Klukkan bara orðin hálf níu. Þau gömlu enn í bælinu, en mamma er búin að lesa um stund. Pabbi var ansi þreyttur þegar við komum heim eftir langt labb í Celle. Mamma fékk í fótinn þegar hún fór út úr bílnum, en labbaði á þrjóskunni að venju. Hún segir að ekkert sé við þessu að gera, og þetta sé eins og þegar maður misstígi sig eða snúi upp á sig. Mér datt nú í hug hvort nokkuð væri farið að bera á beinþynningu, eða eitthvað svoleiðis. Hlýtur ekki að vera hægt að skoða fæturna á henni, og mynda þetta allt? Mamma segir auðvitað að þetta komi svo sjaldan fyrir að allt sé í lagi, en hvað segir hjúkrunarfræðingur famelíunnar! Svo er eitt--. Mamma vill fara i aðgerð til að láta taka af augnlokunum. Er ekki bara hægt að panta tíma og setja hana í þetta þegar þau koma heim? Dódda-held ég fór, og þetta mun vera lítið mál.
Sólin skín, og veðurguðirnir eru hinir vinsamlegustu. Ekki jafn heitt og hjá Aldís frænku í Bæjaralandi. Gott að hún er farin að venjast veðrinu. Hefur sína kosti. Það hefði verið gaman að hitta hana í Hannover, en akkurat á laugardaginn er skírnin, sem við verðum í allan daginn. Og líklega farið þið heim snemma á sunnudaginn, eða?
Margrét var hjá Birthe vinkonu sinni i Celle meðan við röltum um í bænum. Mamma keypti sér blússu með rennilás, og reyndar bara splæsti á sig dýrri blússu. Búin að komast að því að annars fari þetta allt i gull og silfur :)
Ég var náttúrlega ekki búin að segja ykkur að pabbi gaf mér gullkross með steini, ekki nema svona 120 þúsund króna virði. Mamma fékk líka svona í afmælisgjöf. Ég var ekki með þetta á hreinu. Í gær keypti pabbi svo festi við, og hún ein kostaði um 70 evrur. Það verður nú aldeilis þegar við förum svo að selja allt gullið þegar pabbi er allur. Moldrík á eftir ,ha,ha. En hann hótar að gera okkur arflaus, eða ganga aftur.(grín, ekki alvara .)) Ég kann nú ekki á svona skartgripi, en verð líklega að vera með stássið við betri tækifæri :)
Við settumst inn á kaffihús, og ég keypti fullt af rúndstykkjum. Annars var lítið keypt.
Við getum nú reynt að kaupa hlíralausan kjól úr krókódílaskinni Affí min. Það myndi nú fara þér vel!
Jæja. Mér er ekki til setunnar boðið. Er að fara að hitta prestinn, sem átti frí í gær. Svo er heimsókn til Hildegard og Hannelore hjá Tankumsee á morgun, Ritters hjónin koma á fim., og Krimmeike-fjölskyldan kemur á fö., og svo skírn á laugardaginn. Kannski við verðum að drífa okkur í ferð til BS í dag--maður er bara svo bissí :)
Margrét er í íþróttakeppni í dag. Þeim verður líklega ekki kalt.
Væri ég ekki kjörin í Gallupkannanir? 1300 kall á timann, ekki 1500, en sama.
Ástarkveðjur -- liðið á Vorfeldweg.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
8 comments:
Áfram Margrét, mín íþróttalega sinnaða og vaxna systir!Við íþróttagarpasysturnar látum sko ekki deigan síga, bara handleggina og svo bakið...he he! Ég samhryggist innilega vegna íþróttamótsins. Mamma gangi þér vel á endaspretti íþróttamóts þíns, gull og silfur í verðlaun..aargh hvað ég er fyndin!!Sæjónara í bili Arnhildur
kvitt kvitt bið að heilsa gullgrafaranum og Hillu frænku :o)
mig langar líka í svona augnlokaaðgerð hægra augað að hverfa finnst mér.
Hilla hefur áreiðanlega verið með slit í hnjám nú í nokkur ár, á því svona erfitt með gang. Þetta smám saman versnar en er hægt að laga með gerviliðaaðgerð sem gengur yfirleitt ótrúlega vel. Auðvitað fáum við svo kellurnar beinþynningu að e-u marki með árunum.
Bið að heilsa henni og gullgrafaranum líka! Hér 15gr. og allir himinsælir...
Fer í Mývatnssveitina um helgina, hittum Helgu Margréti þá loksins. Kaldara veður þar undanfarið og ekkert að batna held ég...
Hafið það áfram gott í góða veðrinu!
