Monday, June 16, 2008

Morgunstund.

Klukkan orðin 8.20 þegar ég byrja á þessum skrifum. Mamma að lesa í rúminu, pabbi að fá sér morgunmat, Margrét farin í skóla og Klaus í vinnu. Hef ekki skrifað mikið undanfarið. En vona að þið hafið gaman af myndunum. Gærdagurinn (sunnudagur) var ósköp rólegur. Af og til stuttir skúrir, og sól á milli. Ekki sérlega hlýtt, en allt í lagi veður. Klaus sló grasið, og klippti kanta. Ég tók mig til og stakk kanta meðfram beðum. Margrét las mest allan daginn, og lærði. Mamma horfði á lögguhundinn Rex, og svo framvegis. Út af þessum blessaða fórbolta var bara endursýndur krimmi. Leiðinda ákvörðun. Gott að hafa bók til að lesa. Pabbi færði mér bókina, sem gerist á Akureyri. "Dauði trúðsins". Hún er bara spennandi, og gaman að lesa um staði, sem maður þekkir. Diddi hringdi, og gengur allt vel hjá þeim. Vildi vera komin til Ítalíu með þeim.
Á laugardaginn fórum við til Susanne og Gregor í silfurbrúðkaupsafmælið klukkan 5. Það var hin fínasta veisla. Grillað, og fullt af salötum. Of kalt til að vera bara úti, en við gátum samt setið um stund áður en fyrsti skúrinn kom. Susanne er búin að breyta garðinum, og hann er voða fínn. Það komu þrenn hjón, og vinkona Ramonu, svo og Ramona og þessi frægi Björn. Kallremban. Hann er mjög hress og var mjög jákvæður út í okkur öll. Vill endilega að við komum í heimsókn, og ætlar að senda okkur kryddsnaps, sem bragðaðist vel. Kátur og skemmtilegur, -en hvort hann sé góður maki er svo annað mál. En hvernig sem það er, þá er það þeirra mál. Við ætlum bara að vera jákvæð og tíminn mun leiða í ljós hvernig þetta samband fer. Allavega ætlar hann sér að giftast Ramonu. Þetta var óvenju hressileg samkoma. Það var náð í hattinn, sem Susanne var með þegar þau giftu sig--alveg óborganlega ljótur! Og hún á enn dragtina, sem hún gifti sig í. Ramona smellpassaði í hana, og við skemmtum okkur vel þegar hún kom í skrúðanum. Teknar myndir af liðinu og svo hópmynd. Margrét hefur vonandi tíma í dag til að setja á bloggið.
Ég var að passa köttinn, og fór reyndar til hans á hjóli á laugardaginn eftir hádegið, og hjólaði loks aftur einar 40 mín. Fann vel hvað ég var aftur stirðari eftir langt hlé.
Á fö. var meiningin að renna aftur til Bs. En pabbi náði ekki í kallinn í fornsölunni, og gafst upp á að fara. það var hellidemba um tíma, með þrumum og eldingum, og sífelldir skúrir. Margrét var þreytt eftir langan dag í skólanum. En líklega renni ég í dag með liðið. Allavega pabba.
Mamma var bara ánægð með afmælið sitt. Takk fyrir kveðjur og símtöl. Hún var voða spennt að lesa bloggið. Við gáfum henni sápur með rósailmi, og peysu með kvartermum. Hildegard kom með lítinn blómvönd og hunang. Pabbi er ekki enn búinn að gefa henni neitt, en það kemur að því. Ég sótti sykurköku í morgunkaffið, nokkuð, sem er típískt norður þýskt. Og hreinsaði jarðarber, og þetta var hádegismaturinn. Svo fórum við í Antik Café, og fengum þessar fínu kökusneiðar. Síðan flysjaði ég 2 kg af spargel eða aspas, og gekk frá öllu fyrir kvöldmatinn. Því ég þurfti að mæta í skólann klukkan 19, asnalegur tími. Þar var foreldrafundur fyrir foreldra barna, sem byrja í haust í fyrsta bekk. Heim að elda og við borðuðum þennan fína mat klukkan meira en 8 um kvöldið. Ekki vanalegur tími hérna :)
Það kólnaði heldur betur eftir hitann. Margréti var svo kalt á fö. að hún snéri við og sótti fingravettlinga. Um 8 stig á morgnana. En spáð hlýnandi hvað sem verður.
Og heldur mikið að gerast eins og vanlega hjá ykkur. Fermingar í Mývatnssveit, og fjör ef ég þekki liðið rétt. Ássý komin norður, er það ekki? Og Helga Margrét með Maddý í Garði. Er Malla komin til að vera í lengri tíma í sveitinni?
Er einhver tölvutenging á Garðslofti ? Eða hægt að lesa blogg hjá Láka og Ingu?
Ætlaði að hringja bæði í Arnhildi og Þórdísi um helgina, en komst ekki í verk. Dríf í því.
Ætli sú gamla fari ekki að þurfa á morgunmat að halda. Best að fara að hugsa um hana. Mikið verk að dekka borð-eða þannig. Hún vill nefnilega bara jógúrt og ekkert annað :)
Vona að þið hafið það öll gott. Bestu kveðjur.

