að fylgja því að sjá svona myndarlegar dætur vaxa úr grasi. Það er gaman að þær geti notið dagsins saman þær systur í dag með ættingjum fyrir norðan. Kæru hjón í Meinersen, til lukku með dótturina og njótið þess að vera tvö í kotinu.

Bestu kveðjur, Svanhildur og co

Anonymous said...

...rétt skal vera rétt! Margrét var víst nýorðin níu ára þegar við komum í heimsókn!! Kv. Svanhildur

Anonymous said...

Til hamingju með dótturina!! Kíki aftur inn og tékka á myndum síðar í dag eða á morgun. Sá á facebook (þar sem maður allt sér - hehe...) að þær systur ætli í keilu í kvöld, verður gaman hjá þeim!

Kristín E. said...

HæHæ.... var búin að skrifa eitthvað voðalega fínt en allt datt út :S

En allavegana... til lukku með elsku litlu Margrétina ykkar... það er ótrúlegt að frændsystkinin 3 verði 16 ára á þessu ári (og ég eldist ekkert heheheh).

Njótið lífsins tvö saman :o) bið að heilsa Klaus

Anonymous said...

Innilega til lukku með afmælið Margrét, og stoltu foreldrar innilega til lukku líka ;)

Anonymous said...

Innilegar hamingjuóskir með þessa frábæru dóttur þína:) Satt segirðu nú ... báðar dætur þínar eru nú svo stórkoslegar!!! :) Þær eru líka rosa glaðar að hafa þig sem mömmu ...
Love you bestasta mamma
Þín dóttir Margrét
( Oh my GOD, ég er 16!!! )

Anonymous said...

Innilegar hamingjuóskir með þessa frábæru dóttur þína:) Satt segirðu nú ... báðar dætur þínar eru nú svo stórkoslegar!!! :) Þær eru líka rosa glaðar að hafa þig sem mömmu ...
Love you bestasta mamma
Þín dóttir Margrét
( Oh my GOD, ég er 16!!! )