Sól, sól skín á mig. Söng Hanna María ef ég man rétt. Hér var heldur betur molla í morgun. Allir gluggar núna galopnir, en kemur brátt að því að þeim verði lokað. Yfir daginn þarf að loka sólina í burtu. Nokkuð sem er neikvætt við þetta fína veður. Það kom hellidemba í gær klukkan 5, og þurfti ekki að vökva. Við sluppum við eldingar og þrumur, sem grasseruðu viða. Þarf víst aftur að þrífa stóla og glugga :) Píanókennslan í júní hjá okkur. Var búin að þrífa klósettið og búa til kaffi handa kennaranum, hí,hí. Þetta er sko fín þjónusta.
Klaus kom heim um 17.30. Hress með ferðina, og þóttist ekki vera þreyttur. En þau feðgin voru ekki snögg framúr áðan, enda nóttin of stutt. Margrét var að horfa á Germanys next topmodel, sem endar á morgun. Það var ein gella frá BS., sem var ekki beint vinsæl, og vinkonur Margrétar mjög ánægðar að hún fór nýlega. Já, lítið er ungs manns gaman. Þessir þættir eftir amerískri uppskrift eru nú svona og svona. Nokkrir sem ég fæ alveg gubbuna við að sjá.
Þá er það nú betra að horfa á okkar dæmalaust góðu sápu, og skemmta sér við það. Við hlökkum mikið til að koma mömmu aftur inn í það :) :)
Fegin að heyra að Kristínu gekk vel í Sverige, og skil vel að hún sé þreytt eftir allt þetta umstang. Og Malla mín lét heyra frá sér. Fer að styttast í afmæli þar á bæ. Hvað er svo að frétta af ykkur Malla? Ertu ekkert að fá nóg af barnagráti?
Ekki það að þú spjarar þig í öllu, það er alveg klárt.
Þórdís, við bíðum eftir myndum af herbergjunum. Verður Ásta eitthvað með FAF í vinnuskólanum? Það fór í verra með vínarbrauðið, en ég treysti ykkur nú til að redda því þó að Ásta sé ekki legur í bakaríinu. :)
Já, við verðum bara jákvæðar mæðgur áfram, og hlökkum til sumarsins.
Hvenær fer Annett til Hollands með þær litlu? Ef hún færi í júlí, ætli væri sjens að heimsækja þær????? Allavega þekkir hún kannski einhvern gististað, sem við gætum farið til. Ætla endilega að gera eitthvað skemmtilegt með Margréti.
Og Affí að fara suður til að taka íbúðina í nefið. Það verður ekki neitt illa gert ef ég þekki þau skötuhjú rétt. Vona svo að ferðin hjá pabba og mömmu gangi vel. Mamma er örugglega eitthvað kvíðin fyrir fluginu, og hún tekur vonandi nóg af róandi pillum. Þið sjáið um það!
Er ekkert að fara að gerast í því að stækka völlinn á Akureyri? Ég er svo stressuð að þurfa að fljúga innanlands að ég get ekki hlakkað til að koma um jólin. Vildi bara koma að sumarlagi, en svona er það. Það væri því mun skárra að komast í þotu. Diddi --þú sem pólitíkus hlýtur að geta hamrað á þessu við rétta aðila. svona fyrir stóru systur :)
Jæja. Það er allt á tjá og tundri í skrifstofunni, eða vinnuherberginu eins og það kallast hér. Best að fara að koma sér að verki.
