Monday, February 2, 2009

Margrét mætt til Meinersen.

Mánudagur og febrúar byrjaður. Allt hvítt af snjó hér í gær, en er smám saman að hverfa. Vindur og skítkalt. Við Klaus ókum til Frankfurt í gær í hríð og slyddu næstum alla leið. Vorum í 4 tíma. Svo kom sólin fram og við fengum besta veður til BS. Margrét kom hress og kát eftir hið besta flug. Sat við glugga við hliðina á indælis hjónum, sem búa í Frankfurt og eiga eina 16 ára dóttur. Spjölluðu við hana og fylgdust með að hún færi rétta leið, sem var náttúrlega óþarfi þar sem hún er álíka ratvís og pabbi hennar. Engin ókyrrð og ég hefði mátt sleppa því að vera með áhyggjur út af hrystingi. En þar sem spáð var stormasömu veðri var sú gamla smá smeik :) :) :) Æ, þessar mömmur!
Takk fyrir alla aðstoð og sérstaklega bestu þakkir til Þórdísar, sem ók henni til Keflavíkur og fylgdi að handfarangurs leitarhliðunum. Takk Diddi minn fyrir þinn hlut, og takk þið öll, sem gerðuð henni ferðina minnisstæða.
Já, það var ergilegt að ekki var vitað um ferð Möllu í sumarbústaðinn, en tíminn er alltaf knappur þó að gist sé í 8 nætur þegar margt er á dagskrá. Og svo sem ekki víst að hún hefði getað komist til Möllu. Það er töluvert að komast á ball, á söngvakeppni og í bíó, fara í Kvennó og hitta akkurat á kynningu skólans þar, hitta Hildi Valdísi þar og vera með henni í eyðu,, fara til Sigurðar og Svanhildar, vera hjá Diddunum, fara á þvæling með Arnhildi, já, og mæta í skóla alla morgna.
Það var margt öðruvísi en hérna, og sumt ekki betra. Margréti líkar betur aginn í bekkjunum hérna, en aftur á móti vantar hér félagslíf og öll aðstaða í skólunum er miklu betri heima.
Hún var hin ánægðasta að komast í herbergið sitt, og sofa í sínu rúmi, og fara í sturtu í stóru baðherbergi og.. og .. Og svo dekrar mamma við hana og færir henni matinn inn á sófann svo hún geti verulega notið þess að vera komin heim.
Maria vinkona hennar kemur svo á eftir, og færir henni verkefnin úr skólanum og nýju stundarskrána. Það verður örugglega gaman að hitta vinkonurnar aftur.

Ég þakka kærlega fyrir spegilinn Arnhildur mín, sem þið systur keyptuð hana mér, svo og sápuna og teið. Húfan, sem Affí gaf Margréti, er æðisleg. Svo fékk hún spil frá Arnhildi, sem við eigum eftir að læra. Eins gaf Arnhildur henni köku í afmælisgjöf, og þær systur brölluðu ýmislegt saman . Líklega eins gott að setja ekki allar myndir á bloggið, sem er teknar í t.d. í A----E--segi ekki meir.

Takk fyrir kveðjuna Arndís mín, hvalurinn mikli! Gott að heyra að maður sé ekki bundinn við að mæta vikulega út af atvinnuleysisbótum. Hver veit nema hægt verði að koma Arnhildi út fyrir landsteinana, en kannski hún fái vinnu. Allt á henni huldu.

Jæja. Best að fara að gera eitthvað. Þvottur af dömunni. Hádegismatur og svona sitt af hverju.
Hafið það gott, og gangi ykkur vel í nýrri vinnuviku.

4 comments:

Anonymous said...

Gott að heyra að allt gekk vel hjá Margréti :o) Það er auðvitað aldrei hægt að gera allt sem mann langar til á 8 dögum, með skóla :o) svoleiðis er það bara en við systur reynum að hitta aðeins meira á ykkur í næstu ferð.
Þangað til fylgjumst við vel með á blogginu :o)
kv
Kristín E.

Anonymous said...

Bara að láta ykkur vita að hún amma kom með lummur til mín í vinnuna...nammmi nammmm, ég veit að þetta er bara afsökun hjá henni fyrir að komast í búðina hjá mér en...híhí!!
Langaði bara að deila því með ykkur að ég á langbestustu ömmu í heiminum!!! kveðja Arnhildur lummu eating pornodogg grrrrr

Anonymous said...

Gott að Margrét fékk fínt ferðalag heim, og aldrei datt mér annað í hug en hún spjaraði sig, er klár og skynsöm og ekkert nema gaman að vera með henni. saknaðarkveðjur til hennar og ykkar allra héðan úr frosti en fallegu veðri. Ligg hér í letikasti eftir tveggja vikna vinnutörn. Kv affí

Anonymous said...

Já Arnhildur hún amma þín er frábær! Gott að eiga hana sem skámömmu í þessari Thailensku fjölskyldu okkar eins og vinafólk mitt kallar okkur!!! Híhí...

p.s. mig langar í lummur...