Stend mig ekkert í þessu, en er þó betri en Kirstín og Þórdís:) Hvað eru þær að bardúsa. Takk fyrir kommentin. Sérstaklega glöð að heyra frá Maddý, og hlakka til að sjá mynd af best klæddu konunni:) Svo kom "prufa lilla". Var sú gamla að reyna að skrifa líka? Er svo glöð að heyra af fína veðrinu heima. Það helst örugglega því pabbi missir alltaf af góðu veðri fyrir norðan. Og hann er nú að koma á föstudaginn.
Hér er hrikalega heitt. Og rakinn var alveg að fara með fólk í gær. Fór yfir 30 stig um helgina. Við ætluðum að grilla eftir garðvinnu á laugardaginn, en þá fóru að heyrast hljóð úr ausrtrinu. Svo það var allt tekið inn, og kjötið bara steikt á pönnu. Smakkaðist bara vel. Verst þegar hann er með svona hrikalega rigningu að sandur og mosi spýtast upp úr rifunum milli steinanna á stéttinni. Ég þarf að þrífa hvern pott, garðhúsgögn, og glugga og dyr eftir svona törn. Var í lengri tíma að sópa mosa og sandi á stéttinni á sunnudaginn. Enda ekki nein smáræðishellidemba.
Klaus klippti hekkið við veröndina. Ég setti fræ niður, og hreinsaði beð. Þreif potta, og setti mold í. Sonja litla var lengi hjá mér og við spjölluðum mikið og gáfulega. Svo kom nú Lukas litli heim á mánudaginn, og þau eru heldur betur fegin að vera aftur saman.
Foreldrar hennar eru í beyglum út af vatni. Hér kostar sko ekki neitt smá að nota kalt vatn, og aðalega þarf að borga fyrir það sem fer aftur ofan í jörð og skólpræsin. Við héldum að þau væru með "brunn" eins og við. Við fengum pumpu, sem er tengd við grunnvatn, og um leið þau við hliðina. En þeir nágrannar hafa víst tekið sína pumpu með, og rörið er líka horfið. Svo ég bauð henni að nota mína pumpu og ef hún vildi gæti hún sett hana í samband við sitt rafmagn! Henni þykir það alveg voðalegt að þurfa að þyggja slíkt.
Að mér skuli detta svona í hug sé nú alveg einstakt.
Erum við íslendingar eitthvað einstakir? Ég þekki ekki annað en að vera hjálpsamur og gera sem flest fyrir aðra. Er það ekki aðalmálið í tilverunni? :)
Margrét er að læra undir próf. Tvö í þessari viku. Hún er náttúrlega dauðþreytt á morgnana í þessum hita, en er samt fegin að það sé hlýtt. Ég þoli vel hita, en hann er ekki til þæginda þegar verið er að vinna af kappi.
Búin að taka gluggana í stofunni í gegn. Þvo gluggatjöldin. Og klára svo stofuna í dag. Ætla að gera sem mest áður en þau gömlu koma og hafa þá frí með þeim.
Pabbi ætlar ekki að fara neitt--nema náttúrlega til BS, kannski Celle, til Hildegard og Ritter, og svo finnum við örugglega fleira að gera, hí,hí.
'Í gær hringdi Frau Kuhle. Hana langar til að pabbi skíri Miju, barnabarn hennar. Það yrði þá 21.júní, laugardag. Okkur skilst að pabbi þurfi ekki að koma með neitt til sönnunar um að hann sé prestur, en kannski hann eigi einhver skilríki upp á það. Helst vill frau Kuhle að athöfnin fari fram við ána hérna hjá Listamannahúsið. Það er voða vinsæll staður fyrir skírn, svona undir berum himni eins og hjá Jesús forðum. Sjáið þið ekki pabba fyrir ykkur við skírn á árbakkanum:)
Við mamma og Margrét syngjandi íslenska sálma, því ekki er til neinn fallegur skírnarsálmur hér. Þið fáið að fylgjast með:)
Ég fór nú alveg með afmælisritualið fyrir helgina. Gáði ekki að því að það væri kominn afmælisdagur FAF, og hann loks búinn að ná í skottið á frænkum sínum. Hringdi svo í hann og Didda. Gott að FAF skuli komast í unglingavinnu í mánuð. Og svo verður hann örugglega að vinna eins og áður við sumarbústaðinn.
