Monday, February 16, 2009

Og enn var hann að snjóa.

Mánudagsmorgunn, og allt blautt og viðbjóðslegt úti. Snjóaði heilan helling í gær. Fór þrisvar út að skafa í gærkvöldi, og okkar stétt er sú eina, sem er rauð í morgun.:) Hann kippti úr frosti þegar fór að líða á kvöldið, og snjórinn á bílnum var þvílíkt rennandi í morgun. Og svo á hann að vera frostlaus í dag, sem er sko alveg eins gott því ég þarf á þeim rauða til Gifhorn með Margréti til tannlæknis. Frekar fúlt að eiga ekki vetrardekk undir hann, en þar sem ekki er einu sinni víst að hann komist í gegn um skoðunina í haust er ég ekki að leggja í þann kostnað. Þetta hlýtur að reddast.
Helgin fór gjörsamlega öðruvísi en til stóð. Það byrjaði með að Margrét var með vonda verki í lok skóla, og var að drepast fram eftir degi. Fyrsti dagurinn er alltaf svona slæmur. Við afboðuðum vinkonurnar og þetta var voða sorglegt, sniff, sniff. Svo var mamma systranna lasin á laugardaginn og Margrét þurfti ekki að passa.

Við Klaus fórum í þetta boð til Grubes á fö.kvöldið. Það var mjög gaman og mikið hlegið. Þessi hjón eru rosalega hress. Buðu líka hjónum frá BS., sem eru fædd í austur Berlin. Þau sögðu sögur frá lokum stríðsáranna og svartamarkaðsbraski og flóttanum yfir í vestur Berlin. Mjög áhugavert og margt skondið. Bæði hjónin hafa verið i Kína. Grubes eiga son, sem vinnur hjá VW og hann er búinn að búa þar með konunni og tveimur sonum um tíma. Á alls að vera í 4 ár. Þau heimsóttu soninn í vetur og sýndu okkur frábærar myndir. Þar sem tengdadóttirin kann á þetta allt, gátu þau séð staði, sem venjulegir túristar fara ekki á. Myndirnar af sóðaskapnum og matnum, ---Malla og Affí--þið hefðuð hlaupið út!!!! Ég held að mig langi ekki mikið til Kína!!! Nei, auðvitað eru túristastaðirnar flottir, og þetta er mikið og merkilegt land. En samt--mig langar meira til Prag.
Þegar við ókum heim undir miðnætti, var komið þykkt lag af snjó. Ókum á 40 alla leið. Allt gekk vel. Var svo sem ekki hált, en hann Klaus minn er ekkert að taka neina áhættu.

Og svo var enn snjór á laugardagsmorguninn, og haldiði ekki að ég hafi barasta farið út í bakarí í hálkunni! Þetta eru nú tíðindi til næstu bæja. Við sóttum svo Jöndru,- lét Klaus aka því ég ætla nú ekki að taka vetrarkeyrsluna í loftköstum-og hann fór með stelpurnar til Gifhorn að kaupa nýjustu bókina hennar Stephenie Mayer, Breaking Dawn, og mig í Real að versla. Fengum fljótt hringingu að bókin væri ekki til. Bara þeir, sem hefðu pantað, hefðu fengið eintak. Svo ekki varð mikið úr gleðinni yfir bókinni. En Jandra fór til BS og þar var til nóg af henni. Keypti eina handa Margréti og við sóttum hana svo í gær.

Helgin fór í að taka til, brjóta saman þvott, elda og versla. Margrét var að ná upp stærðfræði og lærði með pabba sínum í gær. Við áttum notalega kvöldstund á laugardaginn yfir ágætri þýskri mynd, sem Margrét fékk í afmælisgjöf. Svo voru tveir krimmar í gær að venju. Núna eru þættir með Inspektor Lewis frá Oxford. Gaman að sjá byggingarnar þar. Margt gerist á lóð háskólans. Svo eru þessir ensku krimmar oft ekki eins blóðugir og þeir þýsku.

Það var notalegt að lesa kveðjurnar frá ykkur á síðunni minni. Á reyndar ekki orð yfir að Affí hafi ekki ætlað að gera NEITT þegar hún kom heim úr sveitinni :) Er hún farin að verða skynsöm og búin að læra að slappa af, híhíhí. Við höfum ekki hringt í neinn um helgina , en ætlum að heyra í Arnhildi í dag. Vonum að hún hafi haft það gott heima um helgina. Þórdís hringdi að segja að hún hefði sett mynd af Margréti á bloggið. Ásta lét hana taka af sér gleraugun og tók spangirnar af með prógrammi, sem hún á. Skondið að sjá þetta.

Maria Heim, frá Pullach, hringdi í gær. Hún ætlar að koma í heimsókn,- líklega á bolludaginn eftir viku. Svo það er víst eins gott að fara að koma húsinu í lag. Allt í rusli og drasli. Hlakka til að sjá hana, en verra er að hún verður bara á þeim dögum, sem við erum í vinnu og skóla, og maður er alltaf þreyttari í miðri viku. En þetta verður gaman samt.
Svo vona ég að Hildegard og Hannelore séu hressar og geti séð eitthvað af umhverfinu. Var búið að kanna sundlaugarmálin pabbi? Hvenær sé opið. Getur Affí ekki sýnt þeim Myndlistarskólann? Hann ætti að vera heimsóknar verður. Og eru ekki einhver söfn í bænum?
Klukkan að verða 9. Best að skella sér í spennandi verkefnin. Kannski byrja á að taka úr uppþvottavélinni, eða þurka af rykið í stofunni, eða setja þvott í vélina, ---eða bara byrja á kaffibolla :)

1 comment:

Anonymous said...

Sæl. Hér er sumarblíða, ég fór út að hjóla í gær og allir stígar og götur orðin auð. Mikið partí var hér á laugardaginn og endalaust stuð, gaman. Þetta var kórinn minn. Annars er svo sem ekki mikið að frétt, jarðarförin verður á morgun, síðan bara rútínan þangað til í næstu viku. Þá er opin vika í Kvennó, ekki hefðbundin kennsla. Ég fer reyndar til Ísafjarðar á 4 fundi með Rammaáætlunarhópnum, en síðan verða kennarafundir á þriðju. og miðvikudag, en ekkert prógramm á fi og fö. Kannski maður fari bara norður????? Ég segi nú bara svona.
Bestu kveðjur Diddi