Friday, February 13, 2009

Þetta blessað skammdegi.

Hér erum við að verða búin að fá nóg af snjókomu og kulda. Og dimmum morgnum. Samt megum við teljast heppin miðað við ykkur heima, sem eigið eftir að halda úr langar nætur í þó nokkuð langan tíma. Og ekki gengur öllum vel að lifa við þetta ástanda. Þórdís er alveg að klikka á þessu hundalandi, og hún Arnhildur mín var alveg að fá nóg. Hún á alltaf svo erfitt í skammdeginu. Svo bættist við að hún var svo mikið ein í vinnunni og í kjallara, sem ekki var beint mjög bjartur. Og þetta var henni bara um megn. Hún er komin á geðdeild sjúkrahússins og verður þar í góðu yfirlæti í tvær vikur. Þar er hugsað vel um hana, og henni hjálpað að koma sér í reglulegan svef og útiveru Þar á eftir kemst hún vonandi í dagdeildina og verður áfram í prógrammi þar. Já, þetta var ekki auðvelt undanfarið. Ekki létt að vera svona langt í burtu, og þó að Klaus segi alltaf að ég geti engu breytt, þá gæti ég allavega tekið barnið mitt stóra í fangið og knúsað hana vel. Og hugsað um heimilið hjá Fúsa og Kristínu. Stundum er ég alveg viss um að það sé enginn Guð til, --en svo sé ég að hann grípur oft inní og hugsar um okkur þó að maður eigi erfitt með að skilja tilganginn í mörgu. Það er að minnsta kosti víst að við eigum góða að. Það eru allir tilbúnir að gera eitthvað til að aðstoða og þó ekki sé nema með hlýlegum orðum, og ég þakka ykkur hér með fyrir kveðjurnar. Það eina, sem er ekki svo gott er að fáir eru færir með að gera einhvern skurk í líkamlegri aðstoð. T.d. tiltekt fyrir Fúsa, þar sem flestir eru eitthvað "beyglaðir" orðnir, gamlir og dettandi og ónýtir í baki. Æ,æ,æ :) En hann Fúsi minn er nú alveg fær um að sjá um þvottinn og eldamennskuna, en mikið vildi ég að ég gæti hjálpað. Við Þórdís værum sko góðar í smá aðstoð ef við værum á staðnum :) :) :)
Svo er að sjá hvað gerist næst. Hvernig staðan er með t.d. greiðslu frá atvinnuveitanda vegna veikinda, og hvaða bætur fólki standi til boða. Kannski Diddi geti kannað það þegar hann fær "frí" milli funda.

Það er sannarlega sorglegt ef verið er að setja reglur, sem fara þarf eftir í útförum, sem ekki samræmast þörfum aðstandanda. Alveg tilefni í góða grein í dagblöðin. Já, ekki auðvelt að missa sína nánustu, og maður ætti oftar að hugleiða hvað við séum rík með alla þessa stóru fjölskyldu. Við höfum ótal ættingja og svo alla vinina og kunningjana. Við erum ríkari en svo margir, sem ég þekki. Og þurfum bara að muna að sýna hvort öðru oft hlýhug og koma fram af kærleika.

Hugurinn hefur náttúrlega verið heima undanfarið. En tilveran gengur sinn vanagang. Skóli og vinna. Það var mjög gaman að vinna fyrir foreldrafélagið á mánudaginn við að selja vöfflur og kaffi. Spjallaði við marga og kynntist t.d. enskukennara Margrétar. Vissi bara ekki að það var þessi, sem gaf henni "bara" 2 í ensku, -hefði sko sagt henni sitt hvað ef ég hefði vitað það :)
Allt gekk vel hjá Margréti, sem fór með Eckerhart til Gifhorn til tannlæknis. Hún þarf svo að fara á mánudaginn til að fá festingar á jaxlana, sem hún hefur verið laus við fram að þessu.

Veðrið hefur verið frekar leiðinlegt. Oft dimmt og oftast frost á nóttunni. Og enn er hann að snjóa. Ætli ég komist nokkuð á bíl í dag. Ergilegt. Nóg að gera í vinnuni. Þau fengu að skreyta pappadíska í gær fyrir Valentinusardaginn, sem er jú á morgun. Fengu helling af böndum, rauðum pappa, límmiðum með hjörtum og blúnduservéttum. Voru önnum kafin og voða gaman. Þarf að taka myndir af herlegheitunum áður en þau fara með þetta heim.

Frau Kühle tók mig með á fyrirlestur um börn með ofvirkni og önnur vandamál. MJög athyglisverður fyrirlestur hjá prófessor, sem starfar við háskólann i BS. Hann segir að hægt sé að hjálpa krökkum markvisst með t.d. ákveðnum aðferðum, prógrömmum, sem búið er að rannsaka t.d. í USA. Þar kom í ljós mikill munur á t.d. glæpum ungmenna í þeim fylkjum, sem notuðu þetta og hjá þeim, sem ekki gerðu það. Það þarf að kenna foreldrum að umgangast börnin, kenna kennurum að umgangast þau og stuðningur þarf að vera til staðar frá félagsmálastofnunum. En hér er ekki hugsað rökrétt. Menn fyrirbyggja aldrei. Í USA er sagt að hver unglingur, sem fari út á afbrotabraut, sem er bein afleiðing þess að vera slæmur í skóla, komast ekki í iðnnám og vinnu, --séu um 1.5 milljónir dollarar. Hvað væri hægt að gera fyrir þennan pening!!! Hér hækkuðu þeir barnastyrkinn um 10 evrur á barn, sem munir ekkert um, en hefði ein evra verið tekin af því, og sett í sjóð til að vinna með vandamálabörnin alveg frá leikskólaaldri, væri hægt að koma í veg fyrir mörg áföllin. Og það að byrja í leikskólunum er mjög mikilvægt.
Já, það væri hægt að gera svo margt ef Mammon réði ekki alltaf ríkjum.
, heldur mannkærleikur og tillitssemi.

