Thursday, January 22, 2009

Seint á fætur.

Fimmtudagskvöld og helgin nálgast. Hringdi í þau gömlu og frétti af stormi, sem von sé á fyrir norðan. Þetta er nú meira veðrið eftir að mönnunum tókst að skemma veðurfarið. Vonandi komast allir á Þorrablótið, og dætur mínar svo suður á morgun. Hér var allt hrímað í morgun og fram undir hádegi. Skiftist á frostlausar nætur og aftur nætur með frosti. Við Klaus horfðum á hressilega gamanmynd í gær og næstum grétum af hlátri. Algjör della, en góðar hugmyndir. Svo kom ég mér ekki fram úr fyrr en undir 9. Þá var hringt í mig. Ég steingleymdi tímanum hjá tannlækninum. Hún bað mig að koma eftir 3 korter, og ég náði að fara í sturtu og koma mér á hjólinu í tæka tíð. (Bíllinn pikkfrosinn.) Það mun kosta um 750 að fá þessa brú. Skelfilega dýrt að fá eitthvað, sem er svona nauðsynlegt og maður getur ekki annað er látið gera. Það er að segja -- ég klúðraði þessu nú þar sem ég fór ekki til tannlæknis í eftirlit 2007, og detti niður eitt ár, tekur sjúkrasamlagið ekki þátt í kostnaðinum af stórum aðgerðum. Bara ef maður fer hvert ár. Þetta var árið, sem ég var skorin upp tvisvar, heima í fermingu Margrétar og sitt hvað annað í huganum en regluleg tannhirða.
En við þessu er sem sé ekkert að gera.
Í gær kom Frau Kühle. Hún vann fram eftir degi við að skrifa upp einkunnir. Við fengum okkur kaffi og smákökur. Alltaf um margt að spjalla.
Svo hringdi Renate, mamma Doreenar. Þær eru búnar að liggja í flensu, og vera reglulega veikar. Fyrir skömmu hitti Renate Söndru, sem bjó hér, og frétti að Joy væri aftur kominn til hennar eftir að hafa búið með pabba sínum um tíma. Hún fær ekki borgað meðlag og Olaf er víst stunginn af og fer huldu höfði vegna skulda. Þvílíkt.
Vona að þið séuð dugleg að mæta á mótmæli og haldið ykkur bara aftarlega. Hér er verið að sýna frá mótmælunum, og fylgdu þau ummæli að líklega væri ástandið ekki svona slæmt hefðu Íslendingar verið í Efta. Hver veit.
En þið þraukið þetta nú eins og annað, og farið með taupokana eins og Malla, og klípið af paprikunni :) :) :) Það koma betri dagar.

2 comments:

Anonymous said...

Hæ hæ hér er skítaveður í orðsins fyllstu merkingu: rok, rigning og hláka-svell allsstaðar og kraftaverk að Margrét sé ekki búin að detta og hálsbrjóta sig...híhí!!

Anonymous said...

þetta komment var í boði Arnhildar....