Hér snjóaði í gærkvöldi og var vel þykkt snjóalag þegar við fórum að hátta. Næstum allt horfið í morgun, og þoka liggur yfir skóginum. Spáð smá hlýnandi, sem væri kærkomið.
Gaman að frétta að Ástþóri hafi fundist spennandi að fá kveðju á síðunni minni. Þessi tækni færir mann mikið nær ykkur öllum. Enn meira gaman ef fleiri skrifuðu. Miðað við hversu margir eru komnir með síðuna eru það fáir,sem pikka kveðjur. En líklega tapa ég samkeppninni við Facebook :) . Margrét var þreytt eftir langan skóladag í gær, og leiðinlegan íþróttatíma. Gott að komast heim í núðlubakstur, og horfa á sápuna okkar, sem er nú að enda í næstu viku. Hvað eigum við þá að gera af okkur! Reyndar tekur við ný þýsk sápa, og kannski við kíkjum á hana, :)
Töluðum við Arnhildi, sem var hin hressasta. Búin að búa til glermuni í Punktinum. Byrjaði ekki glæsilega því diskurinn hennar var inni í ofni, sem bilaði og skemmdist því. En þá var bara búið til nýtt. Hún fer heim í dag í heimsókn og Kristín hlakkar til. Er nú farin að sakna mömmu sem von er. Við erum fegin að helgina sé að nálgast. Óskum ykkur góðrar helgi og knúsið börnin og liggið lengi í bælinu með þeim og slappið vel af. Saknaðarkveðjur frá Meinersen.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
9 comments:
Erum á leið í sumarbústað um helgina í Húsafelli, verður gott að slappa aðeins af!!
Kær kveðja til Arnhildar, gott að heyra að þér líður betur frænka.
Góða helgi öllsömul!
Hér snjóar ofan í hálkuna, en fallegt úti. Ætla að reyna að fara suður á föstud, og koma heim á mánud, verð nú að vera heima 2.mars þó ekkert sérstakt verði gert í tilefni dagsins. Fer í mat til m og p á morgun, sprengidag og hlakka heldur betur til, þar sem ég kann ekki að gera almennilega baunasúpu. Kv affí
Bestu kveðjur til elsku Arnhildar :o) og ykkar í Þýskalandi líka hehehe
Heyrumst
kv
Kristín E.
Hæ. Ætlaði til Ísafjarðar í dag en það var ófært í fluginu. Fundir og fundir og fundir. Maður er jú einu sinni kominn í framboð og nú eiga allir að ganga í VG Reykjavík og greiða mér atkvæði. Það er hægt þó menn búi í Kópavogi. Og svo á að blogga og skrifa og hrósa og hvetja alla til að styðja mig. Allir í áróðurinn.
Takið eftir því að þetta er allt í boðhætti en ekki í formi bónar. Er ég ekki efnilegur???
Bestu kv. Diddi
Og bara til að þið sjáið hvað er í húfi þá kom þetta blogg frá einhverjum sem ég veit ekki hver er, en er greinilega mjög vel upplýstur og með á nótunum. Farið inn á þennan hlekk og meðtakið boðskapinn.
Diddi
http://alltafhress.blog.is/blog/alltafhress/
Auðvitað mjög efnilegur Diddi! Við Kópavogsbúar skoðum málið gaumgæfilega.
Frábær helgi í afslöppun í Húsafelli, mikið spilað og potturinn vel nýttur!!
Sprengimatur hjá tengdó í kvöld og öskudagsundirbúningur í undirbúningi...
Er lílka búin að sjá leikritið um miðaldra konurnar,þekkti margt þar.Þriðja leikkonan heitir Björk Jakobsd.Tinna er í vali í leikh.og fer ég með henni þangað og vorum við búin að heyra smá samlestur.Við vorum svo boðin á forsýningu og fór ég með mína þangað.Það datt engum í hug að hún færi því hún er ekki vön að sjá bíó né leiks. en allt gekk mjög vel.Sáum um party í vinnunni á föstud.og var það mjög gaman.Allir ánægðir og fengum við mikið hól fyrir allt.Svo fór ég að jarðarf.hennar Halldóru á Arnarv.á laugard.og var svo veik eftir allt.Lá á sunnud og mánud.hóstandi og með hita en fór í vinnu í dag.Fór ekki á söngæf.í kvöld svo þú sérð að þetta hefur verið í alvöru.Öskud.á morgun og er hálf skrítið að hafa ekki Helgu mína til að mála í fyrram.en ég mála mig bara í staðinn.Kveðjur til ykkar allra.Magga móða.

Vorum í mat hjá m og p, og Arnhildur, Fúsi og kristin mættu líka. Allt annað að sjá Arnhildi, búin að safna orku og allt stefnir í rétta átt, enda bæði falleg og hæfileikarík. Er á leið í háttinn, vel út-troðin af saltkjöti og baunum, verður örugglega ekki líft í svefnherberginu í nótt út af loftmengun frá okkur hjónum eftir baunaátið he he.
Kv affí
Post a Comment