Var að tala við Hildegard. Hún er búin að ganga frá flugi til Íslands. Hörður reddaði því öllu. Það kom í ljós að flugið er nokkuð ódýrt, og Hannelore ákvað að koma líka. Þær eru eitthvað smeikar að þetta sé kannski ekki í lagi, en ég fullvissaði þær um að alla hlakki til að sjá þær. Og það eru tvö tóm herbergi hjá pabba og mömmu, nóg pláss fyrir farangur tveggja í svalaherberginu, og nýja rúmið nógu langt handa Hildegard.
Og hér er svo planið. Flugið er þann 13. febrúar frá Berlin. Þær gista eina nótt á Hótel Sögu. Fljúga svo daginn eftir, sem sé 14.2., til Akureyrar, seinni partinn. (nánari tímasetning seinna til pabba ) Svo langa þær að gista á Akureyri í 4 nætur. Sem er þá 14.,15.,16.,17., og fljúga suður seinni part þann 18. Og svo er flogið aftur út þann 19., eða föstudaginn viku seinna.
Reyndar var Hildegard að tala um að þær hefði einn og hálfan dag í Reykjavík, sem passar ekki alveg. En hún er að skrifa pabba og segja honum frá planinu.
Þær langa mikið að fara upp í Mývatnssveit, og spurðu hvort rúta gengi ekki þangað og hvort hægt væri að gista í Hótel Reynihlíð. Ég reikna nú með að ekki sé rúta á vetrum ?, en það fer svo auðvitað eftir færð og öðru hvað þær gera. Og einn bíltúr--náttúrlega með Láka--hvað annað--í sveitina væri líka örugglega fullkomið!!! hahaha.
Þið finnið nú út úr þessu, og hafið tíma til að þrífa og baka áður, hahahaha.
Takk fyrir komment Maddy mín. Gaman að heyra að stelpurnar voru svo indælar við Margréti. Verst að hún skyldi ekki bara vera meira hjá þér. En hún gæti auðvitað farið aftur í heimsókn til ykkar. Er jú ekki bundin af neinu þannig. Fær maður ekki mynd af ykkur Lillu i fínu gömlu kjólunum!
Ekki varð nú mikið úr vonda veðrinu í gær. En var samt leiðinlegt. Við fórum með allt dótið upp á háaloftið og ég gekk frá í skápana. Klaus vann við að gera nýtt forrit, sem ekki gekk upp. Svo tók ég baðið í gegn, og svefnherbergið. Eldaði snitsel--getur einhver kennt mér að steikja snitsel þannig að það verði ekki eins og skósóli--, og var með baunir og góðu sósuna, sem við fundum þegar Affí var hér í sumar.
Svo var krimmi. Og klukkan tíu aftur enskur krimmi með Barnaby, sem ég kann vel að meta. Og svo er aftur kominn mánudagur og Klaus þurfti að skafa vel af rúðunum i morgun. En hann er kominn upp fyrir frostmark, og er að nálgast 4 stig.
Hafið það gott, og njótið lífsins.--------------
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Hæ hæ allt fínt að frétta frá okkur hér. Ég er búin að vinna næsta föstud.kl þrjú þannig að við getum lagt snemma af stað og já ég veit-við fylgjumst grannt með verðuspá og færð á vegum!!!!!! Og svo er ég búin að redda mér fríi á mán og þri. Við fórum í gær á þvæling og Margrét gat nú fundið sér smá fyrir afmælispeninginn sinn, t.d. Gray´s Anatomy seríu 1. Og við fórum á Bláu Könnuna í hellings snjókomu og fengum okkur kakó og eplaköku, nammi nammm....
Dögg gisti hjá vinkonu sinni á lau.nótt og við systurnar eyddum góðum tíma í Playstation 2 og að spila-ekki leiðinlegt það.
Ástarkveðjur Arnhildur pornodogg númer 1
Smá kvitt frá mér, nýkomin úr vinnunni og alveg að sofna :S en það er bara svona hehehhe
Gott að veðrið varð ekki eins slæmt og spáð var.
Jæja, þá er loksins líka búin að lesa öll blogginn þín. Púff! Það var mikið. Dugleg kona að skrifa svona mikið!
Bara allt fínt að frétta frá mér. Hlakka rosa til að hitta allt fólkið í Reykjavík :) Svo er svoleiðis gaman að vera með Arnhildi í vinnuni hennar !!! Skemmti mér ekkert smá! Ég er bara orðin pornodogg númer 2 :) :) :)
Bið að heilsa öllum.
Margrét pornodogg númer 2
Hahaha... þetta er góður skóli fyrir Margréti, kemur fróð til baka!!
Ég verð á leiðinni norður í fertugsafmælisveislu hjá Siggu vinkonu, við mætumst sennilega á leiðinni. Vonandi að hálkan verði ekki mikil!
Post a Comment