Sunnudagur, og heldur betur heitt. Ein 27 stig. Smá gola, en mætti vera meira. Arnhildur spyr hvenær afi ætli í fyrstu innkaupaferðina. Hún var náttúrlega farin í gær :) Þurfti að ná í nýju gleraugun, og við renndum til Gifhorn eftir hádegið. Mamma keypti sér hvíta inniskó, og pabi fékk sér rándýra Sioux skó, sem að dómi mömmu eru alveg eins og skór heima í skápi. Þau er sem sé sjálfu sér lík! Fórum í matvöruverslanir, og vorum að bráðna er heim kom. Svo var grillað, og slappað af. Við hliðina var party, og mikið fjör fram til hálf tólf. Sonja og Lukas í essinu sínu. Voða fjör að við skulum vera með afa og ömmu í heimsókn, og mikið spurt af hverju þetta og hitt :) Þau komu nokkrar ferðir að svaladyrunum, og sögðu hæ, og fóru svo og "lokuðu okkur inni í fangelsi" þar sem við erum með flugnanetshurð, sem hefur greinilega kallað fram þessa samlíkingu:)
Pabbi búinn að fara í tvo stutta göngutúra, en er heldur slappur. 'Ég er að pína hann til að drekka vatn sem oftast. Þeim hjónum ber ekki saman um hvort hann hafi sofið vel eða hóstað í mest alla nótt. Sem sé sama sagan og vanalega :)
Margrét að læra undir próf. Klaus að aðstoða hana. Búið að borða fyrstu jarðarber ársins. Rabbarbarakaka í ofninum, sem jafnast ekki á við magnið og flottheitin í kaffiboðinu hjá Möllu. Skemmtið ykkur vel, og vildi gjarnan vera mætt í fjörið.
Vildi líka gjarnan hafa Arnhildi hérna hjá okkur, en það verður bara seinna. Gott að allt gekk vel hjá FAF í afmælinu hans. Ekki allir, sem eiga sumarbústað til að bjóða bekknum í, og geta verið úti í dýrðlegri íslensku náttúrinni.
Já, segi nú eins og Diddi--hver konar orð er Vikotorí systir farin að taka sér í munn/skrifa :) :) :)
Á morgun er svo fyrsta BS ferðin plönuð. Enda tími til kominn , ekki satt!
Margrét fer til Bergen Belsen ( þar sem Anna Frank dó) á þriðjudaginn. Ég þarf svo á foreldrafund á fimmtudagskvöld. Ergilegt að það hitti á afmæli mömmu.
Erum búin að kíkja á óskir Ástu , og ætlum að hringja í hana í dag. Mamma komin með handavinnu. Situr úti undir sólhlíf. Er að klára mynd, sem Margrét hefur ekkert saumað út í lengi. Pabbi liggur í sófanum, og er búið að setja undir hann 3 teppi til að fæturnir liggji nú rétt. Sófinn er sko of stuttur.
Allir hressir, og glaðir.
Ég þakka kærlega fyrir : dósirnar 3 frá Sigyn, verður ekki skortur á blöndu á salötin á næstunni. Fjallagrösin frá Lillu, bókina frá Didda. Margrét þakkar fyrir fína túrista skrautið frá Ássý. Fyrir fína dúkinn,/ myndina? frá Kristínu úr þæfðu ullinni, og líka diskana frá þeim. Fyrir fína blaðið með myndunum af fötum Gumma, afsakið Munda. Við þökkum fyrir vínarbrauðið Þórdís. Þið megið geta hver fékk mest. Svo ligg ég í Hjemmet, og nýt þess að vera í huganum í dejlige Danmark.
Hafið það öll sem best. Verð dugleg að skrifa um þau gömlu. Og læt Margréti birta myndir í erg og gríð. Hafið það gott, ---bestu kveðjur frá öllum 5 á Vorfeldweg.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Gleymdi meira að segja einu, Össi bjó til rækjusalat og við vorum með ritz kex með því ;) Afmælisveislan gekk vel, fengum gott veður og krakkarnir voru í vatnsbyssustríði, engin fór þurr heim,tihi ;) Vildi samt fá hita frá ykkur hingað.....
Flottar myndir og gott að heyra að ferðin hjá Hillu og Erni hafi gengið vel :o)
Hafið það gott í hitanum
Gaman í afmæli Einars Arnar í dag -held að Diddi hafi meira að segja farið blautur heim úr þessu vantsbyssustríði...
Þessi "ljótu" orð frá Viktoríu eru beint frá Arnhildi komin - hehehe...
Bið kærlega að heilsa í hitann!!
Ásta fór í vinnu í morgun bíð bara spennt eftir að heyra frá henni. Haraldur Ari frændi hennar sonur Stefáns verður að vinna með henni og það er bara gaman, svo er líka Sigga og Auður hennar Lindu svo sumarið ætti að vera tóm skemmtun. Svo styttist í Lanzarote....
Post a Comment