Nú, nú. En best að fara út í aðra sálma. Var að hringja í Hildegard og Hannelore. Þær stöllur hlakka mikið til að komast til Íslands og hitta þetta góða fólk! Sagði þeim að taka með sér sundbol. Er ekki opið í Glerárlaug á morgnana? Það verður vonandi hægt að aka þeim um, og vonandi hefur Láki líka tíma til að snúast smá með þær. Gaman að komast í "alvöru" bíl! (þetta er smá grín til pabba! )

Í kvöld förum við Klaus til Frau Grube, sem vann við háskólann í den tid. Margrét fær vinkonur sínar í heimsókn og ég á eftir að þrífa baðið og herbergið hennar áður. Sit bara og skrifa einhverjar hugleiðingar. Þessi húsmóðir!!!!
Vona að allir séu hressir og gefi börnum sínum og mökum gott knús þegar þeir hittast í dag eftir vinnu og skóla. Enginn gimsteinn jafnast á við börnin okkar.

7 comments:

Anonymous said...

Já, hún elsku Arnhildur er í góðum höndum á FSA og nær vonandi betri heilsu. Hugsum til ykkar allra!

Samúðarkveðjur til Sigynar, Didda og co., algjört taktleysi hjá þessu liði þarna við kistulagninguna, svona gleymir fólk að hugsa þegar það dettur inn í rútínu og setur sig ekki lengur í spor þeirra sem syrgja!

Við lofum að knúsa hvort annað hér í Fjallalindinni í kvöld, vorum að renna niður heimagerðri pizzu sem er orðinn fastur föstudagsliður hér. Ég með magapest í vikunni og Hildur núna með streptococca. Aðrir sprækir, Gilli að vinna og vinna og nú þori ég ekkert að ergja mig yfir því. Verðum víst að þakka fyrir að hafa vinnu!!

Hafið það gott um helgina - kær kveðja til Fúsa og Kristínar Daggar sem ég efast ekki um að standi sig í þvotti, þrifum og eldamennsku. Svo er okkur reyndar öllum hollt að slaka aðeins á því annað slagið.

Anonymous said...

p.s. rakst á nokkur "áramótainnibombupappatyppi" í veskinu mínu um daginn, sem minna mig á frábæru pornodog frænku mína, hlakka til þegar þú verður hress og kætir mig aftur með frábærum kommentum á þessum ættingjasíðum okkar!!!

Anonymous said...

Ég sendi einnig hlýjar hugsanir á línuna!!! Mér er farið að líða mikið betur og vona að fleiri bætist í þann hóp sem fyrst ;)
Á morgun er Evróvision úrslitakeppnin hér heima og við ælum að halda í hefðir úr Steinahlíð og hafa fondue. Þorgerður og co koma vonandi hingað en Siggi hennar Kre er ENGIN fondue maður svo það þýðir ekkert að bjóða þeim. Góða helgi :)

Anonymous said...

HæHæ.... sendi líka baráttukveðjur til elsku bestu Arnhildar frænku, vildi svo óska þess að ég gæti knúsað hana í klessu og hugsað um Fúsa og nöfnu mína þess á milli... sendi ykkur bara netknús í staðinn.

Lofa að knúsa gormana mína mikið í dag og Siggann líka (þó hann sé ekki fyrir fondú, meiri kjáninn).

Sendi samúðarkveðjur til Sigynar, Didda og strákanna fjögurra, hugsa til ykkar.

Bið að heilsa Margréti og Klaus og sendi ykkur þremur í Þýskalandi risaknús yfir netið.

kv
Kristín E.

Anonymous said...

Kveðjur úr Steinahlíð.Einar minn er að hella upp á kaffi,var að koma úr Bónus að kaupa í kvöldmatinn sem hann ætlar að elda.Það verður ekki fondue í Seinahl.núna.Fór í Litluhl.ætlaði að heilsa upp á gestina en þær voru í bílt.og göngu.Sendi mínar bestu kveðjur til Arnhildar og hinna í Ránarg.og að sjáfsögðu til ykkar allra Magga móða.

Thordisa said...

Knús til ykkar allra heyrði í Arnhildi í kvöld og sagði henni að við í mafíufjölskyldunni stæðum alltaf saman og elskuðum hvort annað og það væri enginn að dæma einn né neitt. En núna eiga allir að kíkja á bloggið mitt setti mynd af Margréti á bloggið mitt þar sem Ásta er búin að taka spangirnar af henni svaka sæt kíkið á þetta.

Anonymous said...

Nú er orðið bjart um kl 9 á morgnana svo allt er þetta í rétta átt. Var að koma úr Mývatnssveit af þorrablóti jeppafólks, gist í Seli sem er æðislegt hótel og matur fyrsta flokks. Fórum dagsferð í Þeistareyki með tilheyrandi affelgunum og ,,festingum" en allt gekk vel á ný-upphækkuðum bilnum okkar og ferðin frábær. Mikið hlegið og dansað fram til kl 1 í nótt. Er frekar sifjuð og ætla að gera EKKERT það sem eftir lifir dagsins.
Kv affí