Tuesday, July 1, 2008

Afmæli Klaus litla.

Hann Klaus minn er 55 ára í dag. Og konan hans er ekki búin að kaupa afmælisgjöf, hvað þá að hann fengi gott morgunkaffi í morgun. Það er nefnilega stressdagur í dag, eða þannig. Hann í vinnu, og sjúkraþjálfun, Margrét lengi í skóla, og svo fer hún í tannréttingar og píanótíma. Ekki komin ró á hér fyrr en eftir 7. Sem sagt venjulegur íslenskur dagur:)
En við höldum upp á þetta á laugardaginn með systur hans og grillum þá og gerum eitthvað notalegt.
Maður er hálf þreyttur eftir törnina undanfarið. Ritter hjónin komu sem áður segir í kaffi á fimmtudaginn. Var bara fínt, og Klaus kom klukkan 4 til að vera með. Svo komu bændahjónin með soninn, sem eru búin að bjóða pabba og mömmu tvisvar. Mikið spjallað og þau fóru m.a.s. upp á háaloft því Frank, sonurinn, var búinn að bjóða fram aðstoð til að klára þetta. Þau vilja nú allt fyrir mig gera.
Pönnukökur og heit eplakaka með ís. Ekki leggur maður af.
Svo var það skírnin. Bjót il íslenskt hrásalat með hvítkáli, ávöxtum og majonesi. Dúndurgott. Fór til Frau Kühle á fö.kvöldið með blóm, sem ég fékk hjá mömmmu tvíburanna, og egg frá annarri í skólanum. Þá hringdi nú sonurinn, faðir skírnarbarnsins, og tilkynnti að þau væru hætt við skírnina.! Kathrin væri svo illa farin af þunglyndi, -- hún passaði ekki í nein föt, hefði áhyggjur af því að Mia myndi gráta í athöfninni og ég bara veit ekki hvað. Aumingja Frau Kühle stóð bara með tárin i augunum úti á gólfi, og var algjörlega orðlaus. Hún átti von á eldri syninum eftir andartak, og var viss um að hann yrði brjálaður út í bróður sinn og allt færi í háaloft. Ég sagði henni að segja ekki orð, og hver vissi nema þetta væri allt í himnalagi næsta morgun. Og ef ekki, þá settum við pabba upp í bílinn hennar og brunuðum til Hannover og létum hann skíra barnið þar án vesens! Og myndum svo halda veilsu á eftir með eða án þeirra! En eins og mér datt nú í hug var allt í lagi, og var hringt í mig um morguninn, og það var frekar glöð amma! Hann rigndi eins og borgað væri fyrir það rétt um það bil sem við fórum í kirkjuna. Komumst varla út úr bílnum. En barnið var skírt, við sungum íslenskan skírnarsálm, og pabbi las allt skýrt og skilmerkilega á þýsku. Allir voða ánægðir. ´Á eftir fínasta veilsa fyrir okkur 14 sem viðstödd v0rum. Klaus spjallaði heilmikið, og við áttum verulega góða stund þarna með þessu ruglaða liði, sem líkist nú okkar á stundum.
Á sunndaginn gat ég loks gert eitthvað í garðinum. Svo var eldaður fínn kvöldmatur, snitsel, salat og sósa. Alveg í anda pabba. Ekki urðum við nú Evrópumeistarar en hinir áttu sigurinn skilið.
Margrét horfði á þetta með Doreen, og skrópaði í fyrsta tíma morguninn eftir. Ekki tekið hart á því.
Á fö. fóru þau feðgin með Ingu, sem líka fékk verðlaun fyrir erlend tungumál, til Hankesbüttel menntaskólans. Margrét og Inga fengu 2.verðlaun, ásamt tveimur öðrum. Þær fengu þykka ensk/þýska orðabók. Engin fyrstu verðlaun í þetta skiftið. Svo fengu nokkur 3.verðlaun, og námshópar fengu verðlaun. Náttúrlega mynd í blöðunum, þar sem þetta er um allt Niedersachsen. Klaus kom voða stoltur í gær og sagði að kollegar hans hefðu spurt hvort þetta væri dóttir hans:) Margrét setur myndir inn við tækifæri.
Nú, nú. Í gær var svo farið með lestinni til Hannover. Og mamma komst loks í dýragarð eftir meira en 46 ár. Við komumst ekki í fyrra af því að nasistar voru með mótmæli. Þarna var hið besta veður. Sól, en gola. Við höfðum því miður ekki of mikinn tíma því við tókum lestina ekki fyrr en korter fyrir 3, af því að við náðum ekki þeirri fyrri út af skóla og vinnu. Vorum komin inn upp úr 4, og lokað er klukkan 6. Það var því bara stutt stopp á bekkjum, en þau héldu vel út að labba. Við sáum lítla fílabarnið, sem er voða sætt. Fullt af skemmtilegum dýrum. Og pabbi og mamma voru bæði mjög hrifin. Líka af garðinum, sem er sérlega skemmtilegur. Hlakka til að sýna Ástþóri þetta þegar þau koma að heimsækja okkur--örugglega fljótlega, ekki satt! :) Og öllum hinum börnunum í fjölskyldunni :)
Ætluðum smá í bæinn, en þar sem lestarnar ganga ekki nema á klukkustundar fresti tókum við þá, sem var að fara. Nenntum ekki að hanga í 90 mín í viðbót.
Allir þreyttir, og pabbi svaf til meira en 9 í morgun.
Það var planið að þau færu í dag með Hildegard og Hannelore til Bremen, en ég afsakaði þau á sunnudaginn. Það hefði verið of mikið.
Jæja. Bruni í Myndlistarskólanum á Akureyri. Brunnu þá verk nemanda, t.d. hennar Arnhildar minnar líka? Og öll kennslugögn Affíar ónýt af sóti. Hræðilegt. Fréttum meira af þessu þegar við hringjum í Afffí á eftir.
-------------------------------------------
Hér er svo flugið. FI 0217 H , arrival 2340---------------------------------------
Þið finnið út úr þessu.
Sigyn er svo að ath. um dvöl í íbúð Eiríks fyrir okkur. Margrét er að deyja úr spenningi.
Elsku Arnhildur mín að verða að moldvörpu í kjallaranum. Vorkenni þér voða mikið og vildi geta sent glugga :)
Líst vel á að Kristín Dögg fari suður til Guðnýjar um tíma, og verði svo með Diddunum um stund. Hún yrði nú sæl með það---ef það gengur upp :) :) :)
Verð að fara í sturtu. Enginn tími til að hugsa um að raka á sér lappirnar og dóttir min alveg hneiksluð á þessari móður! Og svo nálgast nú koma Affíar, og þá verð ég að taka húsið í gegn með eyrnapinnum er það ekki Affí :) (Stór smæli út af þessu! )
Ástarkveðjur---og farið nú að skrifa á bloggið þið Þórdís og Kristín. Takk fyrir myndir Svanhildur mín. Þú ert sem klettur í hafinu með það.
Bless í bili.

