Þriðjudagskvöld. Fæ einn nýjan strák í næstu viku, og einn kemur úr hinum hópnum til mín. Þá er ég komin með alls 25 krakka. Eins gott að 2.bekkur fer tvisvar í viku í kennslu í stað gæslu. Annars væri þetta ansi hressilegt.
Mamma var að láta mig vita að Arnhildur væri að koma í Varmahlíð. Frumskógartrommurnar virka vel :) Vona svo bara að ekki verði vont að fara yfir heiðina. Það var örugglega ekki auðvelt fyrir þær systur að kveðjat í dag. Maður verður bara að hugsa um hvað þetta var gaman, og rifja upp alla skemmtilegu atburðina, og hlakka svo til næstu funda. Svona er það bara þegar fjölskyldan býr í tveimur löndum.
Heyrði stutt í Margréti áðan. Frétti að þær hefðu farið til Sigurðar og Svanhildar í gær. Það var nú gott. Margréti leist vel á stelpurnar í bekk Ástu. Svo er það spurningin hvort hún komist á ball á morgun, sem er haldið fyrir 3 skóla, og eitthvað erfitt að fá miða. Bara eftir 3 dagar, og svo laugardagurinn, þá er þessari dvöl lokið. Við verðum auðvitað fegin að fá hana aftur heim, ekki spurning. Gaman að vera svona vinsæl :)
Diddi--það þarf að úrbúa eitthvert plagg uppá að Margrét hafi verið gestur í skólanum. Veit ekki hvort hún vill fá plagg frá báðum skólunum eða hvort hægt væri að skrifa bara að hún hafi verið hjá þér, -svona til að gera málið auðveldara. Þú ræðir kannski við hana um það mál.
Klaus fer á morgun í burtu og gistir --veit ekki hvar :) Verð þá bara alein í kotinu.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Já stjórnin fallin og vonandi að menn taki höndum saman og sæki pening í vasa auðmannanna en ekki til gamalmenna og lálaunamanna, þá er kannski hægt að minnka niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Annars allt gott að frétta, nóg að gera í vinnu eins og alltaf. Nú er komið frost og íshimna yfir öllu svo jafngott að labba varlega. Kv affí
Hér snjóar og snjóar, dásamlegt veður :o) svona ekta jólasnjór, 0°C hiti og því ansi blautur snjór :o)
Er að spá í að labba og sækja krakkana í leikskólann á eftir.
Stjórnarmyndunarviðræður ganga víst vel, vonandi komið lokaplan á þetta allt í kvöld eða á morgun :D
Post a Comment