Elsku Ástþór Örn----til hamingju með afmælið þitt í dag. Við Klaus og Margrét sendum þér og ykkur öllum bestu kveðjur og vonum að þú hafir það reglulega gott í dag. Þá ertu bara kominn á skólaaldurinn og ferð í skóla í haust. Kannski þú getir bráðum skrifað okkur bréf til Þýskalands. Það væri nú gaman. Bestu kveðjur frá Áslaugu, sem saknar ykkar bræðra mikið, mikið.
Sól úti, bara 3 stig frost í morgun. Í gær voru þau 8, og Margrét fór með tvenna vettlinga í skólann. Affí gaf henni æðislega vettlinga fyrir nokkru, sem ég hef geymt kirfilega í skápnum. Ekki neitt að láta hana fá slíkt meðan hún kunni ekki að meta það. En núna falla þeir vel í kramið. Passa reyndar vel við húfuna, sem Affí gaf henni í afmælisgjöf. Með þessa vettlinga og þunnt par af fingravettlingum var hún vel útbúin :) Líklega ætti ég að redda lúffum úr skinni næst þegar ég kem heim. Hún er svo fingraköld. Eða biðja Svanhildi snilling að prjóna einhverjar frostverjur :) Hún væri ekki í vandræðum með það. Kíkið á síðuna hennar og sjáið fína köttinn, sem hún var að sauma. Algjört æði. Það væri eitthvað fyrir Arnhildi að komast í góða saumastund með Svanhildi.
Ég held mér hins vegar við tiltektina, og saumaskapurinn bíður alltaf "betri " tíma, hehehe. Ekki það að ég vilji ekki dunda mér við slíkt, en mig vantar aðstoð og ráðleggingar. Kannski ég geti fengið Mariu Heim til að dúllast með mér í þessu teppi, sem byrjað var á fyrir meira en tíu árum!!! Og líka að fara í tehettina.
Sólin kom manni í stuð til að taka glugga í gegn. Var að þrífa stofuna og setja aftur upp gluggatjöldin, sem viku fyrir jólagluggatjöldunum. Þau fengu að vera ansi lengi í stofunni :) Svo tók ég skattholið í gegn, þvílíkir vefir baka við það. Þetta fj---kongulóarland, --og bar á tekkolíu og fór í gegn um skúffurnar. Svo þreif ég undir píanóinu, og skóskápunum, en það er svo þröngt að slíkt gerist afar sjaldan.
Og viti menn--fann plaststykki frá playmo, sem mun vera beisli af hesti, og tilheyrir örugglega honum Einari Erni. Það fer þá með næsta pakka til Íslands! Já, þessi Ádda frænka, sem þrífur bara á margra mánaða fresti :):):)
Fór til tannlæknis á þriðjudaginn. Hún hreinsaði amalganið úr báðum tönnunum, sem verða svo uppistöður fyrir brúna. Bjó til "nýjar" tennur, og svo verða þær pússaðar í pinna næst. Var ekki laus við deyfinguna fyrr en eftir 5 tíma, ömurlegt. Var varla talandi. En nú er þetta búið og gleymt. Vorkenni Affí og Þórdísi , sem eru/voru líka að standa í tannlæknaferðum, sniff, sniff.
Margrét hress. Hún er búin að bæta á sig kílói frá því hún kom ! (ég líka, hmhm) Annar tími í morgun, og aftur annar tími á morgun. Hún fékk báða nemendur sína í tíma í gær. Ég skrapp á meðan til Frau Kühle og færði Eckerhart bjór í þakklætisskyni fyrir að aka Margréti út og suður. Fékk kaffibolla og gat spjallað smá.
Nú er verið að tala um að breyta öllum grunnskólum í héraðinu í heilsdagsskóla. Hvað það hafi í för með sér er ekki viðtað enn. Hvort ég gæti etv. fengið meiri vinnu, hvort hluti af starfseminni fari fram utan skóla, t.d. í félagsheimilinu og yfirhöfuð hvað sé planað er enn á huldu. Fundur á mánudaginn í skólanum, og ég vil helsta fara. Veit hins vegar ekki hvort Maria kemur akkurat þá. Náði ekki í hana í gærkvöldi.
Klaus kom heim í gær nýklipptur og voða sætur. Ég þyrfti víst að fara að komast. Einhvern tíman fer þessi vetur að enda og við getum skroppið án þess að vera í stressi út af hálku og ólöglegum dekkjum. Ekki mikið eftir af febrúar. Og bara einar 5 vikur eftir í okkar 3ja vikna páskafrí, hehe. Þá held ég nú að við málum holið, stigaganginn, klárum háaloftið, förum í ótal bíltúra og fleira í þeim dúr. :):):):):)
Mamma hringdi í gær. Ég heyrði líka í Hannelore. Þetta var víst vellukkuð heimsókn, og þær stöllur eru himinsælar með hjartanlegar móttökur. Sennilega ekki síðasta vetrarheimsóknin þeirra til Akureyrar. Svo sagði mamma að Arnhildur fengi að vera eina viku enn á sjúkrahúsinu og verið væri að kanna með sjúkraþjálfun. það væri nú algjör draumur. Hún er búin að vera slæm í baki svo lengi. Ætla að hringja í hana í dag-ef ég kemst að fyrir Margréti, sem finnst voða sport að hringja á deildina:)
En fyrst bíða mín ótal skyrtur, óhreint baðherbergi, og sitt lítið af hverju af skemmtilegheitum.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Takk fyrir kveðjuna, Ástþór Örn mjög upptekinn af því að það sé kveðja til hans á síðunni þinni! Og takk fyrir hrósið, hver veit nema að eggjapeysurnar fari nú að líta dagsins ljós!!!! Og það væri nú ekki ónýtt að komast í saumaklúbb með Arnhildi og skiptast svolítið á hugmyndum.
Bestu kveðjur og hafið það gott,
Svanhildur
Já gaman að beislið skildi finnast, ég ætla beint að segja strákunum það. Hér hanga enn jólagardínur í eldhúsinu, mér finnst þær svo sætar, þær fara samt vonandi fyrir vorið, tihi. Var að koma af bekkjarkvöldi, þar sem ég og önnur vorum að skipuleggja, gerðum ratleik og svo komu allir með eitthvað á hlaðborð. Ég bakaði pönnsur í morgun sem ruku út ;) Já alltaf nóg að gera !!
Post a Comment