Gaman að þessu. Svo er að setja systur mína í svona pæjustellingar og láta hana svinga í rólunni, ekki satt? Margrét, drífa í þessu. Erum annars við Álftavatn nema FAF sem var skilinn eftir einn í bænum enda vinnumaður mikill. Förum til baka á morgun en ekki í dag því konan á neðri hæðinni fann silfurskottur og lét eitra, líka hjá okkur svo það er heppilegra að vera ekki heima í nótt. FAF sefur bara á tröppunum í nótt. Bestu kv. Diddi
Sá ég ekki rétt í Mogganum í dag að afi Sigynar eigi 80 ára afmæli í dag? Ef svo er, til lukku Sigyn og afkomendur. Áddu í róluna, líst vel á það. Flottar myndir Margrét! Vonandi fer vel um FAF á tröppunum í góða veðrinu ;)
Bíðið bara þangað til Áslaug fer að sitja fyrir í auglýsingabæklingi í búðinni hennar Arnhildar... Þá fyrst verður gaman !! Flottar myndir. Við Aldís á suðurleið á morgun, þurfum að taka út vinnuna hans Ella, komum heim á sunnud kvöld. VÖ verður að vinna alla helgina svo hann kemst ekki með. Skellum okkur kannski á tónleikana með Björk og Sigurrós ef veðrið verður gott. Kv affí
Haldiði ekki bara að allar ljósmyndir fyrir bæklingana hér í Adam&Evu séu teknar í Þýskalandi, flest dótið kemur líka þaðan-nú vitum við hvar Klaus fékk milljónirnar áður en hann kynntist mömmu. Og mamma er ekkert að vinna í gæslu eins og hún segir...hehe, -Arnhildur
Áslaug Arnardóttir, fædd 1955. Lukkuleg móðir tveggja dætra. Arnhildur fædd 1977 og Margrét fædd 1993. Ömmubarnið mitt Kristín Dögg er fædd 1997. Gift honum Klaus Wendt, og bý í litlum bæ, Meinersen, í Niedersachsen, sem er í norðurhluta Þýskalands. Vinn við grunnskóla í hádegisgæslu.
Framtíðarmarkmið er að eignast nýja íbúð í öðru landi með risa stóru eldhúsi og elda og baka ofan í sem flesta vini og vandamenn.
6 comments:
Fínar myndir :o)
Þið eruð algjörar pæjur, frænka bara eins og alvöru fyrirsæta !!
Gaman að þessu. Svo er að setja systur mína í svona pæjustellingar og láta hana svinga í rólunni, ekki satt? Margrét, drífa í þessu.
Erum annars við Álftavatn nema FAF sem var skilinn eftir einn í bænum enda vinnumaður mikill. Förum til baka á morgun en ekki í dag því konan á neðri hæðinni fann silfurskottur og lét eitra, líka hjá okkur svo það er heppilegra að vera ekki heima í nótt. FAF sefur bara á tröppunum í nótt.
Bestu kv. Diddi
Sá ég ekki rétt í Mogganum í dag að afi Sigynar eigi 80 ára afmæli í dag? Ef svo er, til lukku Sigyn og afkomendur.
Áddu í róluna, líst vel á það.
Flottar myndir Margrét!
Vonandi fer vel um FAF á tröppunum í góða veðrinu ;)

Post a Comment