Þá er bara eftir einn dagur í komu pabba og mömmu. Við hlökkum mikið til. Ég er enn að laga til og vesenast, en það er alveg klárt að ekki verður allt spikk og span þegar þau koma. Maður hefur ekki fulla orku í þessum hita. Nú er blessuð gola, og kaldara en undanfarið. 25 stig eru nú líka alveg nóg. Var að enda við að strauja skyrtur af Klaus svo mamma rjúki ekki í það um leið og hún kemur :) Og svo var ég að horfa á myndirnar, sem Diddi sendi okkur. Mikið rosalega var ég ánægð að frétta að loksins skyldi það takast að allir þessir 5 frændur gætu átt stund saman. Mér hefur fundist það svo sorglegt að veikindin og annríkið komu svona lengi í veg fyrir að fjölskyldan gæti hittst. Þið eruð nú á sama landi, en ég langt í burtu, og þið getið samt ekki haft samband. Mér hlýnaði reglulega um hjartaræturnar við að sjá Ástþór sælan innan um "stóru" frændurna.
Diddi ertu aftur kominn með ýstru :) ? ertu ekki jafn duglegur í ræktinni og Malla og Þórdís?
Fékk alveg heimþrá við að sjá fínu hjónabandssæluna hennar Svanhildar! Einhvern tíman hlýt ég að vera búin að afplána allar syndirnar og fæ að fara heim aftur. Það bara getur ekki verið að ég fái ekki að upplifa einhverja fjölskyldusælu--(og líka allt annað, sem fylgir öllum fjölskyldum.)
Eins og Þorgerður benti á, eru ekki alltaf jól á Íslandi, en það er alltaf aðventa!!!!!
Svo kom heldur betur óvænt bréf frá Dísu vinkonu. Malla hitti hana í leikhúsi, og nú er hún komin með bloggsíðuna, og vonandi fer ég að komast i samband við hana.
Takk Malla mín fyrir að redda þessu.
Þórdís--þú sérð um að þau gömlu fari sem léttast klædd á morgun. Hér er heitt, og þó þau komi ekki fyrr en eftir klukkan 21 er enn hiti úti. Mér verður alltaf hugsað til Birnu í Haganesi þegar hún heimsótti Bryndísi, og ætlaði að líða yfir hana í hitanum.
Sorglegt með ísbjörninn. Mér skilst að ekki hafi verið til deyfiskot. Skil það nú líka að menn hafi verið með áhyggjur út af honum, og vegna þokunnar, sem þeir óttuðust að hann hyrfi í. En sorglegt samt.
Jæja, kominn tími til að hugsa um kvöldmatinn.
Ástarkveðjur til ykkar allra, og mikið á ég fallega frændur, bróðursyni réttara sagt. :) Og svo efnilega. Og svo gáfaða. Og allra sætasti er Arnaldur!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Takk fyrir að nenna að lesa langlokuna sem ég skrifaði heheheh og takk fyrir að vera svona dugleg að blogga, þú mátt ekki hætta því þó Hilla og Örn séu væntanleg til ykkar :þ
Iss ég þoli sko slatta af grát í viðbót, enda börnin búin að læra vel inn á mig og ég inn á þau svo lítið er um grát ;) Reyni að benda þeim á hversu glöð ég verð ef þau eru kurteis og þæg og hversu leið ég verð þegar ég þarf að skamma þau. Kveðja Malla í afmælisundirbúningi
Það var voðalega gaman að fá þessa herramenn í heimsókn...og auðvitað foreldra þeirra líka. Ástþór Örn hefði nú viljað hafa þá hér í nokkra daga!
Vonandi að þú getir kannski stoppað hjá okkur í kaffi í Kópavoginum bara næst þegar þú kemur til Íslands, ég lofa þá hjónabandssælu og einhverju góðu með kaffinu!!
Hafið það nú gott og vona að ferðalangarnir komi hressir á leiðarenda og þið eigið góðan tíma fram undan saman.
Bestu kveðjur, Svanhildur og co
SKo mér finnst nú ekki fallegt af þér að gera upp á milli systkinabarna þinna, ha? Fá þá sumir kannski jólagjöf eftir 14 ára eða ekki eða kannski! nei,nei bara smá bull í ofurþreyttu dóttur þinni, kveðja AHHhh
Post a Comment