Friday, January 16, 2009

Föstudagskvöld.

Orðið dimmt og kólnandi úti. Fysta vinnuvikan fljót að líða. Klaus kominn í bað og lætur fara vel um sig eftir annríki fyrstu daganna. Svo er það föstudagskrimminn, og bók á eftir. Annars er ég að sortera uppskriftirnar mínar, sem eru ansi margar. Skrifa upp og setja í möppur. Lagði stofuborðið undir þetta. Gott að fara í gegn um þetta í ró og næði. Og eflaust get ég hent einhverju.
Margrét var "mjög sátt" við myndavalið okkar, híhí. Eða það skilst mér. Gat ekki stilt mig um að setja horror myndirnar, sem Doreen tók af henni eftir að hún var búin að setja gullþynnur á hana og hvaðeina. Spúkí. Annars finnst mér dætur mínar alltaf fallegar. Svo ég er ekki góð í að velja myndir.
Það var víst farið á Bláu könnuna. Affí gaf Margréti húfu með löngu skotti, og hægt að vefja því utan um hálsinn. Lilla og Jonni peninga og kannski hún kaupi sér skyggnishúfu, sem hún var búin að sjá. Afi og amma voru búin að gefa henni hús, og svo "gamlan" bíl, og loks silfurkross. Hver trúir!
Frá Susanne fékk hún DVD, mynd með frægum þýskum leikara. Ferlega fyndin mynd. Og litlu gerðina af himnesku systrunum. Daniela og Ramona gáfu henni pennaveski með mynd af High School Musical, en hana vantar nú ekki beint slíkt. Hver veit nema KD fái það þá bara. Doreen gaf henni einhvað í þrívídd, með texta um vináttu milli þeirra tveggja. Örugglega sniðugt. Og við gáfum henni úr. Það er búið að vera erfið fæðing því henni hafa ekki líkað nokkur úr fram að þessu. En féll svo fyrir einu frá Skagen, dönsku úri, sem við sáum í bænum fyrir jólin.
Og svo var víst farið út að borða a Greifanum í gær og í keilu. Hef ekki enn frétt neitt af því þegar þetta er skrifað, en var örugglega gaman.
Takk fyrir að gera henni daginn ógleymanlegan þið öll - !

4 comments:

Anonymous said...

Heyrðu við gáfum henni nú líka gjafir..á ekkert að segja frá því!! Hún systir mín fékk sko gjafabréf uppá 16 krónur í Adam&Evu takk fyrir!
Og hún getur notað það eftir 2 ár. Það var gaman í keilu og rosa góðar pítsur á Greifanum étnar, og svo tekin nokkur spil um kvöldið. Gaman gaman gaman...þín Arnhildur

Anonymous said...

Mér heyrist að Margréti leiðist ekkert mikið hér á klakanum he he, og komin með gjafabréf frá forfeðrum okkar, gerist ekki betra! Er búin að koma bakaríinu mínu í gagnið, þ.e. búin að setja brauðvélina í búrið og bakaði bæði í gær og í dag- verst að Elli fyllist allur af lofti við þetta brauðát svo það er illveranlegt í sama herbergi og hann!! rómantíkur jólasnjór yfir öllu núna, en endist líklega ekki lengi því það er farið að hlýna aftur. Kv affí

Kristín E. said...

kvitti kvitt.... er á netflakki, nenni ekki inn í rúm að sofa hehehe

Anonymous said...

Hæ ég er að vinna til þrjú í dag og svo ætlum við systir mín á smá búðarrölt um bæinn og í BT og fleira..því miður missum við af mótmælagöngunni í dag en þetta er nú síðasti laugard. hennar hérna á Akureyrinni..tíminn er búinn að líða ALLTOF hratt!! Algjört svindl...
kveðjur Arnhildur meistari of the plasting machine og número únó pornodogg