Sunday, January 4, 2009

Á nýju ári.

Kominn 4. janúar, og ekki eftir margir dagar hér á landinu góða. Við höfum það gott, og veðrið er yndislegt þó að maður sakni nú hvítu ábreiðunnar, sem áður fyrr huldi jörðina. En í staðinn þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af ferðum fólks, sem er hið besta mál. Nú eru flestir farnir, sem dvöldu um áramótin. Valdamar fer á þriðjudaginn. Og í dag er svo mikið fjölskylduhóf hjá Birnu frænku þar sem jafnvel danskir ættingjar eru mættir. Væri ekki verra að vera komin, en hér bíða nokkur verkefni, og þessir fáu dagar duga varla til. Enda ekki verið mikið gert annað en sofa og borða og spjalla.
Á morgun þarf að fara í "passa-ferð". Passi Margrétar fer að renna út og er þar að auki með gamalli mynd. Svo þarf að ath. um verð á rútuferð suður og bera saman við leygubíl. Taka til í skápum Kristínar Daggar og fara í gegn um það hvað við getum tekið með aftur út af dóti Margrétar. Kanna heimilishjálp fyrir mömmu. Skreppa í Byko, sem er búið að vera lokað í tvö skifti þegar við ætluðum að kíkja á jóladót á útsölu og slíkt. Einnig að líta á útsölur, og kannski kaupa föt á hagstæðu evrugenginu. Maður skammast sín að vera að græða í kreppunni, en svona er það nú.
Maddý fór nú með þessa vonlausu frænku sína í fatakaup, og við fundum buxur og topp. Hún lét mig ekki kaupa buxur í nr 44 eins og ég hefði örugglega gert þar sem mér finnst ég alltaf svo feit, híhí. Gott að hafa hana í svona:) Og svo er að fara með Annett í VMA til að sýna Margréti hvar hún fari inn, hvar úr strætó og skipuleggja smá skólann. Alveg eftir að kíkja til Affíar í ró og næði, og skoða myndir úr ferðunum þeirra undanfarin sumur, og svo er ég ekki búin að hitta neinar vinkonur hér í bænum.

Í gær var kvöldkaffi í Norró. Við fórum fyrst með köldmatinn, sem ég bjó til niður í Ránargötu til Arnhildar. Rækjuréttur með hunangssinnepssósu og ristuðu brauði. Svo ætluðu þau í bíó, en uppselt. Kannski það gangi betur í kvöld. Þar er verið að fara í tölvuleik og Singstar og njóta síðustu verulegu fríhelgarinnar. Í fyrradag var hin fínasta veisla hjá Maddý. Hún skifti niður ættingjunum, og tók þetta í hollum :) Enda vorum við 24 í geira mömmu, og hin voru, held ég, ein 15. Það var æðislegt hangikjöt, kalt svínakjöt eins og í bókum eftir Enid Blyton :), og kalt pate, svínalund í hakki. Já, ekki amalegt, og marensterta í eftirmatinn. Diddarnir mættu svo til að spila annað kvöldið í röð. Við mættum í spil á nýársdagskvöldið eftir að fyrra "hollið" var búið að borða. Margréti þótt ansi sorglegt að horfa á eftir frændum og frænkum sínum aftur suður. Og nú er búið að skipuleggja að hún fari suður um síðustu helgina áður en hún flýgur út og fari í skólann með Ástu og Didda. Fúsi er í fríi þessa helgi og þau fari þá öll suður. Sé veðrið sæmilegt. Þau neita að hringja í mig þegar þau koma niður úr brekkunni fyrir ofan Húnaver, og ætla bara ekki neitt að segja mér hvenær þau fari af stað!!! Æ, maður hefur nú alltaf áhyggjur þegar verið er að ferðast að vetrarlagi.

Við hittumst á kaffihúsi á afmæli Affíar, sem ekki var með afmæliskaffi, enda hefði það ekki verið tekið í mál eftir allar veilsurnar, sem hún hélt fyrir okkur um hátíðarnar. Við vorum alls 14 á Bláu könnunni, og það var bara æðislegt. Svo löbbuðum við Klaus heim í blíðunni. Höfum gert of lítið af því, enda er dagurinn svo stuttur þegar ekki er farið á fætur fyrr en undir hádegið.

