Gengin upp að hnjám. Allir þreyttir eftir ferðina. Besta veður. Mun minni sól, og hitinn kominn undir 20 stig. Hið ákjósanlegasta ferðaveður. Svo fór hann að rigna er heim kom. Passaði vel. Pabbi fór beina leið að leita að gullkeðju. Kallinn á fornsölunni, sem " er með rosalega ódýrt" gull, hafði sett miða á hurðina að hann kæmi rétt straks. Og pabbi beið í klukkustund utan við búðina. Hann sem getur ekki gengið um gólf í 5 mín:) En til mikils var að vinna. Hann gafst svo upp, og keypti sér tösku, svona tuttugustu hliðartöskuna, eða hvað haldið þið:) Og mamma eins og alltaf-hann á svona tösku heima. :) Margrét fann svartar buxur til að nota í sept. þegar hún fer að vinna hjá Möwenpick. Allt fullt af æðislegum toppum og bolum hjá Vero Moda, en ekki hægt að kaupa allt. Mamma mátaði blússur, sem ýmist voru of þröngar eða illa sniðnar. En endaði svo á að kaupa tvær peysur og póló bol.Voða ánægð. Ég ætla svo að gefa henni eina peysuna í afmælisgjöf.
Settumst niður hjá ítölunum í Burgpassage, sem er eini staðurinn, sem pabbi getur fundið okkur :) Ég valdi rauðvínsglös handa Susanne mágkonu í silfurbrúðkaupsgjöf. Vona að henni líki þau. Svo keypti pabbi vatnsliti, pappír og pensla fyrir 150 evrur. Ætlar að fara að mála af krafti. Var vel þreytt í höndunum eftir að rogast með þetta í bænum. En þá fljúgu kílóin, sem eru ansi föst uppá síðkastið. Enginn tími til að pæla í líkamsrækt og megrun.
Elsku Arnhildur mín. Hvað ertu að tala um--það hefur sko enginn gagnrýnt þig fyrir uppeldið. Bara talað um "fallegu" orðin, sem þú lærir í vinnuni :) :) :) Það er fullt af vörum frá Ritzenhoff á tilboði. Þarf að heyra í þér fljótlega.
Mamma biður að heilsa og er hress með daginn. Takk fyrir skrifin.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Til hamingju með daginn frú Álfhildur.Ég reyndi að hringja en þið svöruðuð ekki.Er að fara í Mývó á morgun svo þá kemst ég ekki í tölvu(fyrst Einar er ekki búinn að kaupa ferðat.handa mér.)Hef verið ap taka til dót,ætla með saumav.og fullt af handav.svo við Helga M.höfum eitthvað við að vera-eða eg meðan hún er í fjósinu.Malla kemur á morgun í flugi með guttana en Össi kemur á hjólinu og verður hér ásamt vinafólki á bílasýningunni.Jarðarf.Gyðu B.er kl.10 í fyrram.og ætlum við öll að mæta.Og nýjustu fréttir af Höfðamálinu eru að Laufey kaupir af systrum sínum.Kveðjur til allra Magga móða.
Post a Comment