Thursday, February 5, 2009

Og enn er frost.

Fimmtudagsmorgunn runninn upp. Margrét frekar syfjuð í morgun :) Fór aftur á bíl því hún fer til Gifhorn og ég sæki liðið. Heppin þar því það er sko ekki gaman að fara á hjóli í þoku og fá hárið allt krullað:):):) Hún var bara ánægð að hitta krakkana. Erika og Lena tóku á móti henni með íslensku faðmlagi, híhí. En Maria er svo róleg að hún er ekki "fær" um að sleppa fram af sér. Erika gaf henni mynd í ramma af þeim þremur, Lenu, Eriku og Margréti, og ætlaði að gefa henni þetta áður en hún færi fyrir jólin, en vissi ekki að Margrét kæmi ekki síðasta daginn. Sætt af henni. Og þar sem kynni þeirra voru ekki sem best í upphafi--Margrét "hataði" hana :) finnst mér það alltaf svo gaman að þær skyldu sættast og verða svo bestu vinkonur.
Svo komu Kira og Lennart í tíma til hennar klukkan 3 og 4. Já, allt á fullu.

Ég dreif mig svo í matinn með kennurunum þó að ég hafi ekki ætlað að mæta. Var þar í tvo tíma og spjallaði við Frau Kühle og tvær, sem eru að klára námið. Var bara ágætt.
Doreen kom eftir kvöldmatinn, fegin að vera búin að fá Margréti aftur.

Takk fyrir kommentin. Er búið að plana Hjallhólsmót í sumar? Væri auðvitað góð hugmynd að mæta í bolum úr búð Arnhildar ,hehehehe. Affí alltaf best í hugmyndunum. Var að frétta að Affí hefði misst tveggja vikna verkefni út tölvunni, og ekki sjens að ná því aftur. Sem ég bara skil ekki. Á ekki allt að vera hægt? Vorkenni þér rosalega mikið. Svona er nú heldur betur ergilegt. Líklega best að setja allt á diskettur eftir hvern dag.
Við systur erum stundum seinheppnar. Áður en Margret kom var ég að versla hjá Aldí. Búin að setja helling af vatni, djús og öðrum vörum í kerruna. Stend svo framan við hana og tek uppúr. Og dreg vagninn að mér. Tekst að keyra á litlu tána og er enn að drepast í henni. Gat varla stigið í fótinn í tvo daga. Er ekki búin að láta líta á þetta, en plástraði allt niður. Ef táin er brotin skilst mér að þeir geri ekki annað en teypa þetta fast. Heppin þar, eða....
Hvað er að frétta af Maddý, sem meiddi sig í öxlinni? Hvað kom út úr læknisferðinni?

Var að skoða myndir hjá Svanhildi. Hún er búin að setja rosalega fallegar vetrarmyndir inn á síðuna. Þið verðið að kíkja á þetta. Veðrið hefur greinilega verið himneskt.
Hér er enn frost flestar nætur, og spáð snjó eftir helgina og kólnandi. Er eiginlega alveg að verða komin með nóg af þessu pínulitla frosti, sem er til lítils gagns og skapar manni bara vinnu við að skrapa ísinn af rúðunum. En það er víst bara komið fram í febrúar.

1 comment:

Anonymous said...

Sæl. Gott að sjá að allt er að komast í eðlilegt horf hjá Margréti. Það var gaman að hafa hana hérna. Verst að hún er farin því við stefnum á Álftavatn um helgina, en þar bara hlýtur að vera flott skautasvell núna. Við ætlum að nýta okkur það. Var á VG fundi áðan og þangað kom Bryndís Helgadóttir frænka okkar og með henni mamma Sólu Braga. Sólumamma fékk greinilega upplýsingar um hver ég væri hjá Bryndísi og spurði eftir þér Þýskalandssystir og vildi frá fréttir af ykkur. Svo bað hún fyrir bestu kveðjur.
Vonandi verður helgin góð. Bróðurkveðjur úr Vesturbænum