Áramótin voru æðisleg. Margrét var alveg í skýjunum með alla þessa frændur og frænkur, rakettur, og innibombur. Bomburnar frá Arnhildi vöktu mikla lukku. Best að segja ekki í bloggi hvað var í þeim :) Við, bara 6, borðuðum kalkún, sem hún og Fúsi elduðu, og jólagraut, sem ég sauð í Litluhlíð við mikla kátínu mömmu og Þórdísar. Hann þótti eitthvað þunnur og minna á súpu, en var sko fínn! Fúsi fór svo í hátíðarbúninginn og á vakt eftir kvöldmatinn. Var ekkert smá glæsilegur, þessi tengdasonur minn og þau Arnhildur tóku sig vel út saman. Við renndum svo til Affíar í fjörið eftir skaupið og brennuna. Brennan var barasta æðisleg. Logn og úrkomulaust. Ótrúlegur mannfjöldi, og frábær flugeldasýning á eftir. Elli mágur vann við að skvetta olíu á bálið. Held að þeir séu vitlausir! Ekki hefði verið leyft að halda svona samkomu í Þýskalandi nema með slökkvilið og sjúkraliða, og líklega hefðu þeir ekki sagt já og amen við gusunum á bálið!!! En þetta var sem sé frábært.
Mikið fjör hjá Affí. Krakkarnir voru úti að skjóta upp til korter yfir eitt. Heim var farið um klukkan 3. Og allir dauðir úr þreytu daginn eftir :)

Mig minnir nú að Hildur frænka eigi afmæli í dag--ekki í gær, en get alveg verið að skrifa eitthvað rugl eins og afmæli Þorgerðar, sem ég veit vel að sé 25.des. Stundum seinheppin eins og þegar ég var að segja eitthvað við þau í Steinahlíðinni um konu, sem "kútventi"--hahaha.

Sem sé Hildur mín--til hamingju með daginn!!!!!!!! Sem er líka afmælisdagur sona Mik og Birthe.

Drífa var að hringja í mig. Þær ætla að halda saumaklúbb á fö.kvöldið, svo ég fæ að sjá þær þessar gömlu vinkonur. Þið ath. það þá frænkur mínar að ég er upptekin það kvöld.
Gaman væri að hittast allar t..d bara í hádegis-hitting eins og sagt er nú á dögum, því kvöldin eru jú bara 3 og þið oft uppteknar, eða ?. Stefnum á að koma á fimmtudaginn. Pabbi með þar sem hann er að fara til læknis. Fer örugglega ekki neitt að skoða silfur!!! Og mamma örugglega ekki sorgmædd að vera hér í kyrrð og ró.

Klaus lagstur í bleyti, ég búin að þrífa baðherbergin og moppa gólfin. Mamma farin að púsla og er í essinu sínu. Klaus var að kenna pabba að setja myndir á tölvuna og senda í pósti. Svo við höfum komið ýmsu í verk í dag! Eftir að setja myndir á bloggið. Kemur að því.

Gleðilegt ár-- enn og aftur. Þrátt fyrir kreppu og harðindi. Gleðilegt ár.--------------

4 comments:

Kristín E. said...

Gleðilegt ár kæra frænka :o) Skemmtileg lesning um góða tíma á Akureyri, hefði alveg viljað vera með en það verður bara seinna, átti hér yndislegar stundir með minni litlu fjölskyldu :D
Bið að heilsa öllum í Litluhlíðinni.

Anonymous said...

Elsku Áslaug.
Það hefur aldeilis verið fjör hjá ykkur um áramótin.
Takk fyrir afmæliskveðjuna, ég var með kaffi á könnunni og fólk var að koma í dag og kvöld í heimsókn.

Pabbi þinn þyrfti að heimsækja
m og p ef hann er að koma suður, sjá nýju íbúðina.

Bestu kveðjur Hildur.

Anonymous said...

Takk fyrir skemmtilega samveru á Akureyri - sjáumst vonandi hér sunnan heiða líka!
Flottar myndirnar!!

Anonymous said...

Elsku Áslaug.
Gleðilegt nýtt ár. Kærar þakkir til ykkar systkina fyrir innlitið til okkar um daginn. Það var svo gaman að sjá ykkur þó ekki stoppuðuð þið lengi. Verður bara meira næst!
Það hefur því miður ekki unnist tími til að skreppa til Akureyrar síðan löngu fyrir jól. Og þið á leið suður og út aftur. Best þykir mér að sjá og heyra hvað þið hafið notið Íslandsferðarinnar og augsýnilega haft nóg að gera við veisluhöld og að hitta vini og vandamenn. Óska ykkur góðrar heimferðar og heimkomu og að þið hafið það sem best á nýju ári öll sömul
Kærar kveðjur frá okkur.
Fríða "litla frænka þín"