Laugardagur. Sólarlaust og smá gola. En ekki frost. Í gær snjóaði það mikið að ég fór að ýta með snjósköfunni og sópa þegar ég kom úr vinnunni. Asnaðist á bílnum því hann fór að rigna þegar ég ætlaði á hjólinu. En svo breyttist það í snjó. Ég drullusmeik að keyra bílinn á sumardekkjunum, en hafði það af. Eruð þið ekki stolt!!! Beið þar til allir voru farnir úr skólanum og engir krakkar, sem ég myndi keyra niður ef ég skransaði, híhí. Og ók svo á 20 heim -þessa löngu leið :)
Alveg ný reynsla að aka í snjó. Tja, maður getur etv. meira en maður heldur.
Þið eruð kannski búin að frétta að pabbi datt út af á fimmtudagskvöldið. Þetta er nú i þriðja skiftið á nokkrum árum, sem það líður yfir hann. Og ekki hefur fundist ástæða fyrir þessu enn. Vona bara að þetta komi ekki fyrir aftur, og ekki síst þegar hann er að keyra. Það er ekki það versta að stofna sér í hættu, heldur það að stofna öðrum í hættu. En ekki geri ég nú ráð fyrir því að þverhausinn hann pabbi fari að hætta að aka út af smá yfirliði, ó nei.
Frétti svo að Þorgerður væri komin norður i afmæli. Hefði gengið vel. Og núna eru þær dætur mínar að aka suður. Kristín Dögg fór ekki með. Ætlar endilega á fimleikaæfingu og er líka með smá hita. Svo Fúsi er bara í pabbahlutverkinu um helgina.
Hér kom tilkynning á texta neðst á sjónvarpinu--eins og oft þegar mikilvægar fréttir koma--að Geir Haarde væri búinn að segja af sér og kosningar yrðu í maí. En mér skilst nú að þetta sé ekki alveg svona einfalt. En að hreyfing sé komin í málin. Vona það og kannski þá fari að koma ró á í miðbænum.
Jæja. Best að fara að gera eitthvað. Ætlum í göngutúr á eftir. Svo þarf ég út í búð.
Hafið það gott, og njótið helgarinnar.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Jaja, dagurinn byrjaði á líkamsrækt kl 10, svo í smá heimsókn til m og p, svo heim að vinna verkefni fyrir skólann, svo að mótmæla, svo i PÖNNUKÖKUR til mömmu ( það var samt pabbi sem var veikur), og svo heim að vinna meira, svo elda, svo horfa á fréttir og svo á netið. Sem sé alltaf nóg að gera. Náði ekki einusinni að kveðja Margréti, en heyri bara í henni áður en hún fer af landi. Pabbi allur að hressast. Kv affí
Dugleg að keyra bílinn í snjónum :o) rétta ráðið er einmitt að fara ekki hraðar en svo að maður geti bremsað :D
Vonast til að hitta dætur þínar áður en þær fara aftur norður/erlendis
kv
Kristín þreytta eftir næturvinnu :þ
já... og Geir Haarde sagði af sér af því að hann er með krabbamein í vélinda og svo sagði Björgvin viðskiptaráðherra af sér í morgun... virðist reyndar vera að því til að afla sér vinsælda fyrir næsta prófkjör og næstu kosningar, sem sagt ekki alfarinn :S
Ferðin gekk vel, skemmtilegt fertugsafmæli en við drifum okkur suður strax á hádegi daginn eftir svo ekkert varð úr frekari heimsóknum. Gott hljóð í þorrablótsliðinu í sveitinni.
Post a Comment