Thursday, June 26, 2008

Við verðum Evrópumeistarar! Ekki vafi.

Það er svo langt gengið að ég er farin að horfa á fótbolta:) Þetta var bara fínasti bolti, þó að okkar menn hafi nú ekki sýnt mikla snilli í leiknum. En unnu samt. Hér er rosa stemming og fólk horfir saman á sjónvarpið. Bæði á breiðtjöldum og í bíóum. T.d. í Cinneymax í Bs., en þar er ókeypis í bíó að horfa á beina útsendingu í 4 sölum. Enda kæmi enginn í bíó á þessum kvöldum.
Ótrúlegt að pabbi skyldi fara að hátta, en hann situr örugglega við sjónvarpið á sunnudaginn.
Allt gott af okkur að frétta. Fórum í gær til Hildegard og Hannelore. Kaffi, með jarðarberjatertu, og freyðvín og hvítvín. Ég bílstjórinn drakk nú lítið. Þær stöllur alltaf jafn almennilegar og gaman að koma til þeirra í þessa litlu Paradís. Þær vorum síðan boðnar til nágrannanna að horfa á boltann. Hafa örugglega skemmt sér vel. Það var ákveðið að þær tækju pabba og mömmu með í lestarferð á þriðjudagsmorguninn, klukkan hálf tíu. Stefnt á Bremen, og farið á ódýrum miða, sem gildir fyrir 5, kostar 27 evrur fyrir alla staði í Niedersachsen.
Þetta er á afmæli Klaus, en hann er í sjúkraþjálfun, og kemur ekki heim fyrr en klukkan 7. Margrét fer til tannlæknis, og við því uppteknar.
Í dag var ég á fullu við að þrífa og baka. Ritter hjónin komu í kaffi. Var fínt og allir hressir. Mamma og Margrét horfðu samt á sápuna eftir kaffið. Voða spennandi. Ég hef ekki mátt vera að því að horfa í nokkra daga. En það kemur að því. Klaus kom snemma heim til að hitta Ritter. Mamma og Margrét bökuðu pönnukökur, ég "gallopstange" með döðlum og kókosbananaköku.
Í gær færðum við Margrét Maju við hliðina blóm. Hún fór alveg hjá sér, og sagði að hún hefði nú ætlað að koma með blóm til mín! Ég sagði að hún gæti nú fært mér Prins Póló þegar hún færi næst til Pólands. Hún átti ekki til orð. Hvernig eg þekkti Prins Póló. Ég sagði henni að við ættum m.a.s. lag um Prins Póló, og söng fyrir hana Pris Póló það er meiri gæinn:) Hún skellihló og ætlar að redda mér þessu í júlí þegar foreldrar hennar koma.
Takk fyrir skrifin. Hvað meiningar eru þetta nú--ég sem fyrirsæta á síðum pornoblaðanna! Það sem henni Affí dettur í hug. Er ég ekki mest ósexý kona what ever! Ég hlýt að taka þessa sem hrósi:) Voða gaman að Affí og Arnhildur séu farnar að skrifa af innblæstri aftur:) :) :)
Diddi takk fyrir myndirnar og bréfið. Greinilega frábær ferð.
Hlakka til að geta sofið til 8.30 á morgun!!!!!!!!! Góða nótt

7 comments:

Anonymous said...

Alltaf gaman að lesa bloggið þitt elsku mamma. Ég sit hér í kjallaranum mínum og borða spaghetti bolognese sem ég bjó til í gærkveldi og hafði með mér í nesti-því ekki kemst ég út úr holunni minni í mat. Næsta sumar verð ég orðin að moldvörpu-eða er ég orðin það, allavega píri ég augun mikið þegar ég kem upp úr gluggalausa birginu mínu eftir vinnu og sé að það er bara geðveik birta úti. Vinsamlegast bættu einum glugga í fatapöntunina mína ;)
takk ykkar Arnhildur moldvarpa, holu sex, gluggalausa kjallaranum Sunnuhlíð 12

Anonymous said...

Til Margétar..(ekki láta KLaus sjá)..
Elsku systir hér kemur flottasta nafn á DVD sem ég hef hingað til séð;
Bi-Total, Hier geht´s rund...wer fickt noch mal, wer hat noch nicht?
AAarrrgghhh,hahahaha,híhí,þvílík snilld..þín SuperBusen Arnhildur

Kristín E. said...

heheheh Arnhildur snilli :þ

kvitta fyrir að lesa bloggið... þykir það tíðindi að Áslaug frænka mín horfi á fótboltaleik :þ ég horfði líka en það eru engar fréttir :D

Anonymous said...

úpps ekki náðist að vinna leikinn, en til hamingju með annað sætið !!!

Anonymous said...

Nei "við" unnum víst ekki leikinn en þjóðverjarnir stóðu sig samt vel og spánverjarnir áttu þetta víst örugglega skilið... En svei mér þá ef ég uppgvötaði bara ekki smá "þýskar-þjóðernis-tilfinningar" hjá sjálfum mér á meðan á þessu fótboltamóti stóð!!!
kv að sunnan -Aldís

Anonymous said...

Aumingjarnir litlu-náðu bara öðru sætinu..hehe! Get ekki annað sagt en að mér sé nákvæmlega sama,eins og afi segir alltaf þá er fótbolti uppgötvun djöfulsins!! jors trúlí Arnhildur pornodog af guðs náð....

Anonymous said...

h.æ hæ. Er komin norður aftur, allt að smella á Snorrabrautinni. Var að koma úr ´myndlistaskólanum og aðkoman ekki góð. Veit ekki hvort þið voruð búin að frétta að það kviknaði í skólanum um helgina, eldurinn náði ekki að fara um nema lítinn hluta skólans en það er einfaldlega allt ónýtt innandyra, það sem ekki brann er ónýtt af sóti og brunafýlu. Verið að reyna að koma helstu gögnum út til að láta ljósrita eða endurskrifa, en öllu örðu verður hent. Mín kennslugögn öll ónýt, en það er smáræði miðað við allt annað. Húsið verður tæmt, og skrælt að innan, allar klæðningar gólfefni, bara allt ónýtt. Ég anga eins og gamlársbrenna eftir að hafa verið að fara í gegnum dótið. Hræðilegt ástand, spurning hvernig verður með skólann, hvort það náist að gera klárt fyrir vetur og eins hvort tryggingar nægi fyrir öllu sem þarf að kaupa. Púfff! Já annars eru allir hér í góðum gír. Vonandi hafið þið það öll gott. Kv affí