Tuesday, February 17, 2009

Mágkonu knús yfir hafið !!!!

17. febrúar og Sigyn á afmæli. Man ekkert hvað hún er gömul, alltaf bara ung og falleg. Elsku mágkona mín - innilega til hamingju með daginn. Láttu kallana þín stjana smá við þig, þó að eiginmaðurinn megi sjálfsagt ekki vera að því í pólitíkinni og félagsmálunum.
Bréfið er komið frá ykkur, takk fyrir það. Og pakkinn, sem þið komuð í póst líka. Allt heilt og í besta lagi. Hafðu það gott, og njóttu dagsins :)
Ótrúlegt en satt---hann er að snjóa! Svo langt síðan við höfum séð snjó, eða þannig. Í gær rigndi hann mest allan daginn. Sótti Margréti í skólann hálf tvö, og var þá búin að elda. Er að gera mitt besta til að fita hana eftir að tveir kennarar eru búnir að hefja máls á því hvort ekki sé allt í lagi hjá henni, -hún sé búin að leggja af. Set rjóma í pastasósuna og út í brúnu sósuna. Keypti í gær Kräuterblut mixtúru til að peppa hana upp. Og svo lærði ég loksins á saftvélina mína, sem er búin að standa í ein 3 ár í geymslunni. Meiningin er að pressa eitt epli og fleira á morgnana til að koma ofan í hana áður en hún fer í skólann. Vona að Þorgerði líki það. :)

Ókum til Gifhorn, og hún fékk festingar á öftustu jaxlana. Hann Atassi, ungur og hress læknir frá Sírlandi, er rosalega ánægður með hana. Hann segir að hann hafi sjaldan séð svona vel hirtar tennur. Og að hún losni sennilega við spangirnar fyrr en til stóð út af því að þetta gangi svo vel. Sem sé mest fyrir góða samvinnu hennar. Hún notar teygjurnar og borðar ekki glerhart og ekki tyggjó og fleira slíkt. Það væri nú alveg æðislegt ef hún ætti ekki eftir nema hálft ár.
Ég skrapp í bæinn á meðan, og fékk krem á ennið á dömunni. Hún fékk aftur bólur eftir að hún hætti að nota krem, sem húðsjúkdómalæknirinn lét hana fá. Já, það er um margt að hugsa :)
Heim í þvílíkt grenjandi rigningu og hér og þar þoku. Fegin þegar heim kom.

Klaus þurfti til Frankfurt í morgun. Tók lest rúmlega hálf sjö. Ég svaf nú bara í gestarúminu. Nóg að vakna 6.20. Margrét á hjóli í morgun í hríðinni. Núna er þetta að bráðna að venju og gerir ekkert nema ergja mann. Margrét hringdi í Arnhildi, sem hafði búið til disk úr gleri í Punktinum. Gott hljóð í henni. Segist borða mikið og vel, og sauma út.

Mamma og pabbi hringdu í gær. Frétti af rigningu þar, og hrikalega mikilli hálku á stéttum. Ergilegt að fá þetta eftir fína vetrarveðrið. Vona að Láki hafi komist með þær stöllur í Fjallið, og að þær hafi drifið sig í langþráð sund. Sagði pabba að kíkja með þeim á bloggið til að sýna þeim myndir frá Þýskalandi í sumar. En það er víst bara ein mynd af Hildegard í júnimyndunum. En samt þó það. Fer ekki pabbi að birta myndir á facebook! Verð líklega að læra á þetta undur úr því að hann gat það.)
Sólin að koma fram. Þá held ég að maður hressist allur. Hjartans kveðjur heim á Frón.

1 comment:

Anonymous said...

Hér er sól og blíða en á víst að kólna. Var á hrikalega findnu leikriti í gær, nokkurs konar uppistand/leikur, um miðaldra konur að fást við lífið þegar heilsa og líkami eru farin að gefa sig he he. Edda Björgvins, Helga Braga og ein enn sem ég man aldrei nafnið á. Skemmti mér konunglega, sá sjáfa mig í hverju atriði. Annar allt gott að frétta fyrir utan tannrótarbólgu sem ég er að fara að láta líta á seinni partinn. Kv affí