8 comments:

Thordisa said...

Var að blogga kíkið á það. Annars bara gott að frétta erum enn að laga til og taka húsið smátt og smátt í gegn langar að fara í skápana undir súðinni og laga þar en þegar verður er svona gott þá viljum við bara vera í sundi og hafa það næs.

Anonymous said...

Gaman að sjá afmælismyndir, voðalega notalegt antik kaffið.
Það er vonandi að fornsölumaðurinn fari að svara í síma...kannski með númerabirti!! Grín!!!!

Takk fyrir kveðjurnar. Hafið það öll gott og njótið þess að eiga tíma saman.

Bestu kveðjur, Svanhildur

Anonymous said...

Mér finnst allavegna mjög gaman að skoða myndirnar sem þið setjið inn. Ég sit á rassinum í vinnunni og er að éta epli...engar kökur hér!kveðjur ARnhiLDuR

Anonymous said...

Eg veit ekki til hvers eg er aðþessu þegar öll mín skrif týnast Helgin var góð gott vður á laugardag sól og gola svo ekki var mikið af flugum í Garði en þegar kom í Skút tók mýgið á móti manni og mér til gleði settist það á hvíta jakkan sem eg var í og klestist (gott að vera í hvítum jakka í flugum)Flottar veislur Súpa og svo slatti af kökum kaffi og gos ´
Í fjósið mættum við MAlla með HM EÖ KÖ LR JM þar voru 4 kálfar sem þau fengu að gefa mjólk úr pela og fötu og svo Skufsa og Úa á svæðinu Það gerist ekki betra Hér er búið að vera hvast í dag ef og til rigning en 10 15 gr.Áslaug S og Hjörtur fóru í Höllina gler fín Á S og Páll fara heim á morgun og Hjörtur í Torfunes Frh. á morgun kveðja Lilla

Anonymous said...

Gleðilegan þjóðhátíðardag ;)

kær kveðja, Aldís

Anonymous said...

ps -segðu mér kæra Áslaug hvar þetta Antik café er. Mér finnst endilega að ég hljóti að hafa komið þarna fyrir mörgum árum en man alls ekki hvar þetta var...
Aldís

Kristín E. said...

Gleðilegan þjóðhátíðardag... komin heim alveg grilluð eftir æðislegan dag á Rútstúni, sennilega um 16 stiga hiti, sól en smá vindur, sem betur fer því annars hefðum við ekki enst þarna í 3 og hálfan tíma!!!
Ég var auðvitað með Tupperware kælitöskuna mína með nesti, snúða sem ég bakaði um helgina, kókómjólk, safa og 2 fullar flöskur af Soda Stream :þ
Flott mynd af ykkur hjónunum :)
Bið að heilsa öllum

Anonymous said...

Át snúðana með Kristínu, ekki með neitt heimabakað með mér ;)
Höfðum það huggulegt á fínu teppunum frá þér, og fengum töluverða athygli út á þau...

Mamma og Helga hafa það gott í sveitinni, eru þar 2 núna. Hún ætlar að reyna að komast í tölvuna hjá Láka og Ingu bara svona til að vera með.

Malla kom til baka í gær, og við systur 3 saman á tónleika á Arnarhóli í gærkvöldi (með teppin auðvitað - hehe...) Hittum Ingó og Þórdísi þar.

Ég er vel brunnin í vinnunni í dag, ekki nógu dugleg að bera á mig í góða veðrinu í gær. Sama blíðlan í dag.

Hafið það gott öllsömul - gaman hvað þú ert dugleg að setja inn myndir, þarf að fara að senda þér af mér og mínum...