Við Klaus sátum límd við tölvuna og horfðum á fréttirnar að heiman. Nú er aldeilis farin að koma harka í málið. Rosaleg framkoma hjá löggunni að beita piparspreyi gegn mótmælendum án þess að vara þá fyrst verulega við. Og að sprauta bara beint í augun--ekki neitt svona upp yfir liðið. Er þetta löglegt? Hvenær ætlar þessi stjórn að fatta að hún kemst ekki upp með að vera áfram við völd? En menn sitja fastir í sætum, sem merkja völd. Guð gefi að þjóðin fái aðra og betri stjórn og það án þess að komi til bardaga og blóðsúthellinga.
Hvar er kirkjan--hvenær ætlar hún að blanda sér í málið og tala fyrir hönd þeirra, sem misstu allt, og hvar er biskupinn þegar svona mótmæli fara fram? Einhver verður að bera vit fyrir þjóðinni og lægja öldurnar.-------
Vona að Aldís Dagmar sé búin að ná sér eftir að fá skammt af spreyi í augun. Ekki er þetta nú til að vekja trú unga fólksins á lögum og reglu. Æ, elsku frænka. Vertu bara aftar næst.
Var að tala við Didda og Margréti. Svo maður tali um jákvæðari hluti þá hlakkar Margrét mikið til að fara suður. Hún vill vera jafnt hjá Ástu og Diddunum. Sem er hið besta mál. Nóg búið að gagnrýna að hún séu alltaf bara hjá sumum. Og við tókum þá góðu ákvörðun að þær þrjár fari til Didda straks á fö.kvöldið, og verði þar til þriðjudagsins, en þá fer Arnhildur aftur norður með KD. Og Margrét verði sem sagt hjá Þórdísi eftir það. Mér finnst að þetta sé dágóð lausn, og ég vona að allir séu hressir með það. Það ætti því að vera hægt að spila eitthvað fram eftir kvöldum í stóru stofunni hjá Didda um helgina, ekki satt.
Klukkan orðin háttatími hjá mér. Látið mig nú frétta af Aldísi og hvað gerist áfram. Það þarf nauðsynlega að koma á friðsamlegum mótmælagöngum, og það sem fyrst. Og gera öllum ljóst að bara fámennur hópur vilji átök.
Góða nótt þjóðin mín góða milli ísa og elda.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Bara fínt ef þær vilja hafa það svona ég verð sjálf eitthvað að læra um helgina. Ætli Kristín vilji þá ekkert vera hjá Guðnýju?
Mikið í gangi. Merkilegir tímar. Og þetta getur því miður ekki annað en haldið áfram að versna þangað til það fer aftur að batna. Þetta minnir mann á uppreisnir erlendis þar sem fólk entist til að vera úti daga og jafnvel nætur, gera sig sýnilegt og þjarma að óhæfum stjórnvöldum. Já vonandi að þessir aular segi af sér sem fyrst og kannski gerist eitthvað í framhaldi af fundi Samfylkingarinnar í kvöld. Hver veit?
Annars er bara gott og ekki yfir neinu nýju að kvarta. Diddi
Post a Comment