Thursday, June 19, 2008

Ferð í myllusafnið.

Fimmtudagsmorgunn. Ég að koma inn eftir spjalla við Christine, sem vinnur með mér í skólanum. Þau hjónin eru að byggja nýja húsið hérna bak við húsið hans Lukasar litla. Vissi ekki að það væru þau, og varð heldur betur hissa. Húsið er handa tengdaforeldrum hennar, og amman flytur líka inn. Alltaf voða spennandi þegar eitthvað er að gerast. Einingahús, og verður komið upp á morgun. Í gær var verið að bora. Við vissum ekki fyrir hverju. Hvert rörið eftir annað kom upp úr jörðunni, og fylgdu góðar gusur! Nú frétti ég að þau ætli að nota hitann í jörðunni, sem mun vera um 10 gráður, til að hita upp með. Hef aldrei heyrt um þetta fyrr. Nema náttúrlega heima út af jarðhitanum. Dýrt að bora, en hækkanirnar á gasinu valda því að fólk vill leita nýrra leiða.
Engin sól í bili. Var fínt í gær. Sól og vindur og ský til skiftis. Notalegt ferðaveður. Ég dreif mömmu og pabba til Gifhorn í myllusafnið. Það kom í ljós að mamma hefur aldrei komið í rússnesku kirkjuna, sem er full af glingri og málverkum. Allt eftirlíkingar, en voða gaman að skoða þetta. Þau voru mjög ánægð með ferðina. Við settumst inn á veitingastaðinn, og fengum okkur kaffi og sykurkökuna góðu, sem smakkaðist vel. Margrét var heima, því hún fer í 3 próf í næstu viku. Var eitthvað að læra, en annars gerir hún ekki mikið af því að liggja í námsbókunum. frekar i Harry Potter :)
Pabbi reyndar fékkst til að sitja úti á veröndinni í þó nokkuð langan tíma. Við vorum að spjalla um þetta og hitt. Fólk að heiman, hvað hefði orðið um það. Ég hef ekki séð Sigrúnu á Heiði frá því ég fór í MA held ég barasta. Ekki heldur Kristjönu nema einu sinni á flugvellinum í Reykjavík, hvað þá Hafdísi, og kannski rekist einu sinni á Árna Vésteins. Þessi árgangur er ekki eins duglegur og þau í bekk Didda. Við vorum líka svo fá.
Pabbi fór í langan göngutúr í gær. Og svo allt labbið í safninu. Svo er hann að verða búinn með fyrstu vatnslitamyndina.
Stefnt á ferð til BS í dag. Vona að hann rigni ekki.
Hildur B. og Ásgeir eignuðust fyrsta barnabarnið 12. júní, voða stolt. Sendu nokkrar myndir.
Hans Óttar sem sé faðir. Þarf að senda þeim kveðju.
Takk fyrir kveðjurnar frá ykkur.
Malla -var ekki gaman úti í ánni með Arngrími:) Þú mátt skrifa lýsingar á þessu fyrir okkur. Mér skilst að Helga Margrét hefi verið ásátt við þetta þar sem hún fékk fyrir vikið að fara heim á hestinum :)
Antik Café er hérna í Meinersen. Straks þegar maður kemur inn í bæinn að vestan. Það eru ansi mörg svona kaffihús. Aldís B. kannaðist við þetta, en kannski það hafi verið annað.
Diddi búinn að hringja tvisvar. Gott hjóð í þeim. Þau syngja náttúrlega fyrir þá, sem vilja og ekki vilja heyra :) Jæja. Er á leið í sturtu, og svo að ná í jarðarber. Pabbi er ekki búinn að fá slíkt nema þrisvar. Engin frammistaða.---------- Bestu kveðjur----.

2 comments:

Anonymous said...

Er afi bara búinn að fá að háma í sig jarðarber 3svar, og Diddi bara búinn að hringja 2svar..þetta er ekki nógu gott! Hér er veðrið frekar kalt, 4 stiga hiti og vindur, leiðinlegt að hún dóttir mín skuli ekki fá betra veður í sumarbúðunum. Annars er allt fínt að frétta þaðan og hún skemmtir sér vel, kemur heim á morgun. Hér er bara gott...sko ég sagði að það væri smitandi að lesa bloggið frá fjölskyldum okkar, lengdin smitar út frá sér!! Ég er meira segja komin með snert af þessu...he he he...eða kannski er lítið að gera akkúrat núna í kláminu hérna,
kveðjur Arnhildur

Kristín E. said...

Takk fyrir bloggið :þ ég var enn að blogga hehehe annað hvort skrifa ég ekkert eða þá daglega hehehe
Bið að heilsa öllum