Saturday, February 7, 2009

Hvítt mokkasúkkulaðikaffi

Loksins, loksins komumst við Margrét til BS. Ókum í sól og blíðu eftir hádegið í gær. Mjög rólegt í bænum, og bílahúsið næstum tómt, eða svo fannst okkur. Gaman að rölta um bæinn. Kíktum í uppáhaldsbúðirnar. H&M og Vero Moda. Ekki var mikið kaypt, en ég fékk mér þó eina beislita gollu. Og svo splæsti ég í eina DVD. Sex and the City. Á bara 8 evrur. Við komumst aldrei til að fá að sjá hana hjá Aldísi, en ég gaf henni myndina í jólagjöf. Margrét fékk sér dagatal til að skrifa inná. Svo var farið á Starbucks, og ég prófaði uppáhaldsdrykkinn hennar, hvítt súkkulaðimokkakaffi.
Var frekar þreytt í færtinum, út af slösuðu tánni, híhí. Og Margrét þreytt eftir strigaskóna, sem hún hefur ekki notað lengi. Það var ósköp gott að komast heim á sófann og horfa á einn þátt af sápunni okkar. (Voða sorglegt og voða spennandi.)
Sótti Brötchen í morgun. Tók til á baðinu og ryksugaði öll gólfin uppi og þvoði þau. Skrapp í búðir. Bakaði svo eplaköku og hitaði te handa okkur og Birthe Sass, sem kom eftir hádegið. Þær eru mjög ánægðar að vera búnar að hittast aftur. Birthe fer svo í sumar sem skiftinemi til Mexiko. Þær ætla að baka piparkökur á morgun því þær höfðu aldrei tíma til þess fyrir jólin.
Klaus er að vesenast í sturtunni við að setja upp nýja grind fyrir sápuna. Úti er ömurlegt veður. Þoka og rigningarslydda. Spáð jafnvel aftur snjó.
Aftur og enn komin upp lús í skólanum. Og akkurat tveir krakkar, sem eru hjá mér í gæslunni ,eru með lús. Mig klæjar alla!!!!
Hafið það gott og njótið helgarinnar. Ykkar Áslaug.

5 comments:

Anonymous said...

Erum við Álftavatn, búið að vera á skautum í marga klukkutíma, ég á gönguskíðum í Þrastarskógi þar sem brautin liggur upp og niður og í beygjum. Heiti potturinn algjört þarfaþing núna. Fínt veður og sind að ekki séu fleiri hjá okkur núna. Ætli það verði svo ekki rólegheit í kvöld og síðan aftur fjör og líkamsrækt á morgun. Sendi einhverjar myndir þegar heim kemur. Diddi

Thordisa said...

er búin að eyða deginum í að reyna að læra en hef þó að mestu verið að selja wc pappír og annað fyrir Guðnýju bögga ættingja og vini

Anonymous said...

Úff lúsin er þó skárri en njálgurinn, jakk!!!! Ég er alltaf að þvo mér og spritta hendur í vinnunni í von um að sleppa við njalla :S Búin að fara í sund í morgun með familíunni, sem við gerum nánast allar helgar. Á eftir er svo kaka hjá Þorgerði og læri hér í kvöld!!! kv. Malla

Anonymous said...

Malla kauptu bara klósettpappír hjá þórdísi og veiddu njallann í hann....., eru steinahlíðarsystur ekki bara á iði af of miklu áti ( sbr lýsingar möllu )

Anonymous said...

Ja, ég er allavega södd og sæl í dag ;)
Nýtt ráð við lús hér á Íslandi sem svínvirkar, silikonlaus sem heitir Hedrin, eiturefnalaust og kemur frá hinu merka landi Danmörku. Hin lyfin mörg orðin óvirk. Svo er hér mælt með buffi yfir hár og að stelpur séu alltaf með tagl eða fléttu í hárinu meðan þetta gengur yfir. Ef þig vantar fleiri ráð lumar skólahjúkkan á fleirum...