Tuesday, June 10, 2008

Alltaf jafn gleymin.

Þriðjudagsmorgunn, og klukkan orðin 9. Mamma að koma úr sturtu, og presturinn spilar glatt á píanóið. Margrét farin til Bergen Belsen, og Klaus í vinnuna. Var allt í einu að fatta að ég gleymdi að þakka Þórdísi fyrir fína kremið til Margrétar. Hún er mjög hrifin af því, og notar alltaf.
Þetta er svona með gleymna fólkið. Mikið var nú gaman að lesa bloggskrifin frá Lillu. Þá erum við komnar í daglegt samband, og ég fæ allar nýjustu fréttir. Er það ekki Lilla ? :) Og Maddý komin í sumarfrí. Ekki trúi ég því að hún hafi fengist til að þvo leikkubbana. Eins og hún er nú vanalega löt. Vona bara að veðrið batni hjá ykkur, og þið getið notið sumarsins. Efa ekki að margt gáfulegt hafi verið spjallað og gott að þið hugsið til mín þegar þið sjáið "spékoppana" :) (fyrir þá sem ekki vita eru þetta sætukoppar, en ég kemst nú stundum svona heppilega að orði :) )Við hringdum í gær í Didda og fengum fréttir af Affí. Svo náði ég í Hildegard, sem flýgur þann 15. júlí til Íslands. Hún kemur við á Dalvík, og endar á Akureyri. Kannski þið sjáið hana þá þar. Best að gefa madömunni morgunmat, og fara að gera eitthvað. Bestu kveðjur til ykkar allra.

4 comments:

Thordisa said...

Bestu kveðjur héðan úr borginni. Veður var um 18 stig í gær og æði. Sakna ykkar mest!

Anonymous said...

sko ég missti greinilega af því að það er verið að kenna mér um illa upp alin börn, eða var það einhver önnur Arnhildur? Ég er bara hætt að fá að vera með, eða hefði ég þurft að lesa einhvert langt blogg frá mömmu? Nú jæja allavega er bilað að gera hjá mér í kláminu, saknaðarkveðjur Arnhildur

Anonymous said...

Hahahahahahahahahahahaha....

Anonymous said...

76 nýjar myndir hjá strákunum ;) Kærar kveðjur, Malla og synir