Þið hefðuð átt að sjá þau Lukas og Sonju í gær eftir rigninguna. Það kom rosa pollur framan við húsið okkar. Lukas fór ekki fáar ferðir í gegn um hann á tréhjólinu sínu, í bol, nærbuxum og berfættur! Sonja pen og sæt utan við pollinn og horfði á kappann. Hún er svo ekta stelpa í bleiku, hann ekta strákur, með nýju vinnuhanskana sína í 27 stiga hita :)
Og svona eitt enn. Þegar Sonja var með mér á sunnudaginn í garðinum var Margrét að læra. Ég sem sé að vinna á fullu í garðinum. Þá spurði sú stutta. " Af hverju gerir Klaus ekki neitt"
Bragð er að þá barn finnur :)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Hef ekki komið í verk að taka myndir af herbergjunum en ég skal gera það núna og koma því á bloggið mitt. Ætla svo að koma jólamyndunum á cd fyrir þig og senda með þeim gömlu. Vinarbrauð ég lofa að senda þér og kannski Ásta nái 1-2 vöktum áður en hún hættir þarna en ég skil að hana langi að vera með vinum sínum í sumar.
hlýtt hér á norðurslóðum þrátt fyrir að ísbjörn hafi fundist lallandi um rétt hjá Sauðárkróki, og að sjálfsögðu var hann skotinn, ekki reynt að finna einhverja leið til að koma honum til bjargar. er þetta ekki típískt fyrir ísland í dag?? Héðan eru sendir hestar, ofl út um allan heim, dýraverndunarsamtök tilbúin til að greiða fyrir björgun dýra, en nei.. við skutum hann bara nokkuð án þess að velta málinu fyrir okkur og það er nú það sem pirrar mig. Meira að segja þegar Smirillinn var í kyrkjugarðinum hér í denn, þá var ekki vaðið í að skjóta hann strax, heldur ráðfærðu menn sig við prestinn!! Já svona er ísland í dag. Annars allt gott að frétta, förum suður á föstud og byrjum að rífa út, verðum eitthvað hógværari í framkvæmdum en við ætluðum okkur þar sem afborganir af lánum hafa stigið verulega hratt svo við verðum að vera varkár svo þetta fari nú ekki með fjárhaginn. M og p á leið suður, allir á kafi í vinnu allsstaðar. Já lífið gengur sinn sumargang. kv affí ( flottar myndir af ykkur )
sko Iceland Express lendir þotum á Akureyrarflugvelli, aðallega frá Köben og Prag held ég-en það er oft lent hérna á litla vellinum okkar, og það er verið að lengja lendingarbrautina bara akkúrat núna-Diddi fljótur að redda málunum ekki satt...hehehe! Og hjálpartæki dagsins er ..snípskitla!farðu bara á adamogeva.is og leitaðu!þín Arnhildur
Arnhildur... þú ert bara snillingur :þ kíki í búðina til þín í júlí hehehe
Takk fyrir bloggið Ádda... mun duglegri en ég :þ
Var að blogga... takk fyrir að ýta á mig :þ skemmtilegra að skrifa þegar maður veit að einhver er að lesa
Já Christof kom einmitt heim úr vinnunni í gær og tilkynnti mér að á Íslandi hefðu þeir verið að skjóta ísbjörn... Ég hélt náttúrulega fyrst að annað hvort hefði hann eitthvað misskilið eða að eitthvert grín væri í gangi -en ónei! En ekki það; Þjóðverjar skutu skógarbjörn sem í meinleysi sínu álpaðist yfir landamærin hérna fyrir tveim eða þrem árum síðan. Og það eftir heilmikinn eltingarleik og enn meiri móðursýki... Fyrir villt dýr er bara því miður ekki mikið "pláss" eftir í þessu blessaða náttúrufyrrta samfélagi okkar...
Og í gleymi því ekki að á meðan ég var að gæda hjá Jóni Árna og Gilla þá kom ótrúlega oft fyrir að maður var með útlendinga í ferðum sem hreinlega kunnu ekki að ganga í villtri náttúru! Að þurfa að horfa eftir steinum og ósléttum og ganga samtímis án þessa að detta eða misstíga sig það var hreinlega of mikið í einu...
Já þetta samfélag er allt dálítið mikið öfugsnúið og úr takt við upprunaleika sinn og náttúruna!
Aldís
Post a Comment