Þið verðið að fara að læra að nota gullið ykkar kellingar! Ég nota hringana mína og hálsmenin frá afa alveg óspart og hef gaman af því að stinga hendinni framaní vinkonurnar og sýna blingið mitt!
Nota þetta alltsaman með stæl, ekki láta þetta rykfalla í skúffum.
En allavegana, óskalistinn er kominn, ef það er seint þá er það líka allt í lagi, ég hef bara svo lítinn tíma alltaf, er orðin alltof sein í háttinn.
Flottast
http://www.pimkie.com/article-top-dos-nu-bleu-imprime-grosse-fleur-869300-41476510.html
http://www.pimkie.com/article-t-shirt-manches-courtes-gilet-barman-869300-43085260.html -vesti
http://www.pimkie.com/article-top-dos-nu-imprime-zebre-869300-41478440.html
http://www.pimkie.com/article-t-shirt-wwf-manches-courtes-message-nature-is-not-dead-noir-869300-45419460.html MEGAMEGA
http://www.pimkie.com/article-pull-rose-capuche-869200-47978620.html
http://www.pimkie.com/article-maillot-une-piece-avec-anneau-poitrine-noir-869900-95109165.html svaka flottur sundbolur þessi!
http://www.pimkie.com/article-chech-noirrose-869900-91986232.html langar mikið í svona klút, bara ekki í gulum lit, ég á svoleiðis!
http://www.pimkie.com/article-robe-dos-nu-choco-869975-78583080.html
http://www.pimkie.com/article-salopette-short-en-jean-869800-12887810.html ójá!
http://www.pimkie.com/article-short-jean-taille-haute-boutons-bretelles-bleu-869800-12887310.html enn meira ójá
Allar svona baggy, víðar buxur finnst mér flottar líka. Er líka rosalega hrifin af svona „aladdín“ buxum ef þið skiljið mig, sem að ná rétt niður fyrir hné og eru með rosalega síðu klofi, svona eins og einn poki eiginlega bara.
flott
http://www.pimkie.com/article-debardeur-noir-hello-kitty-869300-41484960.html
http://www.pimkie.com/article-44313222.html sérstaklega kúl í fjólubláu
http://www.pimkie.com/article-t-shirt-manches-courtes-serigraphie-show-en-strass-fuschia-869300-41984121.html
http://www.pimkie.com/article-pull-long-col-u-manches-courtes-rouge-869200-40223830.html
Þetta ætti allavegana að gefa ykkur einhverja hugmynd, þetta er reyndar allt í pimkie en já, þið sjáið þá kannski hvað ég er mest að fíla svona! Ef þið finnið eitthvað af þessu svo þá skoðaði ég ekki verðin svo ef þetta er eitthvað rosa dýrt þá finnið þið bara eitthvað annað.
Ég ætti að nota svonasirka stærð 38 í bolum, og álíka í buxum bara! Taka frekar of stórar ef þið eruð óvissar.
Jæja, ritgerð lokið og ég farin í háttinn, langur dagur aftur á morgun og næst seinasti ökutíminn með Steinda, þetta er allt að renna í hlað hjá mér, úff hvað ég er spennt. Valdemar mun ekki fá að sjá bílinn sinn vikuna eftir afmælið.
-Aldís D
Já aldís er vist með 1400kr á tímann ekki 1500 en launin hækka eftir nokkrar vaktir í viðbót, ekki veitir af þar sem næsti vetur verður kostnaðarsamur. Malla mín, aukakíló má senda með hraðsendingu á Ásveg 18, greiðist af viðtakenda! ótrúlegt að Gísli litli sé orðin fullorðinn, til hamingu með hann þorgerður ef þú lest þetta. Sól og blíða, við aldís stefnum suður á föstudag að taka út vinnuna hans Ella sem er víst langt komin með að gera alla íbúðina klára. Geri aðrir betur á innan við þremur vikum! Góða skemmtun í verslunarleiðangrinum mamma og co, vona að þið skemmtið ykkur vel við þessa annars ömurlegu iðju, þ.e. búðarráp! Kv affí
Hey, er Pimpie líka komið á netið!!Mamma ég þarf að athuga þetta betur,sko!En hér kemur stutt ljóð!
Úti skín sól en ég sit hér niðri í kjallara með engum gluggum! takk fyrir; ykkar Arnhildur pornodog
Jú Áslaug við förum strax aftur á sunnudeginum (nema Sunnu skottið sem ætlar að vera eftir hjá ömmunni og afanum í nokkra daga ;)
En við fáum okkur þá bara kaffibolla (og köku auðvitað!) næst þegar ég kem norðureftir...
Vonandi gengur allt vel og verður gaman á laugardaginn hjá ykkur...
Bestu kveðjur, Aldís
Post a Comment