7 comments:

Anonymous said...

Tilhamingju með afmælið Klaus. Hér er rigning og leiðindi, en á að fara að lagaast. Við nokkuð hress þrátt fyrir það, hlökkum til að komast í sólina eftir nokkra daga. Eruð þið á leið til köben? Vona að þið séuð ekki að fresta neinum ferðaplönum þó við komum í stutt stopp til ykkar. Gott að allt gekk vel á laugardaginn. VÖ að gera við bílinn sinn gamla, pússa og mála upp beiglur og skemmdir, fær greinilega hæfileika föður síns hvað þetta varðar. Annars bara rólegt í dag, hálfgerður letidagur eftir vinnutörn á Snorrabraut. Best að koma sér út í rigninguna og hressa sig við.. Kv affí

Anonymous said...

Til hamingju með afmæli meistari Klaus. Greinilega nóg um að vera í Þýskaralandi og gott að sjá að þið finnið eitthvað til að hafa ofan af fyrir pabba svo honum leiðist ekki. Til hamingju með frammistöðuna Magga frænka. Hér er fátt tíðinda, vorum samt með hamborgarapartí fyrir bridgeklúbbinn þegar úrslitaleikurinn var, sem auðvitað var gaman. Svo eru Jóhann og Ingigerður væntanleg og við hlökkum til að fá þau, vonandi í einhverja daga. Já við munum sjá til þess að þau gömlu verði sótt og sinnum þeim svo eitthvað þegar þau koma. Og KD getur örugglega verið eitthvað hjá okkur ef hana langar.
Annars ekkert stórt í gangi og við biðjum að heilsa.
Diddi

Anonymous said...

Happy Birthday Klaus!! Viele Kuchen essen..rosa er ég orðin ryðguð í þýskunni! Vona að honum líði nú vel greyinu, og að þið séuð voða góð við hann þessa dagana! Og gaman að sjá að kommentin mín séu lesin. Ég ætlaði að senda Klaus uppblásna rollu sem jarmar úr búðinni hjá mér en svo fattaði ég að hann á eina..haha! Kveðjur frá Arnhildi sem er alein heima..með þrjá ketti og kanínu

Anonymous said...

Og glæsilegt Margrét!! Þú ert víst gáfaða systirin...

Anonymous said...

Afmæliskveðja til Klaus frá okkur hér í Garði, sitjum hér í skítakulda 6°C og skjálfum. Steiktum pönnukökur í tilefni dagsins. Höfum það gott og okkur líður ljómandi vel... látum hann bara snjóa.
kveðja
Maddý, Þorgerður og fjölsk og Norðurgötubúar

Kristín E. said...

Herzlichen Glückwunsch auf seinem Geburtstag Liebe Klaus.... er þetta ekki nokkuð nálægt lagi???
Vona að dagurinn hafi verið yndislegur og að laugardagurinn verði frábær :o)

Kristín E. said...

Já... og gleymdi smá... hér er 16°c hiti og elsku Arnhildur besta frænka... þú ert bara snillingur :þ