Kominn sunnudagur og hann farinn að hvessa. Ekki sérlega góð spá fyrir næstu daga. Hitinn um 4 stig undanfarna daga, og loks er síðasti klakabletturinn að hverfa af stéttinni. Dætur mínar sendu okkur fínar myndir af liðinu í keilu og fleiru. Voða gaman að sjá þær. Arnhildur náttúrlega stór móðguð :) að ég skyldi gleyma aðalgjöfinni, nefnilega gjafabréfi frá Adam og Evu upp á 16 krónur. Að vísu getur Margrét ekki verslað í búðinni fyrr en eftir tvö ár, og fær ekkert fyrir 16 krónur :) Já, þær eru hressar þessar stelpur. Á svo eftir að frétta af búðarrápinu í gær. Margrét, Kristín og vinkona Kristínar voru í graut hjá Lillu í gær. Margrét vissi ekki að Siggi átti afmæli--hér með okkar bestu afmæliskveðjur til Sigga Jóns !!!!!
Maddý gaf nöfnu sinni líka pening, og með hann í vasanum og Visa kortið, hlýtur hún að hafa getað verslað í gær! Nú eru bara eftir 5 virkir dagar fyrir norðan. Margrét eitthvað í vandræðum með að fara í skólann í fyrstu tímana þar sem strætó fer ekki um Norðurgötu fyrr en eftir 8. Og svo langar hana í stærðfræði og íslensku tíma. Vona að hún komi sér í það að spjalla við Annett.
Eftir að ég kom út hringdi Frau Grube í mig. Hún var einkaritari í háskólanum. Þau ætla að bjóða okkur í mat í febrúar. Mjög hress hjón og synd að sjá þau allt of sjaldan. Og í morgun hringdi Maria Gremmler í mig. Hennar maður vann í verkstæðinu í háskólanum. Þau eru oft búin að bjóða pabba og mömmu til sín, og koma hingað líka. Síðasta ár var ekki beint áfallalaust hjá þeim. Það var ekið á hana þegar hún var að hjóla. Hún hruflaðist mikið á hné. Og braut hendina, en það uppgötvaðist ekki fyrr en 5 vikum seinna. Svo hrinti hundur manninum hennar um koll. Yngri sonardóttirin blandaði sér í slagsmál þegar ráðist var á vin hennar í strætó, og henni var hent út úr strætó með þeim afleiðingum að hún fótbrotnaði og er í hjólastól og þarf að láta aka sér í skólann. Fer að komast á hækjur. Já. Svona geta hlutirnir verið. Ég lofaði Maríu að koma í heimsókn, og verð að standa við það. Verst að ég get ekki ekið til þeirra þar sem ég þarf þá að fara á hraðbraut, sem ég get engan veginn. En ef ég verð skorin upp í Salzgitter, sem jú stendur til, þá er það alveg í nágrenni þeirra.
Róleg helgi. Nennti ekki til BS í gær þó að útsölur séu í fullum gangi. Fór bara í búðirnar hérna. Svo er verið að koma draslinu upp á háaloft, sem hefur beðið í vinnuherberginu fram að þessu. Þvo og taka til. Mamma og pabbi að pakka niður jólahúsunum. Og fullyrða að þau geri það í áföngum! Mér skilst að Aldís sé farin að vinna hjá símafyrirtæki, og gangi vel. Og að þau Valdemar séu komin með kerfi að versla og laga til og hugsa um heimilið. Skipulagning í lagi, sem gömlu frænku líst nú vel á. Það er reyndar eitthvað, sem íslendingar ættu að læra--að halda bókhald. Það er ótrúlegt hvað margir segja að þetta séu "bara" hundrað krónur eða álíka, en hugsa ekki út í það að nokkur hundruð krónur séu fljótt þúsund og svo framvegis. Og að það að lækka smá á hverjum ofni, slökkva á stand-by tengingum, setja ekki þvottinn of oft í þurkarann, nota tauinnkaupapoka og fleira slíkt, spari þó nokkrar krónurnar. Kannski það sé hægt að ná í þetta nýja bókhaldsprógramm frá manninum vestur á firði, þetta "Bóthildar" prógramm. Las um þaðí blöðunum, og fannst frábært. (ekki það að mér takist enn að halda almennilegt bókhald eftir að hafa rembst við það í 24 ár :))
Jæja. Best að halda áfram. Klaus til í að fara á loftið þó að skíðafréttirnar séu enn í gangi. Og svo verða Hvanndalsbræðurnir aftur settir á fóninn til að koma okkur í frábært skap. Hafið það gott.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Til hamingju með dótturina þann 15.Ég var að vinna svo lengi á fimmtud.að ég heyrði ekki í henni fyrr en daginn eftir,fannst hún bara ánægð með daginn.Það var gaman að fá hana í heimsókn í minn skóla og ég held að eins hafi verið með hana.Hún talaði mikið við tvær stelpur í bekknum og þær voru svo sætar að senda henni afmælisgjöf.Það snjóar hér á fullu og er Einar nýk.úr Kjarnask.Eg nennti ekki með fer bara næst.Var í partyi í gær hjá einni 76 ára úr k.kórnum svaka stuð.Svo vorum við Lilla í afm.Öbbu á Bjargi fyrir viku vorum að sjálfs.laaang flottastar í síðkjólum Lilla í rosa flottum gömlum kjól af Möllu og ég fann gamlan af mér og útbjó sjal m.paliettum.Einar tók mynd sem verður sýnd seinna.Svo er þorrabjót í Mývó n.k.föstud og við látum okkur nú ekki vanta þar.Svo janúar er bara fljótur að líða þetta árið.Gott að heimferðin gekk vel hjá ykkur og svo fer Margrét suður um næstu helgi-tíminn flýgur áfram. Bestu kveðjur Magga móða.
Ég er nú frekar sparsöm og passa upp á mínar krónur eins og allir vita!! Nota taupoka, slekk ljósin á kvöldin (þó bóndinn þoli það illa), nota þurrkarann sparlega, brýt stilkin af paprikunni áður en ég borga hana og fleira sniðugt, hehe. Eins fæ ég oft afganga úr eldhúsinu í vinnunni og nota hér heima, tímasparandi og krónusparandi. Höldum áfram frænka, kv. Malla og co
Post a Comment