Tuesday, February 3, 2009

Sjónvarpstörn.

Þá er Margrét búin að vera heima í tvo daga. Við tókum upp sápuna fyrir hana og nú er legið í sjónvarpinu og horft. Vooooða spennandi. Vantar auðvitað ömmu gömlu til að vera með í þessu. En hún, sem sagt amma, hefur nú ekki neitt þarfara að gera en aka með lummur á milli bæja :) Og Arnhildur að smjatta á lummum meðan hún skrifar komment á bloggið til mín. Við hefðum sko alveg viljað vera mættar í lummukaffi, en það voru sko engar lummur handa mér, hvað þá kjöt í karrý eða ystingur, ó nei, nei. Ekki sama Jón og séra Jón. hahahaha.
En hún Margrét mín bakaði nú geðveik muffins í dag, uppskrift frá skóla Ástu. Eru ekki slæmar, og skal skrifa uppskriftina sem fyrst á bloggið. Ég var mest í strauningu, að klára að þvo peysurnar af dömunni, elda graut, og fara í fíluferð til Müden, næsta bæjar. Það var auglýst að DANSKAR vörur væri að koma hjá Lidl, frá Samsö-fyrirtækinu. En sú gamla las ekki alveg nógu vel, og sást yfir að vörurnar koma ekki fyrr en á fimmtudaginn :) En keypti eitthvað af vörum hjá Lidl, sem ég fæ ekki hér. T.d. lax, sem er frá Færeyjum og grænlenskar rækjur. Spennt að prófa hvort þetta nái upp í Ikea rækjur og laxinn þar.
Margrét gerði svo heimaverkefni. Frau Kühle kom að ná í stundaskrána sína, en svo vildi til að konrektorinn var ekki búinn að útbúa hana fyrr en í dag. Og Frau Kühle var, eins og margir í þessu stutta fríi, að heiman fram eftir degi. Svo ég náði í töflurnar fyrir 4 kennara, og þær hringdu svo í mig í kvöld. (Málið var hvort þær ættu að mæta í fyrsta tíma, og í hvaða bekk í fyrramálið.) Gott að fá heimsókn og við þurftum mikið að spjalla að venju.
Svo var píanótími. Kennslan í feb. hjá okkur.
Á fim. fer Maria vinkona Margrétar til Gifhorn í mælskukeppni. Fer klukkan 11. Má taka með sér tvær vinkonur, og Margrét fer með. Svo hún sleppur við leikfimi, híhí. Ég fer sennilega að ná í þær eftir kaffi, og fer fyrst í Lidl, -til að kaupa danskt pålæg, kransekager, tartaletter, og fleira góðgæti!!!!
Á morgun byrjar sem sé ballið. Fullt að gera á næstunni. Birthe Sass kemur og gistir á laugardaginn. Á mánudaginn eru foreldraviðtöl, og stjórnin mætir að selja kaffi. Ég þarf að búa til helling af vöffludeigi, og vera þarna í eina 5 tíma. Og svo þarf Margrét akkurat í tíma til tannlæknis, en blessaður kallinn, hann Eckerhart, sem býr með Frau Kühle, ætlar að fara með hana.
Svo er fundur fyrir foreldra í 10.bekk, farið út að borða með grunnskólakennurum á morgun eftir kennslu, --hálfnað vinnuárið. Okkur Klaus er boðið í kvöldmat þann 13. til fyrrverandi ritara úr háskólanum, , og eiginlega ætla ég á fyrirlestur þann 11. með Frau Kühle til BS.
Svo var pantað úr bæklingi frá H&M þar sem þeir voru með tilboð, og m.a. pöntuðum við bol á Arnhildi--hann var sem sagt til elsku dóttir mín!!! Góða nótt og hafið það gott.

5 comments:

Anonymous said...

Las óvart að þið hefðuð pantað bol ,,HJÁ" Arnhildi he he, sá alla fjölskylduna fyrir mér í pornóbolum. Kannski það væri bara ekki galið,ættum við að hafa svoleiðis sem einkennisklæðnað á Hjallhólsmótinu í sumar??? Hvað segja ættingjarnir um þessa tillögu?
Kv Affí

Anonymous said...

Gott að allt gekk vel á heimleið hjá Margréti. Alltaf gott að koma heim en reglulega gaman hjá henni að ná hér smá tíma á klakanum. Hefði verið gaman að sjá hana svolítið meir, en það er eins og það er!

Hafið það gott. Bestu kveðjur, Svanhildur og Arnaldur Kári

Kristín E. said...

Greinilega allt komið í fullan gang hjá ykkur aftur, nóg að gera :o)

Thordisa said...

humm það er greinilega nóg að gera þér ætti ekki að leiðast :-) Ingó fer út í fyrramálið svo ég verð ein um helgina hlakka nú ekki mikið til en lifi það vonandi af.

Anonymous said...

Hahaha... líst vel á einkennisklæðnað Affí, yrði eftirminnilegt!!!
Allt við það sama hér, danskeppni hjá Helgu um helgina, Dagur í sundi í dag og syngur og trallar, er orðinn ástfanginn á leikskólanum og ég komin með tengdadóttur, Hildur að þrjóskast við að taka bílprófið og fer vonandi að drífa í því svo hún geti hjálpað mér í skutlinu!
Bestu kveðjur til ykkar allra!