Monday, January 26, 2009

Hrím.

Mánudagur og allt hrímað úti. Frost síðust tvær nætur. Vaknaði með Klaus í morgun klukkan 7, og skóf bílinn og setti hitaflöskur í gluggann. Þvotturinn blaktir í frostinu, sem er nú reyndar ekki mikið.
Ferðin hjá dætrum mínum gekk þrusuvel. Arnhildur er fyrirmyndar bílastjóri. Þær gistu svo eina nótt hjá Þórdísi, og voru eftir því, sem ég best veit--engin komment á blogginu- hjá Didda í gær. Spent að frétta hvernig Margréti líkar tilveran í borginni.
Við Klaus fórum í gönguferð báða dagana um helgina. Í gær var sól, næstum logn og bara yndislegt. Svo tókum við skurk í geymslunni niðri. Færðum ísskápinn og skiftum á plássi við þurkarann. Ég var svo fram að kvöldmat að gera hreint og flytja til og endurraða í geymslunni. Kláraði svo í morgun. Ekki oft, sem ég nenni að taka allt fram úr hverri hillu, og þrífa kongulóarvefina og gat náð þremur kongulóm, sem gera þá ekki fleiri vefi, hehehe.
Var að setja kaffið, sem Þórdís gaf mér, í dallinn. Held að píanókennari Margrétar verði ánægð að fá kaffi með Grýlukaffi-blandi. Hún er voða hrifin af því.
Gott að Þorgerður er komin aftur heim án hrakfara. Maður er feginn hverri vetrarferðinni sem fer vel. Og gott að heyra að liðið, sem fór á þorrablótið í Skjólbrekku sé hresst. Mamma var líka mjög ánægð með þorrablótið hjá kórnum. Vildi að ég hefði verið komin í pönnukökurnar hjá mömmu ásamt Affí. Vöfflur hjá Þórdísi--þið eruð svo myndarlegar.
Flott að stjórnin sé að falla. Voru virkilega 6000 manns í friðsamlegum mótmælum á laugardaginn? Þetta er sífellt í fréttum. Látið heyra frá ykkur.---- Bless og hafið það gott.

1 comment:

Kristín E. said...

HæHæ....
já það voru víst 6000 manns að mótmæla á laugardag :o) og allt gekk vel, enda eru mótmælendur farnir að standa skjaldborg um löggurnar til að ekki sé ráðist á þær :D
Ég var að vinna og hef því miður ekki enn farið að mótmæla, skammarlegt :S

Annars er stjórnin fallin, spurning hvort samfylkingin hafi viljað losna við Davíð eða hvað??? Geir segir að samfylkingin hafi viljað forsætisráðherra og hann hafi ekki tekið það í mál.

Nú er spennandi að fylgjast með framhaldinu, ansi margir biðja um þjóðstjórn (sem ég bara veit ekki alveg hvað er hehehe) eða sameiginlega stjórn allra flokka (kannski er það þjóðstjórn, nei held ekki :þ)

Allavegana spennandi tímar á Íslandi, ekki spurning. Borgar sig að horfa jákvætt á þetta og vera ánægður með að breytingar séu framundan :D