Við flugum út á sunnudaginn 12.1.. Flug og ferðir gengu vel. Ekki var mikið sofið um nóttina að venju, en þar sem svefnfarir voru hvort sem er ekki í lagi munaði ekki um eina vökunóttina til eða frá. Diddi ók okkur að rútunni. Við tókum Lynn, mömmu Annett með, en týndum henni svo í flugstöðinni. Þótti miður að geta ekki kvatt hana. Hún bauð okkur í heimsókn þegar ég sagði að Margrét vildi endilega fara í ferð til Hollands, og hver veit nema við tökum hana á orðinu. Að minnsta kosti að kíkja til þeirra í stutt innlit þó að við förum nú ekki að leggjast upp á fólkið.Nú.-- Þeim tókst að brjóta haldið, sem nota á til að draga minni ferðatöskuna með, og Klaus þurfti að bera hana. Eins gott að það var sú gamla því hún var orðin eitthvað skökk og lokast ekki jafn auðveldlega og fyrr. Við reyndum ekki að fara með hana til að fá bætur því við vildum ekki missa af lestinni. Frankfurt er hræðilegur völlur. Maður kemur á Terminal 2, þarf með rútu að Terminal 1, og það tók sinn tíma að bíða eftir henni. Leiðin bara verulega löng. Löng bið eftir töskunum í þetta sinn, og það mátti svo sem ekki miklu muna að við næðum lestinni.
7 stiga frost þegar við lentum, og snjór um allt.
Hér heima í Meinersen tók Frau Kühle á móti okkur og ók okkur heim á klakanum á Vorfeldweg. Botlanginn ein klakabreiða. Gangstéttin ekki betri, og ég reyndi að skafa og höggva í gær, og aftur í dag. Nú er komin hláka og ein 4 stig hiti svo þetta fer að þyðna.
Allt var í besta lagi í íbúðinni. Klaus tengdi heita vatnið aftur við, og það var æðislegt að fara í bað eftir þreytandi ferð. Nágrannarnir komu stuttu seinna heim eftir ferð til Harzfjallanna og komu með lyklana. Ég gaf þeim konfekt fyrir hjálpina, en annars keypti ég ekkert í Fríhöfninni.
Og svo tók hverdagsleikinn við í gær. Klaus fór í vinnuna, og ég að taka til. Fara upp með jólaskrautið, sem ekki var mikið, en nóg samt. Þvo þvott, og strauja fyrstu skyrturnar. Fara í gegn um póstinn, sem kom í gær. (létum geyma hann á pósthúsinu) Tveir fullir pokar af bæklingum, reikningum og nokkrum kortum. Stofan enn á hvolfi, en þetta smá lagast.
Krakkarnir tóku vel á móti mér í vistuninni. Fékk mörg faðmlög. Kennararnir tóku eftir því að ég væri komin með nýja klippingu, og hrósuðu henni mjög. Allt við það sama og allt í besta gengi. Klaus kom fyrir 5 úr vinnunni, og við renndum í búð á ná í matvæli. Hér var allt vel tómt.
Marco og Carolin, sem búa hér við botlangann, fluttu til Spánar á sunnudagskvöldið. Þau verða þar í eitt ár eða þar um bil. Enn er sem sé nóg að gera hjá VW, en þar vinnur Marco. Það var víst grátið mikið þegar kvatt var.
Ekki var mér hlátur í hug þegar ég kvaddi dæturnar, en maður er víst farinn að verða vanur þessum aðskilnaði. Hann tekur alltaf smá part af hjartanu í mér, og skilur eftir stein í staðinn. Það væri mín heitasta ósk að geta verið oftar með Arnhildi og Kristínu, og þurfa ekki að skilja við þær svona lengi í einu. Og það hlýtur að fara að koma að því. Það var bara yndislegt að vera með þeim og ykkur öllum.
Þetta voru yndisleg jól, og verða okkur kær í minningunni. Þakka ykkur öllum fyrir, sem tókuð þátt í því að gera þessi jól sem skemmtilegust. Takk fyrir allar kveðjur, samverustundir, og hlýjar hugsanir.
Ekki tókst nú að hitta alla, sem ég ætlaði að sjá í Reykjavík, og ég hringdi ekki einu sinni í alla. Mér þykir það leitt, og það var ekki af því að ég hefði ekki áhuga á því, en tveir dagar eru ekki langur tími, og voru þétt setnir.
Hildur mín, Geirþrúður, Anna Þóra og aðrir, sem ég ekki náði í--- það verður bara næst.
Aldís Dagmar hafði engan tíma, sem var sorglegt. Ætlaði að fá hana með mér til Sigurðar, en kannski hún bara skreppi með Margréti þegar hún fer suður. Sáum allavega Valdemar, sem kom í kvöldmatinn til Þórdísar á laugardaginn. En gátum ekki séð íbúðina þar sem hann var á hraðferð á leið í bíó. Sem sagt bara næst. Og hver veit nema við sjáumst bara í sumar. Það er nóg af verkefnum til að vinna heima. Komst aldrei í bókaútgáfufyrirtæki, ekki reddaði ég heimilishjálp, hvað þá að ég kæmist á háaloftið, eða með bókakassa á Amtsbókasafnið. Og--- og--.
En ég hitti marga í þessari ferð. Við gistum hjá Didda og Sigyn, sem dekraði við okkur með t.d. heimabakaðri pizzu, úr speltmjöli. Fórum til Guðbjargar og Sverris. Sáum Sverri Pál líka, nema í MH. Og kominn í kórinn! Hittum Birnu, Veigar, Sólveigu og Arndísi, með fínu bumbuna, og þetta ægilega skemmtilega barn, hana Birnu Rún. Fórum til Sigurðar og Svanhildar, þar sem Svanhildur var búin að baka hjónabandssælu handa mér, minnug þess að ég óskaði mér í sumar að vera komin í kaffið til hennar þegar Diddi og fjölskylda heimsóttu þau á Nesinu og fengu Hjónabandssælu eina verulega góða! Fórum til Sirrýar, og hittum þar Björgu, með fína kúlu, og Gummi kom heim í hádeginu. Sirry gaf mér þetta líka forláta sjal eða trefil, sem hún bjó til sjálf úr ull og silki. Það leikur nú allt í höndunum á henni eins og handavinnan bar vitni, sem lá þarna. Sirry er komin með einn hlut, sem ég öfunda hana verulega af. Þau keyptu sér borð, sem hægt er að lengja í 4 metra! Algjörlega æðislegt. Það verður í draumaíbúðinni minni! :) Svo fór pabbi með mig til þessa fræga Sigmars, sem stækkaði giftingarhringinn minn, og tók báða fermingarhringina til að stækka. Fór í búðarrölt með Þórdísi í Kringluna. Hitti svo Ássý heima hjá Didda. Fór í saumklúbb með þýsku vinkonunum, sem eru allar bráðhressar og ekki deginum eldri eða slappari en áður fyrr. Sá syni Drífu, og kom í fyrsta sinn í íbúðina eftir að þau Joseph tóku við henni af foreldrum Drífu. Nú, og svo var endað á stuttri heimsón, sem hefði mátt vera miklu lengri, hjá Þorgerði þar sem þær systur voru, og verulega glatt á hjalla. En maðurinn min þurfti að sofa fyrir flugið, og okkur var ekið heim í háttinn.
Þetta var nú ansi gott. Finnst ég hafa komið miklu í verk, ekki satt.
Í gær talaði ég við Margréti. Hún var hress eftir fyrsta daginn í VMA. Vona að hún verði það áfram, og ekki efa ég að hún muni bjarga sér alveg án mömmu :) :) :)
Jæja. Þetta er nú orðið gott í bili. Hafið það öll sem best og takk fyrir kveðjurnar síðustu dagana á blogginu. Takk fyrir okkur, og hafið það sem best. Það er gott að eiga ykkur öll að !!!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Elsku systir. Þá er vissulega hversdagsleikinn tekinn við, og kominn vetur í þokkabót. Margrét að fíla lífið hér heyrist mér og allt í lukkunnar velstandi. Frábærar myndir frá jólunum, var ekki búin að skoða neitt síðan fyrir áramót, vissi ekki hvað þú hafðir afrekað að setja inn hjá pabba. Alltaf sami dugnaðurinn hjá þér. Sendi þér í e-mail studentsmyndina og eina ,,góða" af okkur gömlu systkynum. Kv affí
Takk fyrir okkur, það var hrikalega gaman að hitta ykkur... vona að ég nái að hitta Margréti aðeins áður en hún eltir ykkur til Þýskalands.
Njótið nú lífsins tvö í koti, þrátt fyrir að þið saknið Margrétar, Arnhildar og Kristínar þá er þetta ágætis æfing fyrir ykkur hehehe ýmislegt hægt að gera barnlaus (þó barnið sé að verða unglingur hehe)
Bið að heilsa Klaus
ps... var að setja inn fullt af myndum á barnanetið
kv
Kristín E.
Sæl frænka og takk fyrir síðast, það var voða gaman að sjá þig loksins!! Birna Rún var voða hrifin af þér og ykkur öllum bara líka :)held áfram að fylgjast með hér og svo færðu að sjálfsögðu fréttir þegar eitthvað fer að gerast í mars!! kær kveðja, Arndís
Takk sömuleiðis fyrir síðast, gott að ferðin gekk vel.
Hér var spilað og sungið fram eftir nóttu, hittumst alltof sjaldan!!
Hafið það gott hjónin barnlaus, viss um að Margrét hefur það gott á Akureyrinni.
Gott að sjá að allt var í sóma heima í Meinersen. Vildi bara segja að okkur þótti verulega gaman að því að hafa ykkur hérna og að fá að snúast með þig í heimsóknum. Ferðin okkar í Mývatnssveit verður mér lengi í minni. Já systir, þú varst virkilega dugleg að sjá fólk í þessari ferð eins og ég vissi að þú gætir. Þetta er vísbenging um hvernig þetta getur orðið í næstu skipti. Og svo til lukku með litlu stúlkuna þína - klukkan er komin framyfir miðnætti hjá þér ekki satt.
Bestu kveðjur - Diddi
Til hamingju með dótturina. Hitti hana á kaffihúsi með Kristinu, mömmu og Lilli, skrapp bara rétt inn til að óska henni til hamingju með daginn og færa smá glaðning. Hún er svo hress og dugleg, ekki vandamál með nokkurn hlut. Vildi að allir væru svona röskir og með góða yfirsýn.Ykkur hefur tekist ótrúlega vel með hana þrátt fyrir allt ( he he ). Saknaðarkveðjur, affí
Post a Comment