Saturday, June 21, 2008

Fínasta veður.

Laugardagskvöld. Við kvennfólkið búnar að horfa á mynd, sem Arnhildur sendi systur sinni. Skemmtum okkur vel yfir tveimur fjölskyldum, sem slógu saman með alls 18 börn. Pabbi lá uppi með bók og hlustaði á tónlistina sína, Klaus var í tölvunni, og vistaði t.d. póst frá Þorgerði,- flott "mark" hjá fótboltaleikmanni. Manni fer nú ekki að standa á sama um hana Viktoríu systur! :)
Ég er svona frekar þreytt eftir síðustu tvo daga. Tók tiltektartörn í gær. Efri hæðin þrifin, og veitti ekki af. Sett hreint á rúmin. Ók svo Margréti eftir kaffi til Müden að heimsækja Maríu, bekkjarsystur hennar. Þau gömlu með. Keyptum rosa flott blóm, og nutum þess að skoða allt, sem óx í gróðurhúsinu. Svo í Lidl verslunina, og keypt í matinn. Heim með viðkomu í Netto til að fá réttu mjólkina og kaupa Brötchen í kvöldmatinn. Svo að ná í dömuna klukkan 7. Mamma skrapp með, og var hæstánægð með að ég ók fram hjá götunni út úr bænum, og fór því aðra og lengri leið. Alltaf gaman að skoða sig um.
Þórdís hringdi úr Litluhlíð meðan ég var í vinnunni. Hress að vanda. Pabbi fékk jarðarber í fjórða skiftið. Mamma tók að sér strauningar og stóð sig vel í því , og sá um viðgerð á buxum af Margréti og peysu af Klaus. Við slógum á þráðinn til Lillu, og fréttum allt það helsta af liðinu. Svo reyndi Ássý að ná í okkur, en við mamma þá akkurat að ná í Margréti.
Í morgun fór ég á fætur fyrir 9. Náði í Brötchen, og lagði á borðið. Liðið smám saman mætt í morgunmat. Hreinsaði illgresi um stund. Klaus vökvaði allt með garðúðaranum, og mamma var í snúningum fyrir mig. Fylla garðkönnuna þegar ég setti nýju blómin í potta og fleira slíkt.
Grautur að islenskum hætti í hádeginu. Jarðarberjakaka í kaffinu. Þá farið til Gifhorn í byggingarvöruverslun. Vantaði grind á veggi fyrir klifurblóm, tunnu undir rusl, lúsarsprey og sniglaeitur svo eitthvað sé nefnt. Á eftir því farið í Real, og m.a. keypt dekk fyrir hjólin á reiðhjóli Margrétar, sem eru nánast orðin slétt. Splæstum á okkur frosnum dönskum eldislaxi frá Danmark, sem á að vera í matinn á morgun. Spennt hvort hann uppfylli væntingarnar. Pabbi og mamma aðstoðuðu Margréti svo við að finna íslensk mannanöfn og útskýringar á þeim. Hún sendi svo kennaranum það á tölvunni. Margt, sem þjóðverjum þykir skondið. T.d. að heita Máni, Sunna, Dögg eða Mist.
Bara pizza úr frysti í kvöldmatinn, og eftir að ég var bún að setja í uppþvottavélina settist ég með lappirnar upp á skemil, og horfði á myndina. Þetta var orðin góð törn.
Á fim. fórum við til BS. Pabbi komst nú loks í Haus Dänemark, og frétti að vinur hans væri dáinn. Sá þýski, sem bjó með honum, rekur búðina áfram. Svo komst pabbi í fornsöluna, en ekki var mikið úrval af gullkeðjum. Hitti "vinkonu" sína í annarri fornsölu, og allavega kom hann heim með skjóðu. En hvað í henni var, veit ég ekki. Sjálfsagt ekki mamma heldur, en eins og alþjóð veit, eru þau ekki hjón, sem taka ákvarðanir saman. Pabbi gerir akkurat það, sem hann vill við peningana og henni kemur ekki við í hvað þeir fari. Er ekki hjónaband samband tveggja einstaklinga, sem reka sameiginlegt "fyrirtæki", nefnilega fjölskyldu? Vona að þið verðið aldrei svona. Enda eru víti til að varast þau.
Margrét mátaði bikini fyrir Ástu. Ég tók myndir af henni í klefanum, og við settum það á netið. Bíðum svo eftir svari um hvaða bikini við eigum að kaupa. Það er útsala i öllum búðum. Svo við féllum fyrir nokkrum bolum í Vero Moda. 12 og 5 evrur eru ekki mikið verð.
Ekkert ísát í þetta skiftið. Vorum frekar að flýta okkur, enda skóli snemma daginn eftir.
Margrét var í sundi á fö. Hún er að æfa sig að kafa og gengur svona og svona. Sundkennarinn sagði henni að setjast á bakkann. Hún spurði hvort hann ætlaði nokkuð að hrinda henni úti. Nei, nei, --og svo vissi hún ekki fyrr til en að hann hrinti henni úti. Hún var enn í sjokki yfir þessu er heim kom. En bar sig vel, og varð ekki brjáluð eins og ég hefði örugglega orðið.
Næsta fö. fer hún svo að taka á móti þessum enskuverðlaunum, og sleppur við sundið.
Það fer að verða nóg að gera síðustu dagana hjá mömmu og pabba. Erum að reyna að finna dag til að fara til Hannover í dýragarðinn, og eins til Celle. Verst að Margréti langar með, og út af skólanum er ekki alltaf létt að finna heppilegan dag. En við finnum út úr því.
Vildi að þessir þjóðverjar hefðu sumarfrí í 2 mánuði:)
Fengum nokkrar myndir af Kristínu Dögg í sumarbúðunum. Takk kærlega fyrir það. Væri gaman að fá fleiri af henni og Alex líka.
Best að fara í háttinn. Góða nótt.

4 comments:

Kristín E. said...

Greinilega nóg að gera í Meinersen :o) Getur Margrét kannski sett inn mynd af Kristínu Dögg í sumarbúðum hér á síðuna??? Það væri gaman að sjá nýja mynd af nöfnu minni.
Var enn að blogga og setti inn 3 myndir :o)
Bið að heilsa öllum

Anonymous said...

Æ það er nú ekki alveg rétta leiðin að ýta henni frænku minni út í !!! EÖ var að klára sundnámskeið,8 skipti, og stóð sig með prýði. Í síðasta tímanum var sýning fyrir foreldra og þar var t.d. sýnt þegar börnin köfuðu eftir peningum. Minn maður skilaði af sér fullri lúku,peningamaður eins og mamman hehe.

Anonymous said...

taka tvö! tekst alltaf að klúðra þessum skrifum. Allir hressir hér, Aldís byrjuð að vinna hjá gallup við símaskoðanakannanir og með mjög góð laun, ætlar að hætta í garðinum og fara í fulla vinnu hjá gallup, er með tæpar 1500 á tímann. VÖ ánægður í bensíninu, Elli fyrir sunnan að setja saman eldhúsinnréttinguna og fínisera. Ég aðallega í garðinum þesa daga og tiltektum. Síðbúnar afmæliskveðjur til mömmu, vorum ekki með númerið ykkar fyrir sunnan. Allir hressir, þordís og ingo farinn suður. Kv affí

Anonymous said...

Gat ekki annað en brosað þegar ég las þetta með íslensku nöfnin og að þjóðverjunum finnist sum þeirra undarleg eins og til dæmis Sunna og Máni... Jæja við Christof völdum þá bara undarleg nöfn á börnin okkar -og erum bara nokkuð sátt við það... Frétti meir að segja af tveim öðrum systkinapörum heima á Íslandi sem bera þessi sömu nöfn... Skondið hvernig ákveðnar ,,nafnabylgjur" ganga yfir.

Bestu kveðjur úr suðurhelmingnum, Aldís