Tuesday, January 20, 2009

Sólskin.

Hann splæsti á okkur sól í dag. Fór næstum upp í 6 stiga hita. En þar sem hitinn á Akureyri er um 4-5 stig þykir ykkur það ekkert mikið, eða :) Hringdi í þau gömlu í dag. Mamma blessunin eldaði kjöt í karrý á sunnudagskvöldið fyrir liðið, og svo eru víst fiskibollur á morgun. Ekki amalegt að hafa eina ömmu til staðar. Og yngri dóttirin komin á fullt í framleiðslunni :) Orðin P.2. (sjá kommentin :)) Gott að allir eru hressir. Var að lesa bréf frá Danielu. Hún var að snúa öllu við í oggopínupons íbúðinni , og er að ná sér eftir að hafa hellt sjóðandi tei ofan á sig á laugardaginn. Fékk blöðrur á magann, ekki gott. Enda eldhúsið svo lítið að ekki er hægt að snúa sér við án þess að rekast í eitthvað. Ritter hringdi í gær. Hann verður sjötugur um miðjan mars. Við Klaus erum boðin til hans laugardaginn 13.3. Hann fræddi mig á því að Weimann, sem var yfirmaður í Fotogrammetrie þegar Klaus byrjaði þar, hefði látist í september. Maður fær ekki fréttir af slíku á sama hátt og heima þar sem allir þekkja alla.
Er enn að vinna við uppskriftasafnið. Einhverja dellu verð ég að hafa. Ekki safna ég silfri:)
Krakkarnir í gæslunni alveg á fullu við að búa til "teppi", svona ofna búta með pappa og garni. Kenndi þeim í dag að flétta pappírsvafningum á blað með klipptum raufum. Þau unnu eins og fullorðin. Gaman þegar krakkar hafa áhuga á einhverju.
Vona að klakinn á vegunum bráðni sem fyrst hjá ykkur og að liðið mitt komist heilt á húfi suður og aftur norður. --Er alveg til í að borga rútu og flug---þið veljið öruggustu farartækin þegar þar að kemur. Æ, þessar mömmur :):):)

1 comment:

Kristín E. said...

Hér er um frostmark.... 1-2 gráður í dag og frost núna....
Þær systur eru alveg öruggar saman í bíl, myndi frekar vilja að þær færu keyrandi en með rútu :þ
Hlakka til að hitta þær, vonandi báðar :D