Mamma og pabbi ekki lítið ánægð með kórferðina til Vopnafjarðar. Það er mikils virði að vera í góðum félagsskap. Og nú styttist í kórferð Didda. Fjör á allri línunni.
Klaus er í ferð með vinnufélögunum. Hann tók 6 kollega með, og ók til Werningarrode á Harzfjalla svæðinu. Þar er meiningin að labba kannski eina 12 km. þessir þjóðverjar! Og það í þessum hita.
Og þann 4. júlí fer Margrét í rosalegan hjóltúr. Fyrst 22 km og svo 15 km. Áheit fyrir hvern kafla frá vinum og vandamönnum. Verið að plokka peninga frá fólki þar sem ekki er neitt til af hendi ríkisins. Og svo er það svo rosalega gott að börn reyni á sig og finni sín mörk. Það sem ekki drepur mann, gerir mann harðan er sko mottóið hér. Best að herða upp í liðinu. Lífið gerir það nú ekki, eða?--------
Þegar Margrét losnar úr þýskum skóla mun ég reka upp fagnaðaróp svo heyrist milli þorpa :)
Hvað haldið þið að einn sálfræðingur sé með marga nemendur á sinni könnu? T.d. 22 þúsund, í Osnabrück. Víða er ástandið ekki betra.
En við lítum björtum augum fram á við, og hlökkum til að fá mömmu og pabba og gleymum þessum þýsku skólum, og njótum veðurblíðunnar.
Í júní fer jörðin að glitra
af jurtanna angandi blóma,
og sáðmannahugir fá mildi og mýkt
í morgundýrð lita og hljóma.
Með þessu erindi eftir langömmu bið ég ykkur vel að lifa og njótið þið júní af öllu hjarta. :)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Já ég hef lítið bloggað hefur verið mikið að gera í vinnunni og heima fyrir allt á hvolfi við að klára að mála og ganga frá og það er alveg að klárast. Í dag er bongóblíða sól og dásemd og ég á fullu að flakka milli vinnu og skóla barnanna þar sem þau eru með kynningar og annað og svo foreldraviðtala hjá Ástu. Og bara að láta þig vita að börnin mín hlupu til styrktar Unicef um daginn og varð ekki meint af og svo gátu þau sem vildu hjólap upp í Katlagil en það eru 25km og fullt af krökkum gerðu það í roki og rigninu og hana nú þetta drepur þau ekki híhí... mikið vildi ég að ég væri að koma með mömmu og pabba þarna út!!!
Ég væri líka alveg til í að koma til ykkar!!! Gaman að lesa þennan indæla pistil-bjartsýnin ríkir sem sagt þessa dagana í júní byrjun. Ekki bara hjá þér móðir góð, heldur líka hér hjá mér. Sakna ykkar alveg rosalega mikið- ykkar pornó Arnhillldurr
Gott að heyra hvað þið mæðgur eruð bjartsýnar... Arnhildur auðvitað jákvæð eftir að ég droppaði í heimsókn um daginn :þ alltaf gaman að hitta elsku litlu frænku hehehe Við komum vonandi aftur í sumar, gaman fyrir börnin að sjá kanínuna og kisu :o)
Fer alveg að blogga.. er enn að ná úr mér ferðaþreytunni frá Sverige, 4 flug, 4 lestarferðir, 3 rútuferðir, 3 hótel og allt á 4 dögum :þ
Frábær bjartsýni í skrifunum núna, þetta er lagið ;)
Post a Comment