Monday, June 23, 2008

Þrumur og eldingar.

Klukkan orðin 8 á mánudagsmorgni. Pabbi kominn á fætu fyrir hálftíma. Ég búin að hengja út þvottinn, sem var þveginn í gærkvöldi. Mamma les eða sefur, og Margrét farin í skólann með Klaus á bílnum. Klaus var að setja ný dekk á hjólið hennar, og þá kom í ljós að einhver gúmmíhringur undir slöngunni var ónýtur. Svo hún er eiginlega hjóllaus þar sem hún vill ekki fara á mínu. Það er ansi hress vindur í augnablikinu. Sól, og spáð um 19 stigum.
Í gær var mjög heitt. Ein 27 stig, og þægileg gola. Klaus sem sé í hjólastússinu, og svo að vinna á tölvu. Við mamma skrúfuðum fast hengi í skúrnum, sem datt af fyrir nokkrum vikum. Loks aftur hægt að laga til, og
ég var löðursveitt við tiltektina. Klippti svo af runna, sem vex við bílastæðið. Arnhildur fékk að leika sér að því í fyrra:) Lauk við að setja blómin í potta. Margrét þurfti að læra heil mikið. Svo horfðu þær amma á sápuna, sem tekin var upp tvisvar þar sem við vorum að heiman. Voða spennandi! Frau Kühle kom til að ræða um skírnina, sem verður klukkan 2 á laugardaginn. Þetta verður fámennt, en vonandi bara gaman. Pabbi spjallaði við hana og við sýndum henni nýju vatnslitamyndina hans. Svo sótti pabbi silfurfatið, sem hann sýndi okkur ekki í BS. Hann las nefnilega bloggið, og hefur skilið sneiðina, -ekki satt pabbi:) Er að fara núna á eftir til prestsins hérna til að fá handbók, og ath. með hempu. Svo er ég guðmóðir litlu Míu, og þarf að ath. hvernig það sé ef ég stofni bankabók handa barninu. Því þau eru á hreppnum. Þegar fermt var í vor, kom í ljós að fermingargjafirnar, sem blessuð börnin fengu, voru taldar fram sem "peningaeign" foreldranna, og minnkaði hreppurinn greiðslurnar sem því svaraði. Haldiði að þetta sé smánarblettur á svona ríku samfélagi. Í blöðunum í dag er sagt frá rosalegum flugvélakaupum fyrir ríkisstjórnina, til þess að þeir geti ferðast sem öruggast og fljótast. Talað um meira en 600 milljónir. Og í sama andartaki er sagt að ekki séu til peningar handa skólum og börnum, handa veikum og gömlum. Ef Guð er til þá hlýtur hann að vera orðinn heldur betur vonsvikinn á okkur mönnunum.
Mamma sauð svo laxinn í kvöldmatinn. Hann var verulega góður. Gott hvítvín með. Horfðum svo á endursýndan krimma. Ekki verið að splæsa á mann nýjum í þessari fótboltahrinu. Mér skilst að þjóðverjar keppi móti tyrkjum. Það gæti þá orðið götubardagi hér og þar, úff.
Fyrir kvöldmat komu þrumur og eldingar. Pabbi gat loks séð eitthvað af þeim. Hellidemba og var foss fram af þökum. Við sluppum vel eins og oftast.
Takk fyrir skrifin. Já, Malla mín. Gott að Einar Ö. hafi lag á að ná í peninga :)
Skal reyna að koma mynd af Kristínu Dögg á bloggið fyrir Kristínu nöfnu :)
Hvað kom til að Aldís D. fékk þessa vinnu hjá Gallup? Er ekki 1500 á tímann rosa flott kaup?
Við bíðum svo eftir síðustu óskum og ætlum að panta hjá H&M í kvöld eftir ferð til Celle.
Tíminn styttist sem eftir er. Og mér skilst að ekki verði hægt að senda Affí með neitt heim því þau megi ekki hafa nema lítið af farangri í þessu ódýra flugi, eða?
Jæja. Meira seinna. Góða viku þið öll. Bestu kveðjur úr rokinu.

9 comments:

Anonymous said...

Hérna sunnanlands var jafn vel enn heitara um helgina heldur en hjá ykkur -fengum 34 stig í gær en ég hlýt að vera farin að aðlagast (enda kannski æskilegt eftir að verða sjö ár...) því mér leið bara óvenjuvel og ekkert geðvond ; )
Er annars á leiðinni til Hannover um næstu helgi, stoppurm reyndar bara stutt, komum á föstudagskvöldið og förum aftur á sunnudeginum en ef þú hefur tíma þá væri gaman að hittast yfir kaffibolla á laugardeginum... En ef það stendur ekki vel á þá gerum við það bara næst..Láttu mig bara vita.
Bestu kveðjur frá Bæjaralandi, Aldís

Thordisa said...

ég skal fara í þetta H&M mál í dag eftir vinnu og vera í bandi við ykkur.

Anonymous said...

já H&M er víst á netinu. Dóttir mín er búin að sjá fullt af flottum fötum sem hana langar í!! Gott að ykkur líður bara vel þrátt fyrir annir og þvæling! Sakna ykkar Arnhildur

Anonymous said...

jæja, hérna kemur fyrir mig: 3/4 arm:48-7470, shirt:14-8536, shirt:17-4557, Kleid:39-0542, tunika:76-9018, Kleid:80-9053, allt rosa flott! Þarft samt ekki að kaupa allt sko!!Og myndirnar frá Margréti voru æði, sérstaklega hún í rólunni, kveðja Arnhildur dekurdýr

Anonymous said...

Fyrir KDV; Langarmshirt:95-0410, Jeans:76-1049, Hose:97-8809, t-shirt: 96-5475, Tunika:96-7984, Kleid:43-6824, Jeans:79-8066. Gæti verið að eitthvað af þessu sé uppselt reyndar!
Svo sendi ég 2 myndir af kjólum til þín en ég fann ekki númerin á þeim, sko kjólum á mig..he he!Kannski ef þú rekst á eitthvað álíka. En takk æðislega fyrir að standa í þessu veseni fyrir mig, mamma mín!!:) Þakklætiskveðjur frá ykkar Arnhildi porno dog

Kristín E. said...

Takk fyrir kommentin á mín blogg... reyni alltaf að kvitta þegar ég les þó ég hafi lítið að segja :þ

Anonymous said...

Hæ,datt í hug að það gæti verið gaman að þið versluðuð eitthvað af fötum handa mér fyrst mamma og pabbi eru úti í þessu gósenlandi neytandans. mig vantar háhælaskó, helst slönguskinn, hlíralausan síðan kvöldkjól, hliðartösku og.... djók! Ekki alveg minn stíll. Vantar ekkert nema aukakíló og sanna pollíönnustemningu hjá stórfjölskyldunni, sem mér sýnist að sé ríkjandi á öllum vígstöðvum, enda búið að sanna vísindalega að 20-25júni sé sá tími sem allir eru hamingjusamastir hvar sem er í heiminum. Líklega kominn enn einn ísbjörnin, verið að leita að honum á skaga, konur á labbi náðu mynd af honum, já alltaf fjör á fróni. Kv affí

Anonymous said...

Ég sótti nú bara mjög einfaldlega um í Gallúp, er með rúmar 1300 krónur á tímann, frábær vinna! Ekkert eitthvað súper skemmtileg en þetta er alls ekki jafn slæmt og margt annað svoleiðis að ég er ánægð.
Ég er að klára seinustu vikuna mína í listigarðinum núna, og er að vinna frá hálf 8 til hálf 4 og fer svo í gallúp frá 6-10 á hverju kvöldi. 12 tíma vinnudagar, þetta er ekkert rusl hérna hjá mér núna *peningarpeningar*

Ég var nú búin að skrifa helling til þín hérna um daginn en það hefur víst bara ekki komist í gegn.

En ætli ég fari nú ekki að koma mér að aðalmálefninu sem er vitanlega afmælið mitt, ef að það muna það ekki allir þá er það 9. júlí og ég ætlast helst til þess að fá hringingu frá borgarstjóra Reykjavíkur til að óska mér til hamingju með bílprófið! Sem ég mun vitanlega ná, búin að ná bóklega í fyrstu tilraun og er mjög stolt af því og ætla vitanlega að taka það verklega með trompi.

Það sem að ég vil svo helst í afmælisgjöf frá ykkur þarna í sólinni er auðvitað ekkert nema 1958 árgerð af VW bjöllu á 400 þúsund.
En ef að þið getið ekki séð af ykkur þessum 400 þúsundum í fornbíl handa mér þá býst ég svosem við því að ég gæti sætt mig við einhverja sæta boli og toppa. (það má nú alltaf láta reyna á þetta)
Ef að þið verðið í nálægð við Pimkie þá líður varla dagur án þess að ég hugsi um þessa guðdómlegu búð og kíki reglulega á heimasíðuna þeirra, en þar sem að ég er svo upptekin ung stúlka hef ég engann tíma til að vera að fara og skoða og senda linka núna.
En ef að þið finnið eitthvað skemmtilega neon litað þá mun ég örugglega hrífast.

Annars er það bara eitthverjir sætir toppar og svoleiðis, eyrnalokkar og eitthvað álíka, ef hægt er að kaupa staka eyrnalokka væri það best, kaupa þá bara einn þar sem að ég er bara með gat í öðru eyranu núna!
Svo ætla ég að hætta mér til þess að segja í fúlustu alvöru (já þið föttuðuð alveg bjöllu-grínið er það ekki? maður veit aldrei hversu mikið þið eruð farin að kalka), en ef að þið finnið einhverjar rosalega ódýrar hljómgræjur í bíl þá væri það vel þegið, en alls ekki eithvað dýrt, og þær eru nú litlar svo þær myndu komast fyrir í töskunum.


Allavegana já, "lokakosturinn" er svo bara eitthvað bleikt og sætt.

...Ritgerð lokið -Aldís D

Anonymous said...

Ég á aukakíló sem ég er til í að láta gratís!!!! Hvert má ég senda þau Affí, hehehehe