Monday, June 9, 2008

Þvílíkur hiti.

Værum alveg til í að senda ykkur ein tíu stig. Hættum við að keyra til BS í dag. Það er svo rosalegt að vera í bænum í þessum hita. Ekki vit í að þvælast þetta með þau gömlu. Verst er að vera í bíl í þessum hita. Fór í eða yfir 30 stig í gær. Margrét situr úti undir sólhlífinni og les, mamma saumar við hliðina á henni, pabbi búinn að lesa moggann á netinu, og svo kom mamma að skoða nýju myndirnar af þessum fallegu barnabörnum á Nesinu. Mikið eru þau nú heppin að öll barnabörnin séu falleg og efnileg. Þarf ekki að gera upp á milli þeirra. Svolítill ömmu Gertrud svipur á Arnaldi á myndinni með Ástþóri á teppinu. Sigurður getur víst ekki svarið þá af sér:) Enda held ég að hann sé hæstánægður með báða synina.
Takk fyrir skrifin. Mamma biður voða vel að heilsa öllum, og við óskum Einari til hamingju með afmælið á morgun. Ekki við öðru að búast en flottri veilsu. Og svo vatnsbyssuslagur í kaupbæti, --ekki var það slæmt!
Hingað mættu 6 pólverjar til Maju við hliðina í gær til að horfa á leikinn. Þau voru nú ekki sérlega bjartsýn, enda unnu þjóðverjarnir. En það grátlega er nú að sá, sem skoraði, er pólverji. Hann var líka ekki rosalega glaður þegar hann skoraði. Búa líklega tvær sálir í einum líkama.
Var bara inni með börnin í dag, og dregið fyrir alla glugga. Mætti vera heldur kaldara.
Hafið það gott, og farið nú að skrifa í gestabókina hjá Svanhildi. Eru nokkuð nýjar myndir hjá Möllu og Kristínu? Bless, bless og bestu kveðjur--- liðið á Vorfeldweg.

2 comments:

Anonymous said...

Enn reyni eg að skrifa Fórum í sveitina á föstudag Mjög gott veður Gengum varp á laugardag í hólmunum allt rautt af spékoppum farið í lónið í fjós og allt þetta skemtilega gert Kveðjur Lilla'I gær og dag er skítaveður

Anonymous said...

Ligga ligga lí,ég er komin í sumarfrí!!Við vorum svo duglegar vistunarkonur að við erum búnar að þrífa allt,þvo alla kubba, það var hlegið að mér þegar ég þvoði fullan kassa af spýtukubbum og burstaði hvern einasta sennilega það sem ég hef komist næst að líkjast þér í þrifum.Sótti fínu Enjo þveglana mína heim á fimmtud.og þvoði alla veggi og svo bónaði Gummi húsv.og við bárum húsg.fram og til baka.Við áttum að vinna á morgun og hinn en það var bara ekkert eftir.Við Stína sungum mikið um helgina í Mývó rosa gaman.Þeir á Garðslofti gátu nú gert grín að okkur út af ýmsu en það er nú ekki til útflutnings.´Þó að Viktoría dóttir mín skrifi nú ýmislegt.Vona að gömlu hafi það fínt og pabbi þinn klári ekki allt silfur í landinu